Einar K. ætlar að fara yfir reglur um hagsmunaskráningu þingmanna

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, ætlar að láta fara sér­stak­lega yfir hags­muna­skrán­ingu þing­manna og fram­kvæmd þeirra reglna. Þetta kom fram í svari hans við fyr­ir­spurn Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­flokks­for­manns Vinstri grænna, á Alþingi í dag.

Svandís spurði Einar hvernig hann hygð­ist bregð­ast við mis­mun­andi túlkun þing­manna á reglum um það hvernig skrá skuli hags­muni þing­manna. Þá spurði hún hvort hann telji að reglur hafi verið brotnar þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kaus að skrá ekki ein­gar­hlut sinn í Wintris þegar hann var kos­inn á þing 2009 og hvort hann telji að Bjarni Bene­dikts­son hafi brotið reglur þegar hann skráði ekki eign­ar­hlut sinn í félag­inu Falcon.

Einar sagð­ist ekki geta kveðið upp úr um spurn­ing­arnar varð­andi Sigmund Davíð og Bjarna, en komi ekki auga á það að regl­urnar um hags­muna­skrán­ingu hafi verið brotnar. Hins vegar þurfi að „fara yfir þessi mál betur.“

Hann sagði að hitt væri hins vegar hár­rétt og kjarni máls­ins „að við höfum orðið vör við það á síð­ustu vikum að uppi er mis­mun­andi skiln­ingur ein­stakra hátt­virtra þing­manna og fleiri aðila á því nákvæm­lega hvað regl­urnar um hags­muna­skrán­ing­una þýða.“

Vandinn sé marg­þættur, meðal ann­ars að þegar regl­urnar um hags­muna­skrán­ingu voru settar hafi ekki fylgt nein grein­ar­gerð til að útskýra þær frekar. Það sé auð­vitað ekki gott að mis­mun­andi skiln­ingur sé uppi um það hvað regl­urnar þýði.

„Þingmenn eru í mjög sér­stakri stöðu. Þingmenn sækja sitt umboð, sitt vald, til almenn­ings og eiga þess vegna að standa reikn­ings­skil gagn­vart almenn­ingi.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár