Marine Le Pen hættir sem formaður Þjóðfylkingarinnar

Le Pen hætti því hún vill setja flokkapóli­tík til hliðar í seinni umferð for­seta­kosn­inga í Frakk­landi.

Marine Le Pen er hætt sem formaður Þjóðfylkingarinnar.
Marine Le Pen er hætt sem for­maður Þjóð­fylk­ing­ar­innar. Mynd: EPA

Franski for­seta­fram­bjóð­and­inn Marine Le Pen, sem hlaut kosn­ingu til þess að taka þátt í ann­ari umferð for­seta­kosn­ing­anna í Frakk­landi á sunnu­dag, hefur sagt af sér for­mennsku í Þjóð­fylk­ing­unni (f. Front National).

Frá þessu er greint á vef breska rík­is­út­varpss­ins.

Le Pen tók við for­mennsku af föður sínum Jean-Marie Le Pen árið 2011 og náði bestum árangri full­trúa Þjóð­fylk­ing­ar­innar í for­seta­kosn­ingum þar í landi. Marine hlaut 7,6 milljón atkvæði í fyrri umferð for­seta­kosn­ing­anna á sunnu­dag sam­an­borið við 2,8 milljón atkvæði sem faðir hennar fékk þegar hann komst áfram í aðra umferð for­seta­kosn­ing­anna árið 2002. Jean-Marie tap­aði þá í seinni umferð­inni gegn Jacques Chirac.

Ákvörðun Marien Le Pen er óvænt. Hún til­kynnti um ákvörðun sína í sam­tali við frönsku sjón­varp­stöð­ina France 2 þar sem hún sagð­ist vilja setja flokkapóli­tík til hliðar í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna sem fara fram 7. maí næst­kom­andi.

Emmanuel Macron er hinn fram­bjóð­and­inn sem náði kjöri til þess að taka þátt í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna. Hann er eins ólíkur fram­bjóð­andi Le Pen og hugs­ast getur og seg­ist til dæmis vera ein­dreg­inn Evr­ópusinni. Hann hefur ný stofnað Fram­sókn­ar­flokk sinn (f. En Marche!). Ellefu fram­bjóð­endur gáfu kost á sér en margir þeirra hafa lýst yfir stuðn­ingi sínum við Macron í seinni umferð kosn­ing­anna. Hann er jafn­framt tal­inn mun lík­legri til þess að ná kjöri.

Í kosn­inga­bar­átt­unni sagð­ist Le Pen vilja tak­marka fjölda inn­flytj­enda sem Frakk­land tæki á móti og sagð­ist ætla að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Frakk­lands í Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár