Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tekjur af fasteignagjöldum aukast þrátt fyrir að álagning lækki

Reykja­vík­ur­borg hefur ákveðið að lækka fast­eigna­skatta á íbúð­ar­hús­næði á næsta ári um tíu pró­sent. Samt munu tekjur borg­ar­innar af inn­heimtu fast­eigna­gjalda halda áfram aukast um millj­arða á ári næstu árin.

Reykja­vík­ur­borg gerir ráð fyrir að hafa 20,2 millj­arða króna í tekjur af fast­eigna­gjöldum á næsta ári. Tekjur borg­ar­innar af slíkum eru áætl­aðar 18 millj­arðar króna í ár. Þessi hækkun mun eiga sér stað þrátt fyrir að fast­eigna­gjöld á íbúð­ar­hús­næði verði lækkuð um tíu pró­sent – úr 0,2 pró­sent í 0,18 pró­sent – og að afslættir aldr­aðra og öryrkja af slíkum gjöldum verði auknir. Þetta kemur fram í fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir árin 2018 til 2022 sem lögð var fram í borg­ar­stjórn í gær.

Þessar breyt­ingar munu skila umtals­verðum sér í auknum ráð­stöf­un­ar­tekjum borg­ar­búa. Á fimm ára tíma­bili fjár­hags­á­ætl­un­ar­innar nemur lækk­unin á fast­eigna­gjöldum sam­tals um 2,6 millj­örðum króna á breyti­legu verð­lagi.

Það er lagt upp með að hækka við­mið tekna elli- og örorku­þega til lækk­unar fast­eigna­skatts og frá­veitu­gjalds um 25 pró­sent. Í frum­varpi til fjár­hags­á­ætl­unar segir að þessi hækkun feli í sér að afsláttur borg­ar­innar til þess hóps hækki úr 326 millj­ónum króna í 489 millj­ónir króna, eða sem nemur 163 millj­ónum króna. Þegar lækkun á fast­eigna­sköttum er líka talin með muni heild­ar­á­vinn­ingur elli- og örorku­líf­eyr­is­þega á næsta ári vera um 230 millj­ónir króna.

Þrátt fyrir lækkun á því hlut­falli sem greitt er í fast­eigna­gjalda fyrir íbúð­ar­hús­næði er samt sem áður reiknað með mik­illi áfram­hald­andi tekju­aukn­ingu borg­ar­innar vegna inn­heimtu slíkra. Í grein­ar­gerð með fjár­hags­á­ætlun segir að gert sé ráð fyrir að þau auk­ist um 8,9 pró­sent á næsta ári og um 7,2 til 7,8 pró­sent næstu þrjú árin eftir það. Í þeim útreikn­ingum er búið að taka til­lit til áhrifa af breyttri mats­að­ferð á hót­elum og gisti­stöðum sem kemur inn í fast­eigna­mat 2019, og mun hækka fast­eigna­mat þeirra umtals­vert. Þá stendur yfir gríð­ar­lega upp­bygg­ing á íbúðar- og atvinnu­hús­næði í Reykja­vík um þessar mundir sem mun skila umtals­verðri tekju­aukn­ingu.

Húsnæðisverð rokið upp á örfáum árum

Sveit­ar­fé­lög lands­ins eru með tvo meg­in­tekju­stofna. Ann­ars vegar rukka þau útsvar, sem er beinn skattur á tekjur sem rennur til þess sveit­ar­fé­lags sem við­kom­andi býr í. Hins vegar rukka þau fast­eigna­gjöld.

Slík gjöld eru aðal­lega tvenns kon­ar. Ann­ars vegar er fast­eigna­skattur (0,2 pró­sent af fast­eigna­mati á íbúð­ar­hús­næði og 1,65 pró­sent af fast­eigna­mati á atvinnu­hús­næði) og hins vegar lóð­ar­leiga (0,2 pró­sent af lóða­mati á íbúð­ar­hús­næði og eitt pró­sent af lóða­mati á atvinnu­hús­næð­i). Auk þess þurfa íbúar að greiða sorp­hirðu­gjald og gjald vegna end­ur­vinnslu­stöðva sem hluta af fast­eigna­gjöldum sín­um. Nú ætlar Reykja­vík­ur­borg sem sagt að lækka fast­eigna­skatt­inn á íbúð­ar­hús­næði niður í 0,18 pró­sent.

Inn­heimt fast­eigna­gjöld í Reykja­vík hafa auk­ist um 50 pró­sent frá árinu 2010. Vegna þess árs inn­heimti Reykja­vík­ur­borg tæp­lega 12,1 millj­arð króna í fast­eigna­gjöld. Áætlað er að borgin inn­heimti 18 millj­arða króna í fast­eigna­gjöld vegna árs­ins 2017. Líkt og áður segir er reiknað með að hann skili 20,3 millj­örðum króna á næsta ári þrátt fyrir að fast­eigna­skattar á íbúð­ar­hús­næði lækki.

Þessi mikla tekju­aukn­ing er drifin áfram af því að fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og raun­verð fast­eigna hefur aldrei verið hærra en það er nú um stund­ir. Frá því í des­em­ber 2010 hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á öllu hús­næði, hækkað um 94 pró­sent. Hækk­unin hefur verið drifin áfram af skorti á fram­boði, sem hefur verið miklu minna en eft­ir­spurn. Sam­hliða hafa efna­hags­að­stæður batnað og kaup­máttur auk­ist og geta íbúa til að kaupa sér hús­næði þar af leið­andi meiri.

Á sama tíma hefur einnig verið byggt mikið magn af atvinnu­hús­næði og sér­stak­lega hót­el­bygg­ing­um. Eft­ir­spurn eftir slíkum er síst minni en eftir íbúð­ar­hús­næði í ljósi þess að fjöldi ferða­manna sem heim­sækir Ísland heim hefur rúm­lega fjór­fald­ast frá árinu 2010.

Fast­eigna­mat hækk­aði um 17,2 pró­sent milli ára

Þar sem stóru breyt­urnar í greiddum fast­eigna­gjöld­um, fast­eigna­skattur og lóða­leiga, byggja á fast­eigna­mati þá aukast tekjur sveit­ar­fé­laga í beinu sam­ræmi við hækkun á fast­eigna­mati milli ára. Og fast­eigna­mat hefur hækkað gríð­ar­lega hratt sam­hliða þeim miklu hækk­unum sem orðið hafa á fast­eigna­mark­aði hér­lend­is. Þegar Þjóð­skrá Íslands, sem sér reiknar út fast­eigna­matið sem lagt er til grund­vallar álagn­ingu opin­berra gjalda ár hvert, birti nýtt mat fyrir árið 2018 í júní síð­ast­liðnum kom til að mynda fram að heild­ar­mat allra fast­eigna á land­inu hefði hækkað um 13,8 pró­sent milli ára.

Dagur B. Eggertsson er borgarstjóri í Reykjavík. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Dagur B. Egg­erts­son er borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Í Reykja­vík var með­al­hækkun fast­eigna­mats­ins 17,2 pró­sent. Hún var mest í póst­núm­eri 111, eða Efra Breið­holti, þar sem matið hækk­aði um 20,8 pró­sent að mið­gildi.


Matið hækk­aði líka mikið þegar það var reiknað út fyrir árið 2017, eða 7,8 pró­sent. Milli 2015 og 2016 hækk­aði það um 5,8 pró­sent. Og svo fram­veg­is.

Sam­an­dregið þá þýðir þessi hækkun á fast­eigna­mati ein­ungis eitt fyrir eig­endur fast­eigna: þeir borga fleiri krónur í skatta.

Fasteignaskattar lykilbreyta í afkomu

Rekstur Reykja­vík­ur­borgar hefur notið góðs af þessum miklu hækk­un­um. A-hluti borg­ar­inn­ar, sem er sú starf­semi hennar sem er að hluta eða öllu leyti fjár­mögnuð með skatt­tekj­um, hefur verið í járnum á und­an­förnum árum. Árin 2014 og 2015 var hún til að mynda nei­kvæð upp á 16,4 millj­arða króna. Það þýðir að borg­inni vant­aði þá upp­hæð til að geta staðið undir rekstr­ar­kostn­aði A-hlut­ans. Vert er að taka fram að stærsta ástæða þess að hall­inn var jafn hár og raun ber vitni var sú að breyt­ingar á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum á árinu 2015 gerði það að verkum að bók­færð voru gjöld sem voru rúm­lega tíu millj­örðum krónum hærri en þau voru árið eft­ir. Þrátt fyrir að líf­eyr­is­skuld­bind­ing­arnar væru teknar út fyrir sviga þá var borgin samt sem áður að tapa millj­örðum króna á ári.

Þetta breytt­ist í fyrra þegar afkoma hennar var jákvæð um 2,6 millj­arða króna. Í ár er gert ráð fyrir að rekstr­ar­af­gangur borg­ar­innar verði um 500 millj­ónir króna og fjár­hags­á­ætlun reiknar með að hann verði 3,4 millj­arðar króna á næsta ári. Rekstr­ar­nið­ur­staðan á síðan að batna veru­lega á árunum 2019 til 2022 og vera þá lægst 5,6 millj­arðar króna árið 2019 og mest 10,8 millj­arðar króna.

Stór breyta í þeirri afkomu er áætluð tekju­aukn­ing vegna fast­eigna­gjalda. Þau voru í heild 15,6 millj­arðar króna árið 2016 en áætlað er að þau skili 18 millj­örðum króna í borg­ar­sjóð í ár. Það er tekju­aukn­ing á þeim lið upp á 2,4 millj­arða króna á milli ára. Minna má á að Reykja­vík­ur­borg ætlar að reka A-hlut­ann sinn með 500 millj­óna króna afgangi á yfir­stand­andi ári. Auknar tekjur vegna fast­eigna­gjalda á árinu eru tæp­lega fimm sinnum sú upp­hæð.

Þegar skoðað er tíma­bilið frá 2011 og út næsta ár munu tekjur vegna fast­eigna­gjalda hafa auk­ist um 8,1 millj­arð króna. Tekju­aukn­ingin hefur verið lang­mest á allra síð­ustu árum.

Kosið verður til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík þann 26. maí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár