Bikiní- og stuttbuxnadeilan

Nýaf­staðið Evr­ópu­meist­ara­mót í strand­hand­bolta vakti mikla athygli víða um heim. Það var þó ekki keppnin sjálf sem dró að sér athygl­ina heldur deilur um klæðnað. Nánar til­tekið klæðnað norska kvenna­lands­liðs­ins.

Norska kvennaliðið í strandhandbolta að loknu Evrópumeistaramótinu í Búlgaríu á dögunum.
Norska kvenna­liðið í strand­hand­bolta að loknu Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í Búlgaríu á dög­unum.

Á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar var borg­ar­stjór­inn í spænska strand­bænum Benidorm bann­færður af kaþ­ólsku kirkj­unni. Ástæðan var sú að hann birti til­kynn­ingu þar sem fram kom að konum væri heim­ilt að klæð­ast tví­skiptum bað­fötum, buxum og brjósta­hald­ara.

Þessi klæðn­aður nefnd­ist bik­iní. Nafnið var þó eldra. Árið 1946 aug­lýsti Frakkinn Louis Rérard bað­fatnað sem hann nefndi bik­ini eða bik­iní. Móðir hans hafði rekið nær­fata­verslun en eftir hennar dag tók Louis Rérad við rekstr­inum og fór sjálfur að dunda sér við fata­hönnun. Hann hafði séð vegg­myndir frá tímum Rómverja og það vakti athygli hans að þar mátti sjá stúlkur klæddar tví­skiptum bað­fötum.

[adspot]

Louis Rérad gekk illa að fá stúlkur til að láta mynda sig fyrir aug­lýs­ing­arnar, en fékk loks Michelini Bern­ar­dini 19 ára gamla nekt­ar­dans­mær, til að sitja fyrir á aug­lýs­inga­mynd­unum, þar sem nafl­inn á fyr­ir­sæt­unni sást. Þótt bað­fatn­aður af þessu tagi hefði áður sést hafði ekki tíðkast að nafl­inn sæist, nema hjá Róm­verj­unum til forna. Aug­lýs­ingin vakti mikla athygli og Michelini Bern­ar­dini fékk á næstu vikum 50 þús­und bréf frá aðdá­endum. Nafnið bik­iní er dregið af sam­nefndri eyju í Kyrra­haf­inu.

Vinsælt en umdeilt

Á árunum um og eftir 1950 juk­ust vin­sældir bik­inís­ins og margar þekktar kvik­mynda­stjörnur létu mynda sig í þessum „tísku­fatn­aði“ og þær myndir birt­ust í blöðum og tíma­ritum víða um heim.

Árið 1951 efndi Bretinn Eric Morley til keppni sem hann nefndi Festival Bikini Contest. Keppnin fékk síðar heitið Miss World. Í þess­ari fyrstu keppni bar sænska stúlkan Kiki Håkans­son sigur úr býtum. Við verð­launa­af­hend­ing­una klædd­ist hún bik­iní, það mælt­ist mis­jafn­lega fyrir og meðal ann­ars for­dæmdi páf­inn vinn­ings­hafann. Árið 1952 var ákveðið að þátt­tak­endur í áður­nefndri keppni myndu ekki koma fram í bik­iní en það breytt­ist svo aftur mörgum árum síðar. Þess má geta að Kiki Håkans­son er eina stúlkan sem tekið hefur á móti verð­launum í þess­ari keppni íklædd bik­iní.

Víða mætti bik­iní and­stöðu og ástæð­urnar voru ýmsar. Klæðn­að­ur­inn þótti djarfur og jafn­vel ýta undir „und­ar­legar kenndir“ eins og virtur þýskur fjöl­mið­ill komst að orði. Líka heyrð­ust raddir um að bik­iní væri lít­il­lækk­andi fyrir konur, það væri verið að gera kven­lík­amann að sölu­vöru.

Eitt þekktasta bik­iní allra tíma er vafa­lítið „hvíta bik­iníið“ sem leik­konan Ursula Andress klædd­ist árið 1962 í kvik­mynd­inni Dr. No, fyrstu mynd­inni um njó­sn­ara hennar hátignar, James Bond.

Smám saman juk­ust vin­sældir bik­inís­ins og er það í dag víða um heim við­ur­kenndur bað- og sund­fatn­aður.

Reglur evrópska handknattleikssambandsins

Hann hefði lík­lega brosað út í annað borg­ar­stjór­inn í Benidorm ef hann er á lífi og hefði séð fréttir frá Evr­ópu­mót­inu í strand­hand­bolta sem fór fram í Varna í Búlgaríu. Það var ekki keppnin sjálf sem vakti mesta athygli heldur frétt­irnar af mót­mælum norsku stúlkn­anna vegna reglna um klæða­burð. Þær fréttir fóru víða um um heim.

Reglur evr­ópska hand­knatt­leiks­sam­bands­ins, EHF, um fatnað kepp­enda í strand­hand­bolta eru ekki þær sömu fyrir bæði kyn. Í reglum fyrir karl­ana segir að þeir skuli vera í stutt­buxum, ekki alltof víðum og skálm­arnar ekki lengri en svo að 10 senti­metrar séu að hné. Bolur skal vera erma­laus.

Varðandi kon­urnar eru regl­urnar mun ítar­legri. Þær eiga að vera í bik­iní og bux­urnar mega ekki vera meira en 10 senti­metrar á hlið­unum, sniðið þannig að séð framan frá lík­ist bux­urnar þrí­hyrn­ingi. Efri hlut­inn, brjósta­hald­ar­inn, skal vera þröngur og ekki aðskor­inn undir hand­ar­krik­anum.

Þessar reglur hafa lengi verið umdeildar en stjórn EHF hefur setið við sinn keip og ekki hlustað á fjöl­margar kvart­anir.

Norsku stúlkurnar kvörtuðu

Meðal norska kvenna­lands­liðs­ins í strand­hand­bolta hafa lengi heyrst óánægju­raddir vegna reglna EHF um bik­iní­klæðn­að­inn. Í nýlegu við­tali við norska sjón­varpið, NRK, sagð­ist lands­liðs­konan Katinka Haltvik þekkja dæmi þess að stúlkur vildu ekki spila strand­hand­bolta vegna bik­iníregln­anna. „Í upp­hafi var ég upp­tekn­ari af því að passa uppá að bux­urnar villt­ust ekki af leið á kroppnum en af leiknum sjálfum. Þessar reglur settu mið­aldra og gamlir karlar og þær eru ill­skilj­an­legar, alla­vega fyrir kven­fólk.“

Á ráð­stefnu EHF í apríl á þessu ári lögðu full­trúar norska hand­knatt­leiks­sam­bands­ins fram til­lögu um breyt­ingar á bik­iní­regl­unum. Til­lög­unni var ágæt­lega tekið en þegar Evr­ópu­keppnin hófst 13. júlí sl. voru regl­urnar óbreyttar. Norska liðið til­kynnti að það myndi mæta í stutt­buxum til keppni. EHF svar­aði með hót­unum um sekt og hugs­an­lega brott­rekstri úr keppn­inni. Þegar þær norsku hófu keppni mættu þær í bik­iní­bún­ingnum, að sögn til að verða ekki vísað úr keppn­inni. En stutt­buxna­mál­inu var ekki lokið.

Mættu í stuttbuxum til að spila um bronsið

Þegar norska liðið mætti til að spila um bronsið (töp­uðu fyrir Spán­verjum) voru stúlk­urnar allar í stutt­buxum. Þetta fór fyrir brjóstið á stjórn EHF sem aflýsti ekki leiknum en til­kynnt að honum loknum að norska liðið yrði sektað um 1500 evrur (220 þús­und íslenskar) fyrir að brjóta bik­iní­regl­urnar. Kåre Geir Lio, for­maður norska hand­knatt­leiks­sam­bands­ins sagði að sam­bandið myndi, með ánægju, borga þessa sekt. „Við höfum stutt stúlk­urnar, regl­urnar eru von­lausar og við höfum árum saman talað fyrir breyt­ingum á klæðn­að­inum.“

Stuðningur víða að skapar þrýsting

Fjöl­margir hafa lýst stuðn­ingi við þá ákvörðun norska strand­hand­boltaliðs­ins að krefj­ast breyt­inga. Fréttir af því þegar norsku stúlk­urnar mættu til leiks í stutt­buxum, og sekt­ar­hót­unum EHF, vöktu athygli víða um heim. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið og lýst stuðn­ingi við norsku stúlk­urnar er söng­konan Pink. Hún sagð­ist með glöðu geði borga þær sektir sem liðið fengi.

Nú hefur stjórn Evrópska hand­knatt­leiks­sam­bands­ins til­kynnt að unnið verði að breyt­ingum á bik­iní­regl­unum. Tals­maður sam­bands­ins sagði að breyt­ingar yrði að gera í sam­vinnu við, og á vegum, Alþjóða hand­knatt­leiks­sam­bands­ins. Norska lands­liðs­konan Katinka Haltvik sagð­ist hreykin af stað­festu lands­liðs­ins „nú verða breyt­ingar, sjálf­sagðar breyt­ingar. Þetta er bara einn liður í jafn­rétt­is­bar­átt­unni“.

Í þessu sam­hengi má geta þess að fim­leika­stúlk­urnar sem kepptu fyrir hönd Þýska­lands á Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó fyrir nokkrum dögum klædd­ust ökkla­síðum „heil­galla“ í stað „sund­bols“ eins og eitt þýsku dag­blað­anna komst að orði. Fim­leika­bolur væri kannski rétt­ara orð. Í við­tölum sögðu nokkrar úr hópnum að þeim þætti heil­gall­inn ein­fald­lega þægi­legri og þjálf­ar­arnir hefðu sagt að vita­skuld ættu þær að klæð­ast því sem þær vildu helst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár