Jón Gnarr hefur áhyggjur af innkomu Netflix á Íslandsmarkað

Jón Gnarr, fram­kvæmda­stjóri dag­skrársviðs 365, seg­ist ekki vita hversu mikið fagn­að­ar­efni það sé fyrir neyt­endur að nú sé hægt að kaupa aðgang að Netflix með lög­legum hætti á Íslandi. „Ef fyr­ir­tæki eins og 365 og fleiri hætta að sjá sér fær að standa í því að fram­leiða íslenskt sjón­varps­efni þá er það hreint ekk­ert sér­stakt fagn­að­ar­efni. Það er bara synd,“ segir Jón í stöðu­upp­færslu á Facebook sem hann setti inn fyrr í dag. 365 er stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins og rekur fjöl­margar sjón­varps­stöðvar sem seldar eru í áskrift.

For­svars­menn Netflix til­kynntu í gær að opnað hafi verið fyrir þjón­ust­una í 130 löndum til við­bótar við það sem var og er Ísland á meðal þeirra.

Samkvæmt vef­síðu Netflix munu áskrift­ar­leið­irnar kosta frá átta evrum mán­ar­lega til tólf evra, eftir því hvaða þjón­ustu­leið er valin. Þetta gera á bil­inu 1.000 til 1.700 íslenskar krónur. Nú þegar er talið að um 27 þús­und íslensk heim­ili séu þegar með Netflix aðgang, sem aflað hefur verið með króka­leiðum.

Jón deilir Pælingu dags­ins hjá Kjarn­anum, þar sem sagt var að inn­koma Netflix væri fagn­að­ar­efni fyrir neyt­endur, og seg­ist ekki vita alveg hversu mikið „fagn­að­ar­efni“ þessi breyt­ing sé. „Ég er að vinna hjá einum af þessum fyr­ir­tækjum sem minnst er á í grein­inni. Þar á bæ er verið að búa til ara­grúa af íslensku sjón­varps­efni. Og eins og ég hef margoft sagt þá er ég að því af því að mig langar til að leggja mitt af mörkum til að efla og styrkja inn­lenda fram­leiðslu og dag­skrá. Við höfum sett á fót sér­staka hand­rits­þró­un­ar­deild sem á að ein­beita sér að þessu.“

Jóla- og áramótaþáttur af Næturvaktinni í bígerð

Jón segir að hann hafi nýlokið við að skrifa tíu þátta sjón­varps­s­eríu sem heitir Borg­ar­stjór­inn. Auk þess sé 365 að vinna að metn­að­ar­fullri leik­inni þátta­röð í sam­starfi við Rvk Studios, fram­leiðslu­fyr­ir­tæki Baltasar Kormáks. Þá seg­ist Jón vera að skoða mögu­leik­ann á því að gera sér­stakan jóla- og ára­móta­þátt af hinum vin­sælu þáttum Næt­ur­vakt­inni, þar sem Jón fór með hlut­verk Georgs Bjarn­freð­ar­sonar. „Það er nokkuð flókið að gera íslenska sjón­varps­þætti. Sér­stak­lega með til­liti til fjár­mögn­unar. Kvik­mynda­sjóður Íslands leggur enga sér­stak­lega áherslu á sjón­varp. Þeir styrkja aðal­lega kvik­myndir og sjón­varp mætir eig­in­lega afgangi. 
Ég tel að fram­lag mitt til inn­lendrar sjón­varps­þátta­gerðar hafi skipt miklu máli, ekki bara sem afþreyg­ing heldur fyrst og fremst sem fram­lag til íslenskrar tungu og menn­ingar og sem heim­ild um okkar sam­tíma. Mig langar að finna leiðir til að halda því áfram, að búa til sjón­varp fyrir Íslend­inga á íslensku. Og mér finnst það sér­stak­lega mik­il­vægt í ljósi þess hvernig sjón­varp er að breyt­ast í heim­inum. Ef fyr­ir­tæki eins og 365 og fleiri hætta að sjá sér fært að standa í því að fram­leiða íslenskt sjón­varps­efni þá er það hreint ekk­ert fagn­að­ar­efni. Það er bara synd.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár