Tæknispá ársins 2016

Hver verða aðal­at­riðin í tækni­geir­anum árið 2016? Hjálmar Gíslason hefur tekið saman tækni­spá sína og þar telur hann gervi­greind og sýnd­ar­veru­leika eiga mestan séns.

Ég hef stundum (2006, 2008, 2009, 2010, 2014, 2015) gert það að gamni mínu í upp­hafi árs að spá fyrir um hluti sem muni ein­kenna kom­andi ár í tækni­geir­anum, þá sér­stak­lega frá íslensku sjón­ar­horni. Þetta hefur gengið upp og ofan og dæmi hver fyrir sig, en ég er að minnsta kosti ekki enn af baki dott­inn. Hér koma nokkur atriði sem ég tel að muni ein­kenna kom­andi ár:

Gervigreind

Það eru væg­ast sagt ótrú­legir hlutir að ger­ast í heimi gervi­greindar þessi miss­erin. Þetta á eftir að vera stóra sagan í tækni­heim­inum öllum á kom­andi árum og á eftir að hafa áhrif á allt! Ég ætla bara að nota stóru orðin: Þetta mun hafa að minnsta kosti jafn mikil - ef ekki meiri - áhrif á heim­inn en til­koma inter­nets­ins. Í stuttu máli er það sem hefur gerst að menn eru að ná svo góðum tökum á djúpum tauga­netum (e. deep neural networks) að það jafn­ast á við getu manns­heil­ans þegar kemur að til­teknum, afmörk­uðum verk­efnum. Auð­veld­ast er að hugsa þetta þannig að allt sem menn geta þjálfað sig til að gera „án umhugs­unar“ (hugsun sem á sér stað í „System 1“ fyrir þá sem hafa lesið Thinking Fast and Slow eftir Kahneman) verður hægt að þjálfa tölvur til að gera - og í mörgum til­fellum betur en menn. Allt frá því að keyra bíla (sem raunar er svo gott sem leyst vanda­mál nú þegar), til þess að þekkja fólk á myndum, til þess að „dikt­era“ talað mál jafn vel og mennskur rit­ari, til þess að greina sjúk­dóms­ein­kenni útfrá röntgen­mynd. Allt! Þetta mun hafa gríð­ar­leg áhrif og ger­breyta mörgu í okkar nán­asta umhverfi á næstu 10 árum. Heilt yfir er þetta þróun sem er til hins góða, en það munu verða heil­mikil sam­fé­lags­leg áhrif af því líka þegar fjöld­inn allur af ósér­hæfðum störfum verður betur leystur með tölvu en með fólki. Ég ætla ekki að halda því fram að áhrifin á nýhöfnu ári verði mjög áber­andi. Þó munum við mörg hafa rekið okkur á eitt­hvað sem nýtir þessa tækni áður en árið er úti. Hins vegar verður þetta allra heitasta sviðið í nýsköp­un­ar­heim­inum, og við munum sjá fjöldan allan af fyr­ir­tækjum spretta upp sem nýta þessa nýju tækni, sem öfugt við margar fyrri tækni­bylgjur byggir nær alger­lega á opnum hug­bún­aði. Kapp­hlaupið núna snýst að mörgu leyti ekki um tækn­ina sjálfa, heldur um bestu gögnin til að þjálfa þessa tækni til marg­vís­legra verka og þar er enn og verður tals­vert um gögn í einka­eigu sem munu gera þeim fyrstu og bestu kleift að eigna sér til­tekin svið í þessum geira. Mér vit­an­lega eru mjög fáir að veita þessu sviði athygli á Íslandi enn sem komið er, og er það mjög miður.

Sjónvarp framtíðarinnar - loksins

Fyrir bráðum 10 árum skrif­aði ég pistil sem nefnd­ist „Afþrey­ing fram­tíð­ar­innar“. Þar lagði ég útfrá þátt­unum Rockstar Supernova þar sem „Magni okkar“ dró þjóð­ina með sér í eitt af sínum alræmdu æðum. Und­ir­liggj­andi var þetta: Í fram­tíð­inni mun línu­leg dag­skrá leggj­ast af og fólk horfa á það efni sem það vill, þegar það vill, með þeirri und­an­tekn­ingu að beinar útsend­ingar, hvort heldur frá íþrótta­við­burðum, skemmti­dag­skrá eða frétta­við­burðum, sem og frum­sýn­ingar á vin­sælu efni munu enn sam­eina áhorf­endur og þá jafn­vel í auknum mæli á heims­vísu en ekki bara innan landa. Þetta er auð­vitað orðið að veru­leika að all­nokkru leyti, en stækkað útbreiðslu­svæði Netflix er stórt skref í þessa átt. Banda­ríski efn­is­ris­inn HBO (sem fram­leiðir margar af vin­sæl­ustu þátta­röðum ver­aldar, allt frá Game of Thrones til Simpsons) steig líka skref í þessa átt á liðnu ári hér í Banda­ríkj­unum og fór að selja áskriftir yfir netið óháð kapal- og útsend­ing­ar­miðlum. Ef þeir feta í fót­spor Netflix og hefja dreif­ingu á heims­vísu, þá fyrst má Jón Gnarr fara að hafa áhyggjur af því að áskrif­endur leiti til alþjóð­legra veitna, frekar en íslenskra dreif­ing­ar­að­ila.

Íslenska VR-ið

Einn af spá­dómum síð­asta árs var að við myndum heyra mikið frá íslenskum fyr­ir­tækjum sem væru að fást við sýnd­ar­veru­leika, og nefndi þar meðal ann­ars Valkyrieleik­inn frá CCP, Sólfar, Aldin og Mure. Það má segja að þetta hafi gengið eftir. CCP tók nokkuð afger­andi kúrs í þessa átt og fékk sam­hliða stærstu fjár­fest­ingu sem íslenskt sprota­fyr­ir­tæki í tölvu­geir­anum hefur fengið, eða um 30 millj­ónir doll­ara frá hinum virta sjóði NEA. Skömmu síðar sást til Mark Zuckerberg prófa og mæra Gunjack leik­inn þeirra og hafa margir haft stór orð um þá upp­lifun sem þessir nýju leikir CCP eru. Sólfar fékk jafn­framt góða fjár­mögnun og hefur vakið athygli, einkum fyrir sýnd­ar­veru­leika­upp­lifun af Everest*. Aldin og Mure hafa jafn­framt verið að gera góða hluti og við munum heyra meira frá þeim báðum á árinu. Hér er því að verða vísir að þekk­ing­ar­klasa á nýju og all­spenn­andi sviði og von­andi að háskól­arnir sem og stærri fyr­ir­tæki inn­lend - og jafn­vel erlend - sjái sér hag í að tengja sig þeirri þróun og efla hana þar með. Samspil sprota­fyr­ir­tækja, stærri fyr­ir­tækja, háskóla og fjár­fest­inga­sjóða er akkúrat það sem þarf til að upp­haf af þessu tagi festi rætur og beri ávöxt.

Íslenska umhverfið

Heilt yfir er íslenska tækni­um­hverfið í ágætri stöðu og 2016 mun að lík­indum bæta þar enn úr.

Létting gjald­eyr­is­hafta mun hafa mikið að segja með mögu­leika íslenskra félaga til að sækja sér erlent fjár­magn - og þá þekk­ingu sem því getur fylgt. Ég ótt­ast þó að enn muni líða all­mörg ár þar til hefð­bundnir alþjóð­legir áhættu­fjár­fest­inga­sjóðir verði til­búnir að fjár­festa í íslenskum félögum - og kemur þar reyndar fleira til. Þangað til svo er mun sá tími koma fyrr eða síðar í lífi flestra okkar nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja að þau þurfa að koma móð­ur­fé­lögum sínum, hug­verkum og þar með stærstum hluta hagn­aðar fyrir erlendis.

Mannekla er við­loð­andi í hug­bún­að­ar­geir­anum og verður ekk­ert lát á miðað við allt það sem er í gangi. Þetta á ekki bara við um for­rit­ara, heldur nán­ast öll þau störf sem að hug­bún­að­ar­gerð, rekstri tækni­fyr­ir­tækja og svo auð­vitað sölu og mark­aðs­setn­ingu tækni­lausna. Enn eru of fáir að útskrif­ast úr þessum fögum þrátt fyrir mikla aukn­ingu á und­an­förnum árum og eins eru þeir sem útskrif­ast ef til vill með helst til eins­leita þekk­ingu. Eins er alveg stór­und­ar­legt að enn sé mjög flókið og tíma­frekt mál fyrir sér­fræð­inga á þessum sviðum að fá hér atvinnu- og dval­ar­leyfi komi þeir frá löndum utan EES.

Starf­semi alþjóð­legra fyr­ir­tækja í þessum geira á Íslandi er nán­ast engin. Það er mik­il­vægt í bland við það sem hér sprettur upp að fólk hafi tæki­færi að vinna hjá stórum, öfl­ugum, alþjóð­legum fyr­ir­tækjum. Bæði eykur það úrval starfa og mögu­leika fyrir fólk í geir­anum, en ekki síður eykur það reynslu fólks­ins í tækni­geir­anum af slíku umhverfi - með öllum sínum kostum og göllum - öllum til hags­bóta. Ég er stoltur af þeirri upp­bygg­ingu sem Qlik hefur staðið fyrir hér eftir kaupin á Data­Mar­ket í fyrra, en við þurfum fleiri, stærri og fjöl­breytt­ari fyr­ir­tæki hingað til að skapa meiri breidd og „dínamík“ í íslenska tækni­um­hverfið. Ég spái því að hafin verði vinna við að laða slík fyr­ir­tæki hingað á árinu.

Stóru vaxt­ar­fjár­fest­inga­sjóð­irnir þrír Frumtak II, Eyrir Sprotar og Brunnur fjár­festu tals­vert á nýliðnu ári, en eiga enn umtals­verða fjár­muni sem þeir þurfa að koma í vinnu fyrr en síðar. Nú eru sjóð­irnir komnir vel af stað og 2016 verður því lík­lega stærsta ár Íslands­sög­unnar þegar kemur að fram­taks­fjár­mögnun íslenskra tækni­fyr­ir­tækja. Húrra fyrir því!

* Tek fram að ég er hlut­hafi í Sólfari í gegnum fjár­fest­inga­sjóð­inn Investa. Höfundur er einnig stjórn­ar­for­maður Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár