Mynd: Af vef ferðamálaráðs Nýja-Sjálands

„Hart og fljótt“ reyndist árangursrík aðferð

„Þetta eru skila­boð til allra á Nýja-Sjálandi. Við reiðum okkur á þig. Þar sem þú ert núna verður þú að vera héðan í frá.“ Þannig hljóð­uðu skila­boð stjórn­valda lands­ins er til aðgerða var gripið. Landsins sem nú hefur náð góðum árangri í bar­átt­unni.

Landa­mæri Nýja-Sjálands verða lokuð „í langan tíma“ þó að aðgerðir þar í landi gegn kór­ónu­veirunni hafi skilað þeim árangri að ekk­ert smit hefur greinst tvo daga í röð og neyð­ar­stigi hefur verið aflétt. Landa­mærin verða þó lík­leg­ast ekki lokuð allri heims­byggð­inni til lengdar því Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, átti í dag fjar­fund með áströlsku rík­is­stjórn­inni þar sem ræddur var mögu­leiki á frjálsri för fólks án sótt­kvíar á milli ríkj­anna. Ardern segir að enn eigi eftir að skoða margt áður en að til fram­kvæmdar kemur. Bandalag sem þetta mun að hennar sögn hafa mik­inn ávinn­ing í för með sér en „við munum ekki opna landa­mærin fyrir öðrum ríkjum í langan tíma“.

Lokun landamæra Ástralíu og Nýja-Sjálands fyrir nán­ast öllum útlend­ingum var meðal aðgerða sem gripið var snemma til vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Nú er farið að létta til og reynt að finna lausnir til að vinna á móti fyr­ir­sjá­an­legum efna­hags­þreng­ingum.

Ferða­þjón­usta er ein helsta atvinnu­grein Nýja-Sjálands og við hana starfa um tíu pró­sent alls vinnu­mark­að­ar­ins í land­inu. Hlutur grein­ar­innar í lands­fram­leiðslu er um sex pró­sent. Árið 2018 var hlutur ferða­þjón­ust­unnar á Íslandi um ell­efu pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Síðustu ár hafa flestir sem heim­sækja Nýja-Sjáland verið frá Ástralíu, Kína, Banda­ríkj­unum og Bret­landi. Ferðalög milli Nýja-Sjálands og Ástralíu á ný eru mögu­leg vegna „fram­úr­skar­andi aðgerða“ land­anna tveggja á heims­vísu, segir Ardern.

Innan við 1.500 smit hafa greinst á Nýja-Sjálandi þar sem um 4,5 millj­ónir manna búa. Lang­flestum er batnað af sjúk­dómnum. Tuttugu hafa lát­ist. Í síð­ustu viku var ákveðið að aflétta ákveðnum tak­mörk­unum sem settar höfðu verið á við upp­haf far­ald­urs­ins.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands.
Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands.

Íbúar Ástralíu eru 25 millj­ónir. Þar af tæp­lega 7.000 til­felli greinst og um hund­rað manns lát­ist vegna COVID-19. Mjög hefur hægt á útbreiðsl­unni og nokkur fylki hafa þegar slakað á aðgerðum sínum.

Aðgerðir stjórn­valda á Nýja-Sjálandi byggðu á því að bregð­ast „hart og fljótt“ við far­aldr­inum. Sú aðferða­fræði virð­ist hafa skipt sköpum í því að ná far­aldr­inum niður og aflétta tak­mörk­unum fyrr en gert hefur verið í mörgum öðrum löndum. Ardern vill þó vara landa sína við því að sofna á verð­inum. Áfram verði að gæta var­kárni. „Haldið stefnu,“ sagði hún á blaða­manna­fundi í gær. „Við höfum ekki efni á að eyði­leggja allt okkar góða starf þegar við sjáum fyrir end­ann á ástand­inu.“

Nítjánda mars var landa­mærum Nýja-Sjálands lokað. Öllum var bannað að ferð­ast til og frá land­inu nema Nýsjá­lend­ingum sem þurftu að kom­ast heim og heil­brigð­is­starfs­fólki.

Brimbrettafólk á leið á Bondi-ströndina í Sydney eftir að hún var opnuð á ný.
Brim­bretta­fólk á leið á Bondi-strönd­ina í Sydney eftir að hún var opnuð á ný.

Þann 23. mars var við­bún­aður færður upp á þriðja sig og öllum fyr­ir­tækjum sem ekki buðu nauð­syn­lega þjón­ustu lokað. Sam­komu­bann var sett á og fjöl­mörgum við­burðum aflýst eða frestað. Einnig var inn­an­lands­flug fellt niður. Tveimur sól­ar­hringum síðar voru aðgerðir hertar enn frekar og við­bún­aður færður á fjórða stig, neyð­ar­stig. Íbúum var gert að hitta aðeins þá sem þeir bjuggu með. Þær aðgerðir voru í gildi nokkrar vikur.

Í lok apríl var við­bún­aður aftur færður niður á þriðja stig og fólki leyft að hitta nána ætt­ingja utan heim­ilis. Inn­an­lands­ferða­lög eru heimil með tak­mörk­unum og mennta­stofn­anir og ákveðin fyr­ir­tæki hafa hafið starf­semi að nýju.

Tekin verður ákvörðun um næstu skref þann 11. maí. Enn hefur ekki verið gert opin­bert í hverju þau munu fel­ast. Ardern segir að hefði ekki verið gripið til aðgerð­anna hefðu ný til­felli getað orðið um 1.000 á dag. „Við munum aldrei vita hvað hefði gerst ef við hefðum ekki gripið til 4. stigs tak­markanna en við getum horft til ann­arra landa og séð þá hræði­legu stöðu sem þar hefur orðið,“ segir hún. „Með sam­an­lögðum aðgerðum okkar hefur okkur tek­ist að forð­ast það versta.“

Ferðaþjónusta er mjög mikilvæg atvinnugrein bæði í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.
Ferða­þjón­usta er mjög mik­il­væg atvinnu­grein bæði í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi.

Nýsjá­lend­ingar hafa frá upp­hafi far­ald­urs­ins tekið mörg sýni og bættu í er far­aldr­inum vatt fram. Þeir geta nú tekið um 8.000 sýni á dag sem er með því mesta miðað við höfða­tölu í heim­inum.

Stjórn­völd miðl­uðu upp­lýs­ingum reglu­lega og af hrein­skilni til þjóð­ar­innar. Henni var m.a. sagt að það myndi taka harðar aðgerðir að minnsta kosti tvær vikur að skila árangri í fækkun smita. Þetta gerði það að verkum að auð­veld­ara var fyrir fólk að sætta sig við tak­mark­an­irnar.

Leið­bein­ingar til almenn­ings voru skýrar og byggðar á vís­indum. „Flest allir Nýsjá­lend­ingar geta sagt nákvæm­lega hver við­brögð stjórn­valda við COVID-19 hafa verið en sömu sögu er ekki hægt að segja um íbúa margra ann­arra landa þar sem skila­boð stjórn­valda hafa verið rugl­ings­leg og óákveðin,“ segir nýsjá­lenskur heil­brigð­is­starfs­maður í sam­tali við CNBC.

Efna­hagur Nýja-Sjálands líkt og ann­arra ríkja mun verða fyrir þungu höggi vegna far­ald­urs­ins. Búist er við því að sam­dráttur þjóð­ar­bús­ins nemi að minnsta kosti sex pró­sentum á þessu ári.

Nýverið var sam­þykkt frum­varp á þingi sem á að auð­velda fyr­ir­tækjum rekstur næstu mán­uð­ina, m.a. í formi skatta­lækk­ana. Ardern og allir ráð­herrar í rík­is­stjórn hennar hafa tekið á sig tíma­bundna 20 pró­senta launa­lækkun.

Ein­hverja efna­hags­bót verður að finna í opnun landamær­anna milli Nýja-Sjálands og Ástralíu. Hafa for­sæt­is­ráð­herrar beggja landa lofað því að vinna eins hratt og mögu­legt er svo þetta megi verða að veru­leika sem fyrst. Það er þó ekki aðeins verið að hugsa um pen­inga inn í flutn­inga- og ferða­þjón­ust­una i þessu sam­bandi. Íþrótta­við­burðir og keppnir milli land­anna gætu verið á næsta leiti sem myndi létta lund margra. Þá á fólk í lönd­unum ætt­ingja og vini handan landamær­anna sem nú eru lokuð og gæti heim­sótt þá á nýjan leik.

Heims­byggðin fylgist með hvernig til tekst. Ef ferða­banda­lagið verður að veru­leika gæti það orðið fyr­ir­myndin að öðrum slíkum ann­ars staðar í ver­öld­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár