GRID nær í 1,6 milljarða króna fjármögnun

Íslenskt fyr­ir­tæki, sem stofnað var í ágúst 2018, hefur þegar náð í yfir tvo millj­arða króna í fjár­mögnun. Einn virt­asti fram­taks­fjár­fest­inga­sjóður heims leiðir nýj­ustu fjár­mögn­un­ar­lotu þess sem er sú stærsta sem tekju­laus íslenskur sproti hefur náð í.

Starfsfólk GRID.
Starfs­fólk GRID. Mynd: GRID

Íslenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið GRID hefur tryggt sér 12 milljón dala, rúm­lega 1,6 millj­arða króna, fjár­mögnun. Um er að ræða stærstu fjár­mögnun sem íslenskt sprota­fyr­ir­tæki hefur sótt áður en það byrjar að mynda tekjur, en varan sem GRID ætlar að selja í fram­tíð­inni er enn í þróun.

Sjóð­ur­inn sem leiðir fjár­mögn­un­ina heitir New Enter­prise Associates (NEA). Hann er alþjóð­legur fjár­fest­ing­ar­sjóður á sviði fram­taks­fjár­fest­inga með skrif­stofur víða um heim. NEA sér­hæfir sig í fjár­fest­ingum á sviði tækni- og heilsu­gæslu á ýmsum þró­un­ar­stigum fyr­ir­tækja og er með yfir 24 millj­arði dala, um 3.300 millj­arða króna, í stýr­ingu hjá sér.

NEA hefur áður fjár­fest í íslensku tækni­fyr­ir­tæki. Það gerð­ist í nóv­em­ber 2015 þegar sjóð­ur­inn leiddi 30 milljón dala fjár­fest­ingu í CCP.

Ætla að vaxa á Íslandi

Stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri GRID er Hjálmar Gísla­son, sem stofn­aði áður, og seldi síð­ar, Data­mar­ket sem seinna meir rann inn í Qlik. Hjálmar er einnig stærsti ein­staki hlut­hafi Kjarn­ans með 17,7 pró­sent eign­ar­hlut og stjórn­ar­for­maður rekstr­ar­fé­lags mið­ils­ins.

[adspot]Hug­myndin að GRID snýst um söfnun og fram­setn­ingu gagna í gegnum tól sem leggst ofan á töflu­reikni (e. spreadsheet) sem býr til við­mót sem not­endur geta fyllt út. Allar upp­lýs­ingar sem not­endur fylla inn í við­mótið flæða síðan áfram í Excel-skjal við­kom­andi. Þannig ætlar GRID að hjálpa fólki að taka það sem það kann að gera í töflu­reikni og miðla gögn­unum áfram á fal­legan og ein­faldan hátt. Varan hefur verið í lok­uðum beta-próf­unum með góðum árangri.

Starfs­menn GRID eru sem stendur á annan tug en og Hjálmar segir að stefnt sé á veru­legan vöxt hér­lendis í kjöl­far fjár­mögn­un­ar­innar. Til að mynda hafi þegar átta ný störf verði aug­lýst til umsóknar. Hann segir að höf­uð­stöðvar GRID verði á Íslandi og ekk­ert útlit fyrir að það muni breyt­ast þó að settar verði upp sölu­skrif­stofur erlendis.

GRID búið að sækja yfir tvo milljarða

Þetta er í þriðja sinn sem GRID lýkur fjár­mögn­un­ar­lotu en það tryggði sér eina milljón dali í októ­ber 2019, um 137,5 millj­ónir króna á núvirði, og 3,5 millj­ónir dala í mars í fyrra, sem er um 480 millj­ónir króna á núvirði.

Fjár­fest­ingin sem átti sér stað í fyr­ir­tæk­inu í mars í fyrra var leidd af BlueYard Capital fjár­fest­inga­sjóðnum með þátt­töku aðila á borð við Slack Fund og Acequia Capital. Þeir taka allir þátt í fjár­mögn­un­inni sem greint var frá í dag, og leidd er af NEA.

Sam­an­lagt nemur því fjár­fest­ingin í GRID, sem var stofnað í ágúst 2018, vel yfir tveimur millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár