Dregur framboðið til baka – „Unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einkalífi“

Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir hefur ákveðið að draga fram­boð sitt til for­mennsku í SÁÁ til baka. Hún og Kári Stef­áns­son segja sig jafn­framt úr aðal­stjórn sam­tak­anna.

Þóra Kristín Ásgeirs­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi Kára Stef­áns­sonar for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, sem bauð sig fram til for­mennsku í SÁÁ fyrr í vik­unni hefur dregið fram­boðið til baka og sagt sig úr aðal­stjórn sam­tak­anna.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hennar í dag en sam­kvæmt Þóru Kristínu hefur Kári einnig sagt sig úr aðal­stjórn SÁÁ.

„Eftir að 40 manns úr 48 manna stjórn SÁÁ skor­uðu á mig að fara í fram­boð til for­manns SÁÁ lét ég slag standa enda um stórt og spenn­andi verk­efni að ræða á sviði sem varðar eitt mik­il­væg­asta mál sam­fé­lags­ins. Fjöldi fólks lét í sér heyra og hvatti mig áfram og það þótti mér vænt um.

Ég vissi fyr­ir­fram að það ríkir hálf­gert stríðs­á­stand í þessum sam­tökum og hef ég ekki farið var­hluta af því þótt það sé barist að tjalda­baki. Nú er unnið að því leynt og ljóst að safna glóðum elds að höfði mér úr mínu einka­lífi og þar er af nógu að taka enda hef ég líkt og aðrir sem hafa farið í áfeng­is­með­ferð, lent á vegg í líf­inu og gert og sagt hluti sem ég er ekki stolt af,“ skrifar hún.

Þóra Kristín segir jafn­framt að það sé sýnu alvar­legra að fyrr­ver­andi stjórn­endur SÁÁ séu líka að hlaða í bál­köst á sam­fé­lags­miðlum fyrir Kára Stef­áns­son yfir­mann hennar og náinn vin sem hafi einnig gert margt í sinni for­tíð undir áhrifum áfengis sem hann hefði betur látið ógert og sitji líkt og hún í aðal­stjórn SÁÁ og sé löngu hættur að drekka.

Vildi stilla til friðar – en ekki auka á ófriðinn

„Þá hefur einnig verið reynt að gera það tor­tryggi­legt að ég sem starfs­maður Íslenskrar erfða­grein­ingar og Kári Stef­áns­son séum að láta til okkar taka í starfi SÁÁ vegna sam­starfs við sjúkra­hús sam­tak­anna um rann­sóknir.

Ég lýsti því strax yfir að ég ætl­aði ekki að fara í fullt starf sem for­maður, heldur halda áfram með líf mitt og stjórna sam­tök­unum með þvi góða fólki sem situr í fram­kvæmda­stjórn. Löngun mín var að stilla til friðar en ekki að auka á ófrið­inn. Ég ætla því ekki að leggj­ast í stríðs­rekstur og vil hvorki fórna starfi mínu né æru minni og yfir­manns míns fyrir sjálf­boða­vinnu fyrir sam­tökin,“ skrifar hún.

Þóra Kristín dregur fram­boð sitt til baka til for­mennsku og setu í fram­kvæmda­stjórn í von um að þau finni sér for­mann sem sé óum­deildur. „Hættan er sú að að það sé erfitt í sam­tökum þar sem meiri­hlut­inn hefur átt við áfeng­is­vanda að stríða ein­hvern hluta ævinnar og verið ger­endur og þolendur allskyns ofbeldis, flestir hvortveggja. Bæði ég og Kári Stef­áns­son segjum okkur þar með úr aðal­stjórn sam­tak­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár