Davíð segist ekki ætla að þiggja laun sem forseti

Davíð Oddsson gagn­rýnir Guðna Th. Jóhann­es­son fyrir afstöðu sína í Icesave, fyrir afstöðu sína gagn­vart stjórn­ar­skrá og fyrir að draga úr hetju­dáð­inni sem Þorska­stríðin hafi verið.

Davíð Oddsson, sem býður sig fram til for­seta Íslands, segir að hann muni ekki þiggja laun verði hann kos­inn for­seti. Davíð nýtur eft­ir­launa vegna fyrri starfa sinna í stjórn­málum sem hann segir að séu um 40 pró­sent af for­seta­launum. Honum finnst ekki við hægi að for­seti sé með 2,5 millj­ónir króna á mán­uði, heldur mun nær að hann sé með um eina milljón króna. „Þá finnst mér við hæfi að þjóðin fái mig frítt.“ Þetta kom fram í þætt­inum Eyjunni á Stöð 2.

Í þætt­inum gagn­rýndi Davíð Guðna Th. Jóhann­es­son, sem mælist með tæp­lega 70 pró­sent fylgi í könn­unum um hver eigi að vera næsti for­seti, harð­lega fyrir ýmsar skoð­anir sínar. Davíð sagði að Guðni Th. hafi þau sjón­ar­mið gagn­vart stjórn­ar­skránni að hann vilji koll­varpa henni, sem Davíð finnst rangt. Davíð sagði einnig að Guðni Th. hefði barist fyrir Icesave-samn­ing­unum með sömu rökum og rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og þar hafi hann verið á röngu róli.

Guðni hefur þessi sjón­ar­mið gagn­vart stjórn­ar­skránni, vill koll­varpa henni, sem mér finnst rangt. Guðni barðsit fyrir Icesave með sömu rökum og Jóhönnu­stjórnin. Hann var á röngu róli bless­aður í þessu máli. Guðni Th. hefði meðal ann­ars talað niður Þorska­stríðin sem hetju­dáð „þegar hann var að vinna að því að fá Icesave sam­þykkt.“

Davíð sagði þjóð­ina vita allt um sig, en ekk­ert um Guðna Th., sem hefði sagst vera með nýja sýn á emb­ætti for­seta en ekki útskýrt það neitt frekar. Davíð sagð­ist hafa útfærðar hug­myndir um að for­set­inn eigi að vera meira heima fyrir. Hann vilji fækka ferða­lögum um helm­ing, draga úr öllu prjáli og þiggja ekki laun. Með því myndi spar­ast umtals­verður kostn­aður og þá fjár­muni væri hægt að nota til að bjóða fólki til Bessa­staða.

Björn Ingi Hrafns­son, umsjón­ar­maður Eyjunnar, spurði Davíð einnig út í það þegar Davíð var ýtt úr úr Seðla­bank­anum í kjöl­far hruns­ins. Davíð sagði að ef skýrsla Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis sé les­inn þá komi á dag­inn að „það var Seðla­bank­inn einn sem stóð vakt­ina.“ Flestir sem vitni í skýrsl­una hafi hins vegar ekki lesið hana. „Nið­ur­staðan er sú að Seðla­bank­inn sá þetta [hrunið] fyrir, hann var­aði við og ekki veldur sá sem varar.“ Davíð gagn­rýndi enn fremur þá sem hafa sagt að hann hafi gert Seðla­banka Íslands tækni­lega gjald­þrota með hinum svoköll­uðu ást­ar­bréfa­við­skiptum við bank­anna. Aðspurður sagði hann til að mynda að hag­fræð­ing­arnir Gauti Egg­erts­son og Jón Steins­son, sem báðir starfa við háskóla í Banda­ríkj­unum sem eru á meðal þeirra virt­ustu í heimi, hafa talað eins og vit­leys­inga þegar þeir sögðu að Seðla­banki Íslands hefði orðið tækni­lega gjald­þrota.

Davíð sagði enn fremur að menn sem dæmdir hafa verið í Hæsta­rétti fyrir glæpi hafi haft menn á launum við að koma sök­inni á hrun­inu yfir á sig. Þar vís­aði hann vænt­an­lega í stjórn­endur föllnu bank­anna, en nefndi þá þó ekki sér­stak­lega.

Davíð mæld­ist með 17 pró­sent fylgi í síð­ustu skoð­ana­könnum um fylgi þeirra sem bjóða sig fram til for­seta. Guðni Th. hefur mælst með tæp­lega 70 pró­sent fylgi í þremur skoð­ana­könn­unum í röð.

Það skal tekið fram að Davíð þáði ekki boð Kjarnans um að koma í við­tal vegna for­seta­fram­boðs síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár