Meirihluta skólastjórnenda þykir leyfisheimildir foreldra of rúmar

Rúmur helm­ingur skóla­stjórn­enda segir að leyf­is­beiðnum vegna ferða­laga hafi fjölgað mikið á síð­ustu árum í nýrri könnun. Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra seg­ist líta það mjög alvar­legum augum að slíkar fjar­vistir komi niður á námi nem­enda.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Um þúsund grunnskólanemendur á Íslandi glíma við skólaforðun eða um 2,2 prósent nemenda. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar Velferðarvaktarinnar um skólasókn í grunnskólum. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur jafnframt fram að rúmur helmingur skólastjórnenda segir leyfisbeiðnir vegna ferðalaga hafa fjölgað mikið á síðustu árum. Lilja Alfreðsdóttir segist líta það mjög alvarlegum augum að slíkar fjarvistir komi niður á námi nemenda líkt og niðurstöður könnunarinnar gefi vísbendingar um.

Skólaforðun þarf að nálgast úr ólíkum áttum

Í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu segir að niðurstöður könnunarinnar verði teknar til umfjöllunar í stýrihóp Stjórnarráðsins í málefnum barna. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segist fagna þeim áhuga og umræðu sem nú er um skólamál hér á landi og inntaki þeirra tillagna Velferðarvaktarinnar sem fylgja niðurstöðunum.

„Markmið okkar er að styðja sem best við skólasamfélagið og þar viljum við að öllum líði vel og nái árangri. Sú áhersla er meðal annars eitt leiðarstefja nýrrar menntastefnu sem nú er í mótun – árangur nemenda grundvallast á áhuga þeirra og vellíðan. Skólaforðun þarf að nálgast úr ólíkum áttum og vinna gegn henni í nánu samstarfi við skólasamfélagið, sveitarfélögin og önnur ráðuneyti. Þar er vilji til góðra verka, enda hefur þessi ríkisstjórn sett velferðarmál barna og ungmenna í forgang,“ segir Lilja 

Skýrari viðmið um undanþágur frá skóla

Þegar er hafin vinna innan ráðuneytisins við að skoða kafla aðalnámskrár grunnskóla þar sem fjallað er um undanþágur frá skólavist. Hér á landi er skólaskylda í grunnskólum sem hefur í för með sér að allar fjarvistir frá námi eru undanþágur. Samkvæmt tilkynningunni eiga því frí og ferðalög sem kalla á leyfi frá skólavist að heyra til undantekninga og þá sé mikilvægt að náminu sé einnig sinnt af ábyrgð þegar barnið er tekið úr skóla.

Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að meirihluti skólastjórnenda líti svo á að heimildir foreldrar til að fá leyfi fyrir börn sín séu of rúmar. Lilja segist líta það mjög alvarlegum augum að leyfisbeiðnir vegna ferðalaga komi niður á námi nemenda líkt og niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna. „Að mínu mati þurfum við að ræða þessa þróun og samfélagið í heild sinni þarf að taka hana til sín. Við þurfum ákveðna viðhorfsbreytingu gagnvart mikilvægu hlutverki skólanna og hvernig við sem samfélag metum menntun og störf kennara að verðleikum. Þar skiptir góð skólamenning lykilmáli og að gott samstarf, traust og virðing sé milli heimila og skólasamfélagsins,“ segir ráðherra.

Hún segir jafnframt að ráðuneytið hafi það til skoðunar hvort einhverjar leiðir séu færar til þess að mæta þeirri ósk skólastjórnenda að stjórnvöld setji skýrari viðmið um undanþágur frá skólasókn og skyldunámi. Þá sé horft til nágrannalanda Íslands þar sem slík viðmið eru í mörgu tilfellum strangari en hér á landi. „Markmiðið er að nemendur nái árangri í sínu námi. Samfélagsgerð okkar er flóknari en áður og það gerir kröfu á okkur öll um sveigjanleika og lausnir en þær verða alltaf að vera með hagsmuni nemendanna að leiðarljósi,“ segir Lilja að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár