Netflix komið til Íslands

Streymi­þjón­ustan Netflix til­kynnti í dag að opnað hafi verið fyrir starf­semi hennar hér á landi. Þúsundir þátta og bíó­mynda eru nú aðgengi­legir Íslend­ingum á lög­legan hátt.

For­svars­menn Netflix til­kynntu í dag að opnað hafi verið fyrir þjón­ust­una í 130 löndum til við­bótar við það sem var og er Ísland á meðal þeirra.

Samkvæmt vef­síðu Netflix munu áskrift­ar­leið­irnar kosta frá átta evrum mán­ar­lega til tólf evra, eftir því hvaða þjón­ustu­leið er valin. Þetta gera á bil­inu 1.000 til 1.700 íslenskar krónur.

Netflix hefur verið beðið hér með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu, en í febr­úar síð­ast­liðnum samdi Samfilm við Netflix um þjón­ustu hér á landi og var þá til­kynnt að opnað yrði fyrir streymið hingað síð­sum­ars það sama ár. Ekkert varð þó af því.

En Íslend­ingar hafa ekki látið ógreini­leg landa­mæri stöðvað sig hingað til eftir þjón­ustu Netflix. Hæglega hefur verið hægt að að kaupa áskrift með ákveðnum króka­leiðum og í októ­ber í fyrra voru 18,4 pró­sent íslenskra heim­ila áskrif­endur að Netflix, þrátt fyrir að þjón­ustan hafi ekki form­lega verið í boði hér á landi.

Netflix er streymi­þjón­usta þar sem hægt er að nálg­ast mikið magn kvik­mynda, sjón­varps­þátta, barna­efnis, heim­ild­ar­mynda og ann­ars áhorf­an­legs efnis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár