„Þær voru ekkert skaplausar, þessar konur“

Syst­urnar úr St. Franciskusreglunni settu sinn svip á bæj­ar­lífið í Stykk­is­hólmi, þar sem þær reistu spít­ala, stofn­uðu leik­skóla og prent­smiðju, auk þess sem þær sinntu hjúkrun og ljós­mæðra­störfum. Dagbjört Hösk­ulds­dóttir ólst upp í næsta húsi við klaustrið, þar sem börnin stálu rófum og rifs­berjum. Hún rifjar upp kynni sín af systr­unum, sem er sárt saknað.

Systur í St. Franciskusreglunni settu sterkan svip á bæj­ar­lífið í Stykk­is­hólmi í tæpa öld. Þær komu til lands­ins árið 1935 til að vinna að upp­bygg­ingu sjúkra­húss í bænum sem var vígt ári síðar en síðan unnu syst­urnar meðal ann­ars við hjúkrun og sem ljós­mæður, ráku sum­ar­búðir fyrir börn og stofn­uðu bæði leik­skóla og prent­smiðju. Dagbjört Hösk­ulds­dóttir man vel eftir systr­unum í bænum og um ára­bil bjó hún í næsta húsi við klaustrið. St. Franciskusreglan ákvað að hætta starf­semi í Stykk­is­hólmi árið 2009 en þá mættu þrjár systur af Mar­íu­reglu í Hólminn. 

„Ég var frekar gömul sál sem lítið barn og var mikið ein með móður minni,“ segir Dagbjört Hösk­ulds­dóttir. „Ég hef verið fjög­urra eða fimm ára þegar ég spurði hana að því hver væri ljósa mín; hver hafi hjálpað henni þegar hún fæddi mig. Hún sagði að það hafi verið „svarta systir“. Sú systir var af annarri grein þess­arar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár