Forsetinn gefur flokkunum viku til að ræða saman

Hann hefur gefið for­ystu­fólki stjórn­mála­flokk­anna þessa viku til að gera loka­til­raun til að mynda rík­is­stjórn.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hyggst ekki veita neinum stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið að sinni en eins og kunn­ugt er hafa Birgitta Jóns­dóttir, Smári McCarthy og Einar Brynj­ólfs­son til­kynnt for­set­anum um að ekki hafi tek­ist að mynda rík­is­stjórn.

Guðni hefur hvatt for­ystu­fólk stjórn­mála­flokk­anna til að sýna ábyrgð og bregð­ast við þeirri alvar­legu stöðu sem komin er upp í íslenskum stjórn­málum. Hann gaf flokk­unum þessa viku til að ná saman um myndun rík­is­stjórnar. „Síðdegis í dag til­kynntu Birgitta, Einar og Smári mér að þær við­ræður hefðu ekki leitt til mynd­unar rík­is­stjórnar. Á fundi okkar á Bessa­stöðum skil­aði hún mér umboði til stjórn­ar­mynd­unar. Í dag hef ég rætt við for­menn ann­arra stjórn­mála­flokka á Alþingi um þá alvar­legu stöðu sem upp er komin. Rúmar sex vikur eru liðnar frá kosn­ingum þegar ráðu­neyti Sigurðar Inga Jóhanns­sonar missti meiri­hluta sinn á þingi og hann baðst lausnar fyrir hönd þess. Nú hafa for­menn eða full­trúar þriggja stærstu flokk­anna á Alþingi allir haft umboð for­seta til stjórn­ar­mynd­unar. Ýmsar leiðir hafa verið ræddar og reyndar. Í ljósi þeirra sjón­ar­miða sem fram komu í við­ræðum mínum við flokks­leið­toga í dag hef ég ákveðið að veita engum þeirra umboð til stjórn­ar­mynd­unar að sinni. Þess í stað hvatti ég þá til að ráða ráðum sínum og kanna með óform­legum við­ræðum sín á milli hvaða leiðir eru enn mögu­legar til mynd­unar rík­is­stjórnar sem njóti meiri­hluta­stuðn­ings á Alþingi eða geti að minnsta kosti varist þar van­trausti. Í sam­tölum mínum við for­ystu­fólk flokk­anna nefndi ég einnig þau brýnu verk­efni sem bíða úrlausnar á Alþingi og krefj­ast góðrar sam­vinnu og sam­stöðu. Loks minnti ég flokks­leið­tog­ana á þá ábyrgð þeirra og skyldu að ná sam­komu­lagi um myndun rík­is­stjórnar. Ég tjáði þeim að ég vænti tíð­inda í þeim efnum í þess­ari viku,“ segir í til­kynn­ingu for­seta­emb­ætt­is­ins.

Nú hafa þrjár form­legar til­raunir til að mynda rík­is­stjórn siglt í stranda. Fyrst fékk Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, umboð til að mynda rík­is­stjórn en sú til­raun gekk ekki upp, en við­ræður fóru þá fram milli Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar. Í tvíganga hafa svo við­ræður fimm flokka runnið út í sand­inn. Fyrst undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur, og síðan undir for­ystu Birgittu Jóns­dóttur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár