Mynd: Kristinn Magnússon

Útlendingur í eigin lífi

Friðgeir Einarsson hefur vakið mikla aðdáun gagn­rýnenda með fyrsta smásagna­safni sínu, Takk fyrir að láta mig vita. Hann hefur áður vakið athygli fyrir sviðsverk sín, en bókmennta­fólk virðist líta svo á að nú fyrst sé hann orðinn rithöfundur. Friðgeir fjallar gjarna um það hversdags­lega, það sem ekki þykir skáldlegt, í verkum sínum og segist alltaf hafa upplifað sig sem dálítið utan við heiminn. Sem barn ákvað hann meira að segja að þegja í heilt ár, kannski til að þurfa ekki að taka þátt í heimi hinna.

Þótt Friðgeir Einarsson hafi verið starfandi sviðs­listamaður, bæði höfundur, leik­stjóri og leikari, árum saman og verk leikhóps hans Kriðpleir vakið töluverða athygli og aðdáun, er eins og hann hafi fyrst stigið fram á sjónar­svið íslenskra lista með nýútkomnu smásagna­safni, Takk fyrir að láta mig vita. Er svona miklu merkilegra að vera rithöfundur en sviðs­listamaður í augum alheimsins? Og hvers vegna ákvað hann að snúa sér að smásagna­ritun samhliða sviðs­listinni?

„Það hefur alltaf blundað í mér að skrifa skáldverk – ef ég má nota þá klisju,“ segir Friðgeir þegar ég spyr hann hvers vegna hann hafi snúið sér að því að skrifa smásögur eftir að hafa einbeitt sér að skrifum leikverka árum saman. „Ég hef alltaf séð ritsörf sem einhvers konar köllun eða örlög, en aldrei haft neitt sérstak­lega gaman af því að skrifa skáldskap fyrr en núna síðustu árin. Það var eiginlega ekki fyrr en ég fór að skrifa smásögur sem mér fór að finnast það skemmtilegt. Ég hafði skrifað nokkrar misheppnaðar tilraunir að skáld­sögum, en aldrei fundið mig almennilega í því.“

Friðgeir segir áhugann á smásagna­forminu hafa kviknað við lestur smásagna annarra undan­farin ár og orðið að neista. „Smásagna­formið getur verið svo skilvirkt og góð smásaga getur oft haft meiri áhrif en slöpp skáldsaga. Sumar hugmyndir detta líka betur inn í smásagna­formið. Þær eru líka góð leið til að opna inn í einhvern heim og hverfa út úr honum aftur áður en maður verður leiður á honum.“

Hafandi verið starfandi sviðs­listamaður sem bæði skrifar og flytur eigin verk er ekkert óþægilegt að hafa enga stjórn á upplifun lesenda? „Jú, það er dálítið skrítið. Bókin kom út fyrir nokkrum vikum og svo verður maður bara að bíða eftir viðbrögðunum. Það tekur á taugarnar. Við í leik­hópnum Kriðpleir frum­sýndum leikritið Ævisaga einhvers á föstu­daginn í síðustu viku og fengum auðvitað viðbrögð strax á staðnum, í augna­blikinu. Það er það sem ég er vanur. Með bók þá skilar maður bara handriti í prentun á ákveðnum tíma­punkti og eftir það getur maður engu breytt. Ekki get ég mætt með tippex í búðirnar og krotað inn leið­réttingar. Þótt það væri reyndar ágætis gjörn­ingur. Það er til dæmis eitt orð í einni sögunni sem mér finnst núna að hefði átt að vera öðruvísi en ég get ekkert gert í því héðan af. Ef maður gerir mistök í leik­húsinu getur maður leiðrétt þau um leið, mistökin eru horfin um leið og þú ert búinn að gera þau, en þetta orð mun standa í þessari sögu um aldur ævi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár