Samfilm semur við Netflix - líklega komið síðsumars

„Já það er rétt, við höfum náð sam­komu­lagi við Netflix, en það mun lík­lega ekki skýr­ast fyrr en síð­sum­ars hvenær nákvæm­lega þetta verður í boði,“ segir Árni Sam­ú­els­son, for­stjóri Samfilm. Hann segir enn­fremur ekki sé orðið ljóst ennþá hvað þjón­ustan muni kosta, en for­svars­menn Netflix munu koma hingað til lands til þess að und­ir­búa upp­setn­ingu þjón­ust­unnar síðar á árinu. „Það er verið að skipu­leggja mikla mark­aðs­her­ferð í Evr­ópu­löndum, og við munum koma inn í þá vinnu,“ segir Árni.

Sam-félagið er stærsta kvik­mynda­fyr­ir­tæki og og rekstr­ar­að­ili kvik­mynda­húsa á Íslandi, bæði í dreif­ingu kvik­mynda í kvik­mynda­húsum og útgáfu dvd diska. Fyr­ir­tækið er því rétt­hafi mik­ils magns efnis sem verður aðgengi­legt hjá Netflix þegar veitan opnar hér­lendis.

Netflix er streymi­þjón­usta þar sem hægt er að nálg­ast mikið magn kvik­mynda, sjón­varps­þátta, barna­efnis, heim­ild­ar­mynda og ann­ars áhorf­an­legs efnis. Þjón­ustan hefur þann aug­ljósa kost fram yfir línu­lega sjón­varps­dag­skrá að not­endur geta horft á það efni sem þeir vilja þegar þeir vilja í nán­ast hvaða tæki sem þeir vilja. Áskrift að Netflix er auk þess mun ódýr­ari en áskrift að þeim sjón­varps­stöðum sem hægt er að ger­ast áskrif­andi að á Íslandi.

Þrátt fyrir að þjón­usta Netflix sé ekki í boði hér­lendis er samt sem áður talið að um 20 þús­und íslensk heim­ili séu með aðgang að veit­unni. Þjón­ustan hefur notið sívax­andi vin­sælda síð­ustu ár, ekki síst eftir að fram­leiðsla á eigin efni hófst. Þátt­arað­irnar House of Cards, Orange is the New Black og fjórða ser­ían af Arrested Develop­ment eru allar dæmi um það.

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber síð­ast­liðnum að samn­inga­við­ræður Samfilm við for­svars­menn Netflix væru langt komnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár