Styður Sigmund en útilokar ekki formannsframboð

Eygló Harð­ar­dóttir seg­ist styðja Sigmund Davíð Gunn­laugs­son sem for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hún úti­lokar þó ekki að bjóða sig fram sem for­mann, en hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún gefi kost á sér áfram til for­ystu­starfa.

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og rit­ari Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hún gefi áfram kost á sér til for­ystu­starfa innan flokks­ins. Spurð hvort hún úti­loki að bjóða sig fram gegn sitj­andi for­manni, Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, seg­ist hún ekki úti­loka það.

„Ég hef áhuga á að halda áfram í póli­tík,“ segir Eygló í sam­tali við Kjarnann. „Ég ætla að vega og meta hvað það er sem við innan flokks­ins viljum gera.“

Sig­mundur kom fram í síð­ustu viku þar sem hann til­kynnti end­ur­komu sína í stjórn­málin. Hann ætlar að halda áfram að vera for­maður og hefur heldur ekki úti­lokað að hann snúi aftur í rík­is­stjórn.

Spurð hvort Eygló styðji Sigmund Davíð áfram sem for­mann seg­ist hún hafa gert það.

„Hann er for­maður og ég styð hann. Hann hefur gefið það skýrt til kynna að hann vilji halda áfram,“ segir hún. „Það er búið að boða til haust­fundar mið­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks­ins og á þeim fundi verður tekin ákvörðun um hvort flokks­þing verði haldið. Haust­fund­ur­inn hefur ákveðið verk­efni og það er í höndum mið­stjórn­ar­manna að ákveða hvort flokks­þing verði haldið fyrir kosn­ingar eða ekki.“

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins er líka for­maður mið­stjórnar, en í henni eiga sæti um 200 full­trúar. Einn full­trúi er kjör­inn fyrir hverja 100 félags­menn í hverju kjör­dæmi eða brot úr þeirri tölu umfram 50, er fram kemur á vef­síðu Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þessir full­trúar skulu kosnir á kjör­dæm­is­þingum til eins árs í senn eftir reglum sem hlut­að­eig­andi kjör­dæm­is­sam­band setur. Þriðj­ungur full­trú­anna hið minnsta skal vera úr hópi ungs fram­sókn­ar­fólks, það er undir 35 ára aldri. Jafn­margir vara­menn skulu kjörnir á sama hátt. Svo eru einnig alþing­is­menn og ráð­herrar, lands­stjórn og fram­kvæmda­stjórn, fyrr­ver­andi þing­menn og ráð­herrar ef þeir eru enn félags­menn, aðal­menn í sveit­ar­stjórn­ar­ráði, stjórn og vara­stjórn laun­þega­ráðs og svo aðrir sjö full­trúar kosnir af lands­stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár