Frosti: „Formlega rétt“ að Sigmundur braut siðareglur

Það er „form­lega rétt“ að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra braut siða­reglur ráð­herra, segir Frosti Sig­ur­jóns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þetta kom fram í þætt­inum Viku­lok­unum á Rás 1. Þegar hann var svo spurður um það aftur hvort Sig­mundur Davíð hefði brotið siða­regl­urnar með því að upp­lýsa ekki um félag eig­in­konu hans, Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, á Tortóla sagð­ist hann ekki ætla að leggja mat á það. Það sem skipti máli væri hvort hann hefði látið málið hafa áhrif á störf sín, og það hefði hann ekki gert.

Frosti segir að þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi ekki vitað af félagi Önnu Sig­ur­laugar á Tortóla áður en upp­lýst var um málilð. Áður hefur komið fram að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins vissi ekki um félagið, en Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hefur engu að síður sagt að félagið hafi alltaf verið öllum ljóst og aldrei hafi verið reynt að fela það. 

Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var einnig gestur í Viku­lok­unum og hann segir það mjög óþægi­legt fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að standa and­spænis mál­inu. Sig­mundur hafi setið beggja vegna borðs­ins í tengslum við vinnu við upp­gjör föllnu bank­anna. „Það er eins og menn skilji ekki van­hæfi og hags­muna­tengsl,“ sagði hann. Í ýmsum málum sé hangið á forms­at­riðum eins og að lög hafi ekki verið brotin. Alltaf eigi að upp­lýsa um hags­muna­tengsl. „Auðvitað rýrir þetta traust mitt á hinum flokknum í þessu sam­starfi.“

Óttarr Proppé, þing­maður og for­maður Bjartrar fram­tíðar, og Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður VG, voru einnig gestir í Viku­lok­unum og gagn­rýndu mál­flutn­ing Frosta og Sigmund Davíð einnig. Óttarr tal­aði um það að það litla traust sem stjórn­mála­menn njóti á Íslandi bygg­ist á hrein­skilni og svona hlutir eigi að vera uppi á yfir­borð­inu. Svandís sagði ljóst að Sig­mundur hefði átt að greina frá mál­inu fyrr, hann hafi við­ur­kennt að hafa hugsað um að gera það árið 2013, en hún sagð­ist spyrja sig að því hvort hann hafi ekki gert það vegna þess að það hefði haft áhrif á kjör­fylgi hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár