Sævar Freyr ráðinn bæjarstjóri Akraness

Sævar Freyr Þrá­ins­son, sem lætur af störfum hjá 365, hefur verið ráð­inn bæj­ar­stjóri á Akranesi.

Sævar Freyr Þrá­ins­son, frá­far­andi for­stjóri 365 miðla, hefur verið ráð­inn bæj­ar­stjóri á Akranesi. Bærinn greindi frá þessu fyrir skömmu, en Sævar Freyr hefur störf í dag. Hann greindi starfs­fólki á 365 miðlum frá því í morgun að hann myndi hætta þar störfum, eftir að til­kynnt var um kaup Vodafone á flestum miðlum 365.

Sævar Freyr var ráð­inn bæj­ar­stjóri á lok­uðum fundi þann 28. febr­úar síð­ast­lið­inn. Það var gert sam­hljóða, en Sævar tekur við starf­inu af Regínu Ásvalds­dóttur, sem tók nýlega við starfi sviðs­stjóra vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar.

Sævar er við­skipta­fræð­ingur með langa stjórn­un­ar­reynslu. Hann starf­aði sem for­stöðu­maður og fram­kvæmda­stjóri hjá Símanum um margra ára skeið þar sem hann bar meðal ann­ars ábyrgð á þróun, sölu, mark­aðs­málum, vöru­stjórnun, við­skipta­stýr­ingu og gagna­lausnum. Hann varð for­stjóri Símans árið 2007 og gegndi því starfi þar til hann tók við for­stjóra­stöðu hjá 365 miðlum. Sævar á sæti í fram­kvæmda­stjórn við­skipta­ráðs og hefur gengt stjórn­ar­for­mennsku meðal ann­ars hjá fyr­ir­tækj­unum Sensa og On-Waves og átt sæti í stjórnum fjöl­margra fyr­ir­tækja sem tengj­ast fjar­skipta­málum og hug­bún­aði.

Í til­kynn­ingu Akra­ness­bæjar segir að Sævar hafi tekið með virkum hætti í sam­fé­lags- og menn­ing­ar­málum á Akranesi, hann sé vara­for­maður knatt­spyrnu­fé­lags Íþrótta­banda­lags Akraness, vara­for­maður Vest­ur­landsvakt­ar­innar sem eru holl­vina­sam­tök Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­ur­lands og stjórn­ar­maður í góð­gerð­ar­fé­lag­inu, Club 71. Þá hefur hann átt sæti í atvinnu­mála­nefnd kaup­stað­ar­ins og í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs Akra­nes­kaup­staðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár