Frambjóðendur óákveðnir um framhaldið

Kjartan Magn­ús­son fram­bjóð­andi í odd­vita­próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins úti­lokar ekki að sækj­ast eftir sæti á lista flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum. Vil­hjálmur Bjarna­son og Viðar Guðjohn­sen vilja ekki sæti á list­anum.

Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins úti­lokar ekki að sækj­ast eftir sæti á lista flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar í vor. Kjartan hlaut 460 atkvæði í leið­toga­próf­kjöri í gær sem gerir alls 11,8 pró­sent af greiddum atkvæðum, en Eyþór Arnalds, fyrr­ver­andi odd­viti flokks­ins á Selfossi og vara­borg­ar­full­trúi, sigr­aði með afger­andi hætti og hlaut 3.826 atkvæði eða 61 pró­sent.

Í sam­tali við Kjarnann segir Kjartan að nú muni kjör­nefnd taka við og stilla upp á list­ann og fram­haldið verði bara að koma í ljós.

„Það getur vel verið að ég taki sæti á lista. Ég mun bara sjá hvernig þetta verður unnið, það er kannski svo­lítið snemma að ákveða þetta. Þetta er bara á for­ræði kjör­nefndar og ég mun bara hlusta á hvað hún hefur að segja.“

Kjartan segir Eyþór hafa fengið glæsi­lega kosn­ingu og óskar honum inni­lega til ham­ingju með það. En í kosn­ing­unni í gær hafi að aðeins verið kosið um efsta sæti á lista. „Ef það hefði verið kosið í venju­legu próf­kjöri þá held ég að maður hefði fengið góðan stuðn­ing í annað sæti á lista en það er held ég bara of snemmt að segja hvað verður,“ segir Kjartan.

Ásamt þeim Kjartani og Eyþóri voru þau Áslaug Frið­riks­dóttir borg­ar­full­trúi, Vil­hjálmur Bjarna­son fyrr­ver­andi Alþing­is­maður og Viðar Guðjohn­sen leigu­sali í fram­boði.

Vil­hjálmur seg­ist ekki munu sækj­ast eftir sæti á lista flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum.

„Ég ætla ekki að sækj­ast eftir sæti á list­anum. Ég er fluttur til baka í Garðabæ. Ég bauð mig fram til for­ystu til að taka leið­toga­sæti og ég hugs­aði nú með mér: „er þetta rétta fólkið sem er í fram­boði?“ En þetta er bara nið­ur­staðan og ég er alveg sáttur við hana,“ sagði Vil­hjálmur í sam­tali við Kjarnann. Vil­hjálmur fékk 193 atkvæði eða 4,9 pró­sent.

Viðar Guðjohn­sen ætlar ekki heldur að sækj­ast eftir sæti á lista. Hann seg­ist hafa farið í fram­boð til að vekja athygli á vissum mál­efnum í póli­tík­inni. Viðar fékk 65 atkvæði sem gerir 1,6 pró­sent.

„Þannig að þetta fram­boð mitt það tókst að því leiti að fjöl­miðlar sögðu alla­vega frá alls konar vinklum á póli­tík sem að mér finnst vera í miklum doða. Ég er ekki að leita eftir öðru starfi, en mér finnst póli­tíkin í Reykja­vík og ekki síður á lands­vísu og þá sér­stak­lega hvernig fjöl­miðlar hafa hagða sér komna út í vit­leysu. En það tókst að vekja athygli á þessu og ég er full­kom­lega sáttur og held að Sjálf­stæði­flokknum muni vegna mjög vel með Eyþóri Arnalds,“ sagði Viðar.

Áslaug Frið­riks­dóttir fékk rúm 20 pró­sent atkvæða í leið­toga­kjör­inu, eða 788 í sinn hlut. Hún þakk­aði stuðn­ings­mönnum sínum fyrir stuðn­ing­inn í stöðu­upp­færslu sem hún setti á Facebook í dag. „Þetta var snörp og góð bar­átta sem ég er stolt af. Úrslit eru ljós og Eyþór Arnalds er sig­ur­veg­ari próf­kjörs­ins, ég óska honum til ham­ingju með það. Næsta verk­efni er að stilla upp sig­ur­strang­legum lista og sú vinna í höndum kjör­nefndar,“ segir Áslaug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár