Tíu staðreyndir um íslenskan vinnumarkað

Hrær­ingar á vinnu­mark­aði und­an­farin miss­eri hafa vart farið fram­hjá neinum. Íslenskur vinnu­mark­aður er smár í alþjóð­legu sam­hengi en hér er hátt hlut­fall starf­andi og sterk verka­lýðs­sam­staða. Kjarninn tók saman tíu stað­reyndir um íslenskan vinnu­markað.

1. Tæplega 200 þúsund starfandi

Alls voru 192.656 starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði í lok síð­asta árs, á aldr­inum 15 til 74 ára, af báðum kynjum og með lög­heim­ili á Íslandi. Á sama tíma var heild­ar­mann­fjöldi á Íslandi 348.580.

2. Um 18 þúsund launagreiðendur

Tæplega 18 þús­und launa­greið­endur eru á Íslandi sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar frá því í mars. Alls voru þeir að jafn­aði 17.804 á 12 mán­aða tíma­bili frá apríl 2017 til mars 2018 og hafði þeim fjölgað um 640 eða 3,7 pró­sent frá síð­ustu 12 mán­uðum þar á undan. Á sama tíma­bili greiddu launa­greið­endur að meðal tali 190.400 ein­stak­lingum laun sem er aukn­ing um 8.300 eða 4,5 pró­sent sam­an­borið við 12 mán­aða tíma­bil ári fyrr.

3. Flestir í fræðastörfum eða opinberri stjórnsýslu

Flestir laun­þegar störf­uðu í mars 2018 við það sem Hag­stofan flokkar sem fræði­starf­semi og opin­ber stjórn­sýsla, eða 41.500. Þar á eftir starfa 25.300 í ferða­þjón­ustu og 16.300 í heil­brigðis- og umönn­un­ar­þjón­ustu. 16.700 starfa í fram­leiðslu, 15.200 í smá­sölu­verslun og 8.700 í heild­verslun. Alls eru um 12.900 laun­þegar í tækni- og hug­verka­iðn­aði, 12.800 í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð og 8.700 í skap­andi greinum.

4. Tveir þriðju launamanna í ASÍ

Alþýðu­sam­band Íslands er stærsta fjölda­hreyf­ing launa­fólks á land­inu. Um tveir þriðju hlutar launa­manna í skipu­lögðum sam­tökum á Íslandi eru í ASÍ. Hlutverk ASÍ er að berj­ast fyrir bættum kjörum félags­manna sinna og standa vörð um rétt­indi þeirra. Félags­menn í ASÍ eru um 123 þús­und í 5 lands­sam­böndum og 48 aðild­ar­fé­lögum um land allt. Þar af eru ríf­lega 110 þús­und virkir á vinnu­mark­aði. Félags­menn í aðild­ar­fé­lögum ASÍ eru starf­andi á flestum sviðum sam­fé­lags­ins, á almennum vinnu­mark­aði og hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum. Forseti ASÍ er Gylfi Arn­björns­son sem gegnt hefur því emb­ætti frá árinu 2008.

5. Aðildarfélögin gera kjarasamninga og sinna hagsmunagæslu

Aðild­ar­fé­lög ASÍ sinna margs konar þjón­ustu fyrir félags­menn sína. Þau gera kjara­samn­inga þar sem kveðið er á um laun og önnur starfs­kjör félags­manna. Þau leið­beina um túlkun kjara­samn­inga og aðstoða launa­fólk við að sækja rétt sinn gagn­vart atvinnu­rek­endum, s.s. við inn­heimtu launa, við­ur­kenn­ingu á áunnum rétt­indum og varð­andi öryggis- og aðbún­að­ar­mál. Þau leið­beina og aðstoða félags­menn sína í sam­skiptum við opin­berar stofn­anir á sviði vinnu­mark­aðs­mála, s.s. Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóð, Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóð og Ábyrgða­sjóð launa. Á vegum stétt­ar­fé­lag­anna eru reknir sjúkra­sjóðir sem veita marg­háttuð rétt­indi, m.a. með greiðslu dag­pen­inga þegar félags­menn veikj­ast eða lenda í slysum.

6. Andstaða við forystuna

Fjögur aðild­ar­fé­lög ASÍ hafa lýst yfir and­stöðu við for­ystu ASÍ. Það eru VR, Efling, Verka­lýðs­fé­lag Akraness og Framsýn Verka­lýðs­fé­lag. Þessi félög hafa meiri­hluta félags­manna innan ASÍ að baki sér, rúm­lega 52 pró­sent. Þau gagn­rýna harð­lega bar­áttu­að­ferðir for­yst­unnar og hefur Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR meðal ann­ars lýst yfir van­trausti á hendur Gylfa Arn­björns­syni.

7. Meira en 2 þúsund fyrirtæki hjá SA

Samtök atvinnu­lífs­ins, SA, eru heild­ar­sam­tök íslensks atvinnu­lífs, það er að segja atvinnu­rek­enda. Undir SA eru sex aðild­ar­sam­tök sem byggja á ólíkum atvinnu­greinum, Samorka, Samtök ferða­þjón­ust­unnar, Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja, Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, Samtök iðn­að­ar­ins og Samtök versl­unar og þjón­ustu. Yfir 2.000 fyr­ir­tæki eiga aðild að SA og hjá þeim fyr­ir­tækjum starfa um 70 pró­sent launa­fólks á almennum vinnu­mark­aði. Með aðild­inni fela aðild­ar­fé­lögin og ein­stakir með­limir SA umboð til að gera alla kjara­samn­inga fyrir sína hönd.

8. Ríkið stærsti vinnuveitandinn

Ríkið er stærsti vinnu­veit­andi lands­ins. Starfs­menn rík­is­ins eru sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Stjórn­ar­ráðs­ins að jafn­aði um 21 þús­und tals­ins en stöðu­gildi eru tölu­vert færri þar sem margir eru í hluta­störfum. Fjár­mála­ráð­herra fer með fyr­ir­svar rík­is­sjóðs við gerð kjara­samn­inga við starfs­menn rík­is­ins. Hann skipar samn­inga­nefnd til að ann­ast samn­inga­gerð fyrir sína hönd. Þá eru starfs­kjör hluta starfs­manna rík­is­ins ákvörðuð af Kjara­ráði. Kjararáð er sjálf­stætt ráð sem er falið það verk­efni að ákveða laun og starfs­kjör æðstu emb­ætt­is­manna rík­is­ins. Í þeim hópi eru alþing­is­menn, ráð­herrar, dóm­arar, sak­sókn­arar, sendi­herrar, ráðu­neyt­is­stjórar, skrif­stofu­stjórar sem fara með fyr­ir­svar fyrir hönd fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við gerð kjara­samn­inga, for­seta­rit­ari, seðla­banka­stjóri, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, rík­is­sátta­semj­ari og nefnd­ar­menn úrskurð­ar­nefnda í fullu starfi. Fyr­ir­komu­lag um launa­á­kvarð­anir Kjara­ráðs er í end­ur­skoðun hjá rík­is­stjórn­inni.

9. SALEK frá 2013 - óvíst með framhaldið

Heild­ar­sam­tök aðila á vinnu­mark­aði, það er að segja ASÍ, BSRB, BHM, KÍ, Samband sveit­ar­fé­laga, Reykja­vík­ur­borg, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið og SA, hafa haft með sér form­legt sam­starf um launa­upp­lýs­ingar og efna­hags­for­sendur kjara­samn­inga, sem kall­ast SALEK, frá árinu 2013. Í októ­ber 2015 und­ir­rit­uðu þessi heild­ar­sam­tök, að und­an­skildum BHM og KÍ, ramma­sam­komu­lag um bætt vinnu­brögð við kjara­samn­inga­gerð­ina. Nokkur aðild­ar­fé­lög ASÍ hafa lýst mik­illi and­stöðu við SALEK og er óvíst hvernig fer með sam­komu­lagið þegar kjara­samn­ingar ASÍ og SA renna út nú um ára­mótin.

10. Ríkisstjórnin með yfirlýsingar um sátt á vinnumarkaði

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar segir að rík­is­stjórnin hygg­ist beita sér fyrir sam­stilltu átaki með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins til að tryggja að kjara­samn­ingar skili launa­fólki og sam­fé­lag­inu raun­veru­legum ávinn­ingi. Sátt á vinnu­mark­aði er nauð­syn­leg for­senda þess að stuðla að stöð­ugu verð­lagi og jafn­vægi og skapa þannig efna­hags­leg skil­yrði til lægra vaxta­stigs og bættra lífs­kjara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár