Fylgið flakkar milli flokka sem tilheyra sömu hólfum stjórnmála

Eftir Klaust­urs­málið hækk­aði fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks um 7,7 pró­sent á sama tíma og fylgi Mið­flokks og Flokks fólks­ins lækk­aði um 7,6 pró­sent. Nú þegar fylgi Mið­flokks­ins er að aukast lækkar fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar.

Það eru níu flokkar á norska þing­inu, fjórir í stjórn en fimm í stjórn­ar­and­stöðu. Þar af tveir með sitt hvorn þing­mann­inn. Í Danmörku eru líka níu flokkar á þingi, auk þess sem fjórir þing­menn koma frá Færeyjum og Græn­landi.

Í Svíþjóð eru átta flokkar með full­trúa á þingi auk þess sem einn þing­maður er skil­greindur utan flokka. Í nýaf­stöð­unum kosn­ingum í Finn­landi, sem fóru fram um liðna helgi, náðu tíu flokkar inn manni, þótt tveir þeirra hafi reyndar ein­ungis náð inn einum hvor.

Í öllum þessum nágranna­löndum okkar tíðkast því sam­starf margra stjórn­mála­flokka við myndum rík­is­stjórna, sem sumar hverjar eru minni­hluta­stjórnir.

Íslenskt stjórn­mála­lands­lag hefur á síð­ustu árum færst frá því að vera þannig að fjórir flokkar hafa iðu­lega haft um og yfir 90 pró­sent fylgi og að rík­is­stjórnir séu tveggja flokka stjórnir. Í síð­ustu kosn­ingum náðu átta flokkar inn manni á Alþingi og hafa þeir aldrei verið fleiri. Síðustu mán­uði, sam­hliða miklu umróti í íslenskum stjórn­málum, virð­ist vera að fær­ast umtals­vert festa í hólfa­skipt­ingu þessa nýja lands­lags. Þ.e. fylgi hvers hólfs fyrir sig: til hægri, á miðju og til vinstri, virð­ist hald­ast nokkuð stöðugt þótt að til­færsla verði fylgi milli þeirra flokka sem til­heyra hverju hólfi fyrir sig.

Það sést mjög vel með því að skoða breyt­ingar á fylgi fyrir og eftir hið svo­kall­aða Klaust­ur­mál.

Hið íhaldsama hægra hólf

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eru þeir tveir flokkar sem oft­ast hafa ráðið á Íslandi, oft­ast saman en stundum líka í sitt­hvoru lagi. Þeir eru hönn­uðir flestra þeirra kerfa sem við búum við og mikil vigt er lögð á það í stjórn­málum beggja að við­halda þeim kerfum. Að því leyt­inu til eru þeir klass­ískir íhalds­flokkar, sem vilja litlar eða engar stór­tækar breyt­ingar á stjórn­kerfum lands­ins eða stjórn­ar­skrá þess.

Mið­flokk­ur­inn er klofn­ings­flokkur úr Fram­sókn­ar­flokknum. Hann og Flokkur fólks­ins reka meðal ann­ars þjóð­ern­ispopúl­íska stefnu sem byggir á áherslum á stór og kostn­að­ar­söm kosn­inga­lof­orð, full­veldi þjóðar og mik­illi tor­tryggni gagn­vart alþjóða­væð­ingu og alþjóða­sam­starfi. Báðir flokkar leggja auk þess áherslu á að bæta hag aldr­aðra, öryrkja og lands­byggðar og stilla aðstæðum þeirra oft upp upp sem and­stæðum við aðra til­tekna hópa.

Þetta hægra hólf stjórn­mál­anna, hið íhalds­sama eða popúl­íska, var sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna haustið 2017. Þá fengu þessir fjórir flokkar sam­tals 53,7 pró­sent atkvæða, sem var algjör við­snún­ingur frá kosn­ing­unum árið áður þegar þeir fengu 44 pró­sent atkvæða. Nú mælist það með stuðn­ing 46 pró­sent kjós­enda og myndi tapa 7,7 pró­sentu­stigum frá kosn­ing­unum 2017 ef kosið yrði í dag, og nið­ur­staðan yrði í sam­ræmi við könnun MMR.

Það virð­ist vera sem að nær öll til­færsla sem verður á fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks, Mið­flokks og Flokks fólks­ins eigi sér stað á milli þeirra. Það sást ágæt­lega í kosn­ing­unum 2017, þeim fyrstu sem Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins náðu mönnum á þing í. Sam­eig­in­legt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks lækk­aði mark­tækt milli kosn­ing­anna 2016 og 2017. Framsókn fékk sína verstu nið­ur­stöðu í rúm­lega hund­rað ára sögu sinni. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk sína næst verstu nið­ur­stöðu. Sú versta var 2009, í fyrstu kosn­ing­unum eftir banka­hrunið.

Það má líka sjá þessa til­færslu á fylgi milli flokka innan hólfs­ins í könn­unum MMR. Í lok nóv­em­ber 2018 mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi þeirra 49,3 pró­sent en í könnun sama fyr­ir­tækis um miðjan febr­úar mæld­ist það 49,2 pró­sent, eða nán­ast nákvæm­lega jafn mikið. Í nóv­em­ber mæld­ist fylgi Mið­flokks og Flokks fólks­ins sam­an­lagt 20,7 pró­sent en í febr­úar 13 pró­sent. Á sama tíma mæld­ist sam­eig­in­legt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar 28,6 pró­sent í nóv­em­ber 2018 en 36,2 pró­sent í febr­úar 2019. Það sem gerð­ist í milli­tíð­inni var Klaust­urs­málið þar sem þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins voru ger­endur. Á ofan­greindu tíma­bili lækk­aði sam­eig­in­legt fylgi Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins um 7,7 pró­sent en sam­eig­in­legt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hækk­aði um 7,6 pró­sent.

Í síð­ustu könn­unum MMR, sem birtar voru í mars og apríl, hefur Mið­flokk­ur­inn náð vopnum sínum aftur. Hann mælist nú með 10,2 pró­sent fylgi, sem er nán­ast kjör­fylgi hans. Flokkur fólks­ins á enn nokkuð í land með að ná fyrri hæðum en mælist samt með 5,4 pró­sent fylgi, sem myndi tryggja honum inn á þing ef kosið yrði í dag. Sam­eig­in­lega taka þessir flokkar því til sín 15,6 pró­sent atkvæða. Afleið­ingin fyrir Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk er sú að báðir myndu setja nýtt met í lágu fylgi ef kosið yrði í dag, Framsókn með 8,7 pró­sent atkvæða og Sjálf­stæð­is­flokkur með 21,7 pró­sent.

Vert er að taka fram að bæði Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn hafa ríka til­hneig­ingu til að ganga betur í kosn­ingum en kann­anir hafa bent til, enda búa flokk­arnir af reynslu­miklu flokk­skipu­lagi sem gerir þeir kleift að reka árang­urs­ríkar kosn­inga­bar­áttur. Þannig fengu þeir sam­an­lagt rúm­lega fjögur fleiri pró­sentu­stig í kosn­ing­unum 2017 en síð­asta könnun MMR fyrir þær hafði spáð þeim.

Hin sjálfskilgreinda frjálslynda miðja

Sú blokk í hinu nýja lands­lagi íslenskra stjórn­mála sem er að auka fylgi sitt mest frá síð­ustu kosn­ingum sam­kvæmt könn­unum er það sem má kalla hina frjáls­lyndu miðju. Þar eru flokkar (Sam­fylk­ing, Viðreisn og Píratar) sem teygja sig til vinstri eða hægri í ákveðnum mála­flokkum en leggja áherslu á hin svoköll­uðu fínni blæ­brigði stjórn­mála á borð við jafn­rétti, aukið alþjóða­sam­starf, mann­rétt­indi, frjáls­lyndi í inn­flytj­enda/hæl­is­leit­enda­málum og umfangs­miklar og jafn­vel rót­tækar kerf­is­breyt­ingar. Oft eru kjós­endur þess­arar blokkar kall­aðir „góða fólkið“ og ásak­aðir um elítu­isma.

Þessir flokkar njóta mest stuðn­ings á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sér­stak­lega í Reykja­vík. For­svars­menn bæði Við­reisnar og Sam­fylk­ingar hafa rætt það opin­ber­lega að vilji sé til þess að mynda næstu rík­is­stjórn í kringum þessa þrjá flokka, með þeim við­bótum sem til þyrfti. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði í við­tali við Mannlíf í febr­úar að hann vildi gera slíkt með Viðreisn, Pírötum og Vinstri grænum.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, ræddi málið í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í nóv­em­ber í fyrra og sagði þar tvo ása vera til staðar í íslenskum stjórn­málum, frjáls­lynda og íhalds­sama ásinn. Ekki fór milli mála hvaða flokkum hún rað­aði á ásana.

Þessi blokk fékk 28 pró­sent fylgi í síð­ustu kosn­ingum, haustið 2017. Það var algjör við­snún­ingur á fylgi flokka sem skil­greina sig helst sem frjáls­lynda miðju­flokka frá kosn­ing­unum 2016, þegar þegar þeir fengu 37,9 pró­sent atkvæða, en þá var Björt fram­tíð enn að mæl­ast með stuðn­ing kjós­enda.

Fylgi flokk­anna þriggja hefur verið mjög stöðugt und­an­farna mán­uði í könn­unum MMR, það var 36,2 pró­sent í nóv­em­ber en mæld­ist 37,9 pró­sent í síð­ustu könnum, sem birt var 9. apríl. Ef það yrði nið­ur­staða kosn­inga myndu þessir flokkar bæta við sig 9,9 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum.

Það vekur athygli að það er nákvæm­lega sama hlut­fall stuðn­ings og frjáls­lyndu flokk­arnir fengu í atkvæðum í kosn­ing­unum 2016, sem þóttu miklar sig­ur­veg­ara­kosn­ingar fyrir þær stjórn­mála­legu áherslur.

Vinstra hólfið

Síðasta hólfið er vinstra­hólfið. Þar hafa Vinstri græn náð að að sitja nær ein und­an­farin miss­eri þótt að atkvæði flæði þaðan bæði yfir til Sam­fylk­ingar og Pírata, og að mikil sam­legð sé milli þeirra flokka í mörgum áherslu­málum. Þar má nefna mál sem snerta jöfnuð, loft­lags­mál, jafn­rétt­is­mál og önnur jafn­rétt­is­mál. Það sem aðskilur þó er hin ríka íhalds­taug Vinstri grænna og and­staða við ýmsar kerf­is­breyt­ingar og and­staða við ýmis konar alþjóða­sam­starf, til að mynda við veru Íslands í NATO og mögu­lega aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu.

Þótt Vinstri græn leiði nú afar óvenju­lega rík­is­stjórn með flokkum sem þau hafa aldrei áður viljað vinna með þá eru Sam­fylk­ingin og Píratar mun nátt­úru­legri banda­menn þeirra en Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur. Við blasti hins vegar eftir síð­ustu kosn­ingar að ómögu­legt var að mynda rík­is­stjórn með þessum þremur flokkum ein­vörð­ungu og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var afhuga fimm flokka stjórn. Þá ríkir umtals­verð tor­tryggni gagn­vart Viðreisn innan Vinstri grænna, þar sem mörgu lyk­il­fólki finnst Viðreisn vera allt of langt til hægri í sinni póli­tík.

Vinstri græn hafa liðið fyrir veru sína í rík­is­stjórn á þessum kjör­tíma­bili, sam­kvæmt könn­unum MMR. Flokk­ur­inn fékk 16,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2017 en hefur verið að mæl­ast með 12,9 til 10,3 pró­sent fylgi síð­asta tæpa hálfa árið.

Þar skiptir líka máli að mun rót­tæk­ari vinstri flokkur, með náið sam­band við nýja verka­lýðs­for­ystu, er komin fram á sjón­ar­sviðið. Þ.e. Sós­í­alista­flokkur Íslands sem náði inn manni í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, sem fóru fram í fyrra­vor, og fékk 6,4 pró­sent atkvæða, á sama tíma og Vinstri græn guldu afhroð og fengu ein­ungis 4,3 pró­sent atkvæða í kjör­dæmi Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Samkvæmt könn­unum þá fer hluti þess fylgis sem Vinstri græn fengu í síð­ustu kosn­ing­unum nokkuð aug­ljós­lega yfir á flokka sem eru vinstra megin á miðj­unni en Sós­í­alista­flokk­ur­inn er sífellt að gera sig breið­ari á vinstri vængnum. Hann mælist nú með 4,5 pró­sent fylgi í könn­unum MMR og hefur verið að mæl­ast með mann inni í ýmsum öðrum könn­unum. Það vekur líka athygli að frá því að MMR fór að mæla fylgi Sós­í­alista­flokks­ins í febr­úar síð­ast­liðnum þá hefur fylgi vinstri flokk­anna tekið lít­inn kipp upp á við. Það mælist nú 14,9 pró­sent en mæld­ist t.d. 10,3 pró­sent í nóv­em­ber.

Vert er þó að taka fram að þeir sem ætl­uðu sér að kjósa „annað“ en til­greinda flokka í könn­un­inni í nóv­em­ber voru fjögur pró­sent. Afar lík­legt er að fylgi við Sós­í­alista­flokk­inn hafi verið uppi­staðan þess fylgis og ef tekið er til­lit til þess þá er breyt­ingin á fylgi vinstri flokk­anna síð­ustu mán­uði lítil sem engin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár