Samherji hefur hagnast um 100 milljarða á sjö árum

Samherji hagn­að­ist um 14,4 millj­arða króna í fyrra. Sam­stæð­unni var skipt upp í inn­lenda og erlenda starf­semi í fyrra­haust. Félagið utan um erlendu starf­sem­ina keypti fjórð­ungs­hlut í Eimskip í sumar.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot.

Samherji, stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins, hagn­að­ist um 14,4 millj­arða króna í fyrra. Það þýðir að sam­an­lagður hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins á sjö ára tíma­bili, frá byrjun árs 2011 til síð­ustu ára­móta, nemur yfir 100 millj­örðum króna. Rúmlega helm­ingur starf­semi Samherja er erlendis.

[links]Samherji birti frétt á heima­síðu sinni á föstu­dag þar sem kemur fram að sam­an­lagðar tekjur dóttur- og sam­starfs­fé­laga sam­stæðu Samherja, sem eru í alls fimmtán löndum, hafi verið 77 millj­arðar króna í fyrra. Hagn­að­ur­inn var líkt og áður segir 14,4 millj­arðar króna sem er nán­ast sá sami og hann var árið áður, þegar hann var 14,3 millj­arðar króna.

Í frétt­inni segir að sölu­hagn­aður eigna hafi vegið þungt í upp­gjöri árs­ins eða um fimm millj­örðum króna. Þá hefur styrk­ing krón­unnar áhrif á upp­gjörið, enda árs­reikn­ingur Samherja gerður í evrum. Ef krónan hefði ekki styrkst eins mikið og hún gerði á árinu 2017 væri hagn­aður Samherja umreikn­aður í íslenskar krónur enn hærri.

[adspot]Aðal­fundur Samherja ákvað að 8,5 pró­sent af hagn­aði, alls rúm­lega 1,2 millj­arðar króna, verði greiddur í arð til eig­enda Samherja. Helstu eig­endur Sam­herja eru frænd­urn­ir, for­stjór­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son og útgerð­ar­stjór­inn Krist­ján Vil­helms­son.

Eigið féð 94,4 milljarðar

Rekstur Samherja hefur verið lyg­inni lík­astur á und­an­förnum árum. Hagn­aður Sam­herja árið 2011 var 8,8 millj­­arð­­ar, árið 2012 16 millj­­arð­­ar, árið 2013 22 millj­­arð­­ar, árið 2014 ell­efu millj­­arðar og árið 2015 var hagn­að­­ur­inn 13,9 millj­­arðar króna. Árið 2016 var hann svo 14,3 millj­arðar króna og í fyrra 14,4 millj­arðar króna. Sam­an­lagt hefur sam­stæðan því hagn­ast um 100,4 millj­arða króna á sjö ára tíma­bili.

Eigið fé Samherja um síð­ustu ára­mót var um 94,4 millj­arðar króna og eig­in­fjár­hlut­fallið 67,1 pró­sent.

Ráðist var í tölu­verðar breyt­ingar hjá Samherja í fyrra, og sú stærsta var að skipta sam­stæð­unni upp í tvö félög þar sem inn­lend starf­semi var aðgreind frá erlendri starf­semi. Innlenda starf­semin verður áfram rekin undir hatti Samherja hf. en sú erlenda í félag­inu Samherji Holding ehf. Skipt­ingin var gerð 30. sept­em­ber 2017 og því er afkoma beggja ein­ing­anna dregin saman í ofan­greindum tölum.

Keyptu risahlut í Eimskip

Í ár hefur sam­stæðan ráð­ist í miklar fjár­fest­ingar og þar ber hæst að Samherji Holding keypti 25,3 pró­sent hlut í Eim­skipa­fé­lagi Íslands á 11,1 millj­arða króna í júlí síð­ast­liðnum. Um var að ræða öll hluta­bréf banda­ríska fjár­fest­inga­sjóðs­ins Yucaipa í Eim­skipa­fé­lagi Íslands hf.

Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más, sett­ist nýverið í stjórn Eim­skipa­fé­lags­ins í krafti þess eign­ar­hlutar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár