Vilja hækka bensín- og olíugjald fyrir vegaframkvæmdir

Fimm þing­menn VG hafa lagt fram frum­varp um sér­stakar fjár­öfl­un­ar­ráð­staf­anir í vega­málum. Það kveður á um hækkun bensín- og olíu­gjalds og þar með aukið fé til Vega­gerð­ar­innar.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður VG og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, er einn fimm þing­manna VG sem hafa lagt fram frum­varp á Alþingi um sér­stakar fjár­öfl­un­ar­ráð­staf­anir í vega­málum. Hin eru Ari Trausti Guð­munds­son, Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, Lilja Rafney Magn­ús­dóttir og Steinunn Þóra Árna­dóttir.

Samkvæmt frum­varp­inu myndu bens­ín­gjöld og olíu­gjöld hækka. Bens­ín­gjald af blý­lausu bens­íni færi úr 43,25 krónum á lítr­ann í 52 krónur, og gjöld af öðru bens­íni færu úr 45,85 krónum á lítr­ann í 54,74 krónur. Olíu­gjald færi úr 60,10 krónum á lítr­ann í 68,52 krónur á lítr­ann.

Samkvæmt frum­varp­inu myndu fjár­heim­ildir Vega­gerð­ar­innar til nýfram­kvæmda aukast um sem nemur áætl­uðum tekjum vegna þess­ara hækk­ana, eða um 2.000 millj­ónum króna. Þá væri Vega­gerð­inni heim­ilt að færa 500 millj­ónir króna af við­halds- og þjón­ustu­lið yfir í nýfram­kvæmdir.

„Nú verður ekki lengur við ríkj­andi ófremd­ar­á­stand unað og þar sem ekk­ert bendir til að ný rík­is­stjórn hygg­ist hverfa frá svelti­stefnu í sam­göngu­málum er frum­varp þetta um sér­stakar fjár­öfl­un­ar­ráð­staf­anir í vega­málum á árinu 2017 flutt,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu. 

Þar kemur einnig fram að mark­miðið með þessu sé að „bæta nokkuð úr því ófremará­standi sem við blasir“ í sam­göngu­málum. Með breyt­ing­unum væri hægt að setja nokkrar brýnar nýfram­kvæmdir, sem séu á gild­andi sam­göngu­á­ætlun en ráð­herra ætli nú að strika út, í útboð og í fram­kvæmd á þessu ári.

Mikið hafi vantað upp á þessir mörk­uðu tekju­stofnar Vega­gerð­ar­innar, sem gjöldin eru, hafi verið upp­færðir til sam­ræmis við verð­lags­þróun und­an­farin ár. Talið sé að Vega­gerðin hafi úr að spila að minnsta kosti sjö millj­örðum minna en ella vegna þessa. „Senni­lega er þar fremur um van­á­ætlun að ræða en hitt sökum mik­illar umferð­ar­aukn­ingar að und­an­förnu.“

Frum­varpið eigi því að vera skref í átt að færa þetta til betri vegar. „Er ekki van­þörf á, sbr. síend­ur­teknar fréttir af ófremd­ar­á­standi á vegum lands­ins og hávær mót­mæli vegna þess nið­ur­skurðar frá sam­þykktri sam­göngu­á­ætlun sem mest er rætt um þessa dag­ana.“

Fréttin hefur verið upp­færð. Í upp­runa­legu skjali á vef Alþingi var Stein­grímur J. Sig­fús­son einn skráður flutn­ings­maður frum­varps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár