Vitnisburður um ást og innrás

Þor­steini Jónssyni tekst í verki sínu Vordagar í Prag afar vel að miðla þeim bráð­nauð­syn­lega vitn­is­burði sem fengið hefur að gerj­ast og malla í höfði hans í rúm­lega hálfa öld.

Þorsteinn Jónsson
Þor­steinn Jónsson Það er nokkuð aug­ljóst að höf­undur Vordaga í Prag er kvik­mynda­gerð­ar­maður, enda birt­ist frá­sögnin les­and­anum á ákaf­lega mynd­rænan hátt. Mynd: Benedikt bókaútgáfa
Bók

Vordagar í Prag

Höfundur Þorsteinn Jónsson
Benedikt bókaútgáfa
185 blaðsíður
Gefðu umsögn

Það þótti sæta furðu að Þor­steinn Jónsson vildi elta draum sinn um kvik­mynda­nám í Prag 1968 þegar allir vissu að Rússar sætu með 200 þús­und manna her­lið við landa­mærin, albúnir til árásar. Og hann ákvað að vera áfram í Prag eftir inn­rás­ina, þótt Vorið í Prag væri á enda og margir stúd­ent­anna hefðu flúið aftur til heim­kynna sinna. 

„Vitn­is­burð­ur­inn“ er minni sem er vel þekkt, til dæmis úr frá­sögnum af hel­för­inni. Þau sem lifa atburð­ina finna til­gang – jafn­vel á meðan þau eru stödd í skelfi­leg­ustu raunum – í því að ákveða að bera sög­una áfram til þess hún falli ekki í dá gleymsk­unnar. Margir lýsa því að hún hafi jafn­vel hjálpað þeim að halda lífi, knýj­andi þörfin fyrir að bera vitni um atburð­ina. 

Þor­steinn er í sög­unni bein­línis beð­inn um að segja frá atburð­unum í Prag. Hann ræðir við Frú Scromovu í Skóla­ráðu­neyt­inu þegar inn­rásin er nýhafin, aðrir stúd­entar frá Vestur-Evrópu eru á leið burt úr land­inu og þrýst er á hann að gera slíkt hið sama. Scromova segir berum orðum: „Þú ert okkar vitni“ (bls. 42) og segir honum frá því að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem erlendur her hafi ruðst inn í Prag. Aðeins tutt­ugu og fimm árum fyrr hafi nas­istar drýgt þar við­bjóðs­lega glæpi. „Vertu hér áfram og taktu eftir. Svo ferðu heim og segir frá. Það verður hlustað á þig.“ (bls. 42)  Þor­steinn tekur stöðu vitn­is­ins alvar­lega, bæði með því að senda efni heim til Íslands, sem lesið er upp í frétta­tíma Sjón­varps­ins – og svo núna, meira en hálfri öld síðar.

Minnispæl­ingar eru áber­andi í Vordögum í Prag, eins og oft vill verða í sjálfsævi­sögu­legum verkum. Sumt seg­ist höf­undur ekki muna, en hafi þá heim­ildir (til dæmis bréf sín til for­eldra) sér til aðstoðar. Hann man til dæmis ein­ungis eftir einni stúlku í salnum þegar stúd­entar horfðu á sjón­varps­út­send­ingu frá umsátr­inu við útvarps­húsið, en í bréfi til for­eldr­anna hefur hann skrifað að sal­ur­inn hafi verið fullur af stúd­entum og starfs­fólki.

„Tíminn hefur þurrkað út allt nema þessa einu stúlku, og myndin í huga mér af þessum fyrsta fundi okkar er klippt sena, svið­setn­ing og heim­ild í senn.“ (bls. 12)

Þessi stúlka er Vera, sem sögu­maður verður ást­fang­inn af, og gerir vitn­is­burð­inn frá Prag öðrum þræði að ást­ar­sögu. Vera er bæði dul­ar­full og heill­andi og feg­urð hennar nán­ast ekki hægt að lýsa með orðum. Saga þeirra flétt­ast saman við sög­una af inn­rásinni og ást og rót­tækni svífa yfir vötnum. 

„Það er nokkuð aug­ljóst að höf­undur Vordaga í Prag er kvik­mynda­gerð­ar­maður, enda birt­ist frá­sögnin les­and­anum á ákaf­lega mynd­rænan hátt, oft líkt og æsi­legt atriði í bíó­mynd“

Vera rammar inn frá­sögn­ina og höf­undur ber í sífellu saman ást­ina og inn­rás­ina, enda hefur hvort tveggja haft mikil áhrif á hann:

„Þetta var ástin, stjórn­laus og sjálf­sögð, þótt úti væri verið að skjóta á sak­laust fólk“ (bls. 32) ... „Ég ein­beitti mér að því að lifa Veru af, alveg eins og hvarf Vorsins“ (bls. 88–89) og „Hafði farið fyrir ást okkar Veru eins og Vorinu?“ (bls. 95)

Sögu­maður verður ást­fang­inn af tákn­mynd­inni Veru, ekki síður en henni sjálfri og hún fylgir honum út lífið, skýtur stundum upp koll­inum víða um heim, löngu eftir að atburð­irnir í Tékkó eru orðnir minn­ing.

Margt hefur spaugi­legan und­ir­tón í Vordögum í Prag og sumt er bein­línis spreng­hlægi­legt, eins og sagan af Júlíusi, frænda höf­undar, sem kom frá Íslandi til þess að læra klipp­ingu hjá tékk­neska sjón­varp­inu. Hann vildi ekki láta fara mikið fyrir sér, en fylgd­ist með og þótti fyrir vikið afar grun­sam­legur og reynd­ist gott fóður í ofsókn­ar­brjál­æði eft­ir­lits­sam­fé­lags­ins. Þor­steinn nær vel að miðla fárán­leika aðstæðn­anna, á tímum þegar menn gátu lent í því að hitta ókunn­ugt fólk sem sagði: „Ég starfa við að lesa bréfin þín“ eins og hendir Martinu, eig­in­konu lækn­is­ins Oskars, en þau hjónin hýstu Júlíus frænda og lentu fyrir röð fárán­legra til­vilj­ana í smækk­aðri mynd Rétt­ar­hald­anna eftir Kafka. „Þú ert fastur í óskilj­an­legri atburða­rás sem þú hefur enga stjórn á og botnar ekk­ert í.“ (bls. 127) Þótt allur sá mála­til­bún­aður sé að sönnu grát­bros­legur, er les­anda ljóst að eins og hendi sé veifað getur hann breyst í hryll­ing, á tímum þegar fólk var fang­elsað og jafn­vel myrt fyrir upp­lognar sakir.

Það er nokkuð aug­ljóst að höf­undur Vordaga í Prag er kvik­mynda­gerð­ar­maður, enda birt­ist frá­sögnin les­and­anum á ákaf­lega mynd­rænan hátt, oft líkt og æsi­legt atriði í bíó­mynd. Þor­steini Jónssyni tekst í verki sínu afar vel að miðla þeim bráð­nauð­syn­lega vitn­is­burði sem fengið hefur að gerj­ast og malla í höfði hans í rúm­lega hálfa öld.  

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár