„Brexit hefur losað mikla krafta úr læðingi“

Utan­rík­is­ráð­herra segir að útganga Bret­lands úr ESB hafi losað mikla krafta úr læð­ingi og það sé Íslands að fanga þá krafta. Hann segir Ísland í öfunds­verðri stöðu þegar kemur að frí­verslun.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Brexit hefur losað mikla krafta úr læð­ingi og það er okkar hlut­verk að fanga þá krafta og vera áfram í far­ar­broddi þegar kemur að frí­verslun,“ sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra á þingi í gær, í sér­stakri umræðu um frí­versl­un­ar­samn­inga. 

„Bretar vilja losna við þær viðjar sem sam­eig­in­leg við­skipta­stefna ESB skapar og vill breska rík­is­stjórnin skapa sér sveigj­an­leika til að geta sinnt alþjóð­legri hags­muna­gæslu á eigin for­sendum. Verkefni íslenskra stjórn­valda er aug­ljóst. Það er að tryggja a.m.k. óbreyttan aðgang að breska mark­aðnum í kjöl­far útgöngu Breta, og helst betri, og jafn­framt að tryggja rétt­indi íslenskra rík­is­borg­ara sem búsettir eru eða starfa í Bret­landi,“ sagði utan­rík­is­ráð­herra.

Hann sagði einnig að Ísland stæði vel að vígi þegar kemur að frí­versl­un­ar­málum, og sé í öfunds­verðri stöðu. „Við erum með okkar eigin við­skipta­stefnu og erum ekki ríg­bundin öðrum ríkjum þegar kemur að mark­aðs­sókn fyrir íslenska hags­muni. Aðild okkar að EFTA hefur verið og mun áfram vera hryggjar­stykkið í frí­versl­un­ar­málum okkar, enda hafa EFTA-ríkin sótt fram af miklum krafti á síð­ustu árum og víkkað og dýpkað frí­versl­un­ar­net sitt veru­lega með samn­ingi við alls 38 ríki.“

Mikil aukning í viðskiptum við Kína

Vöru­við­skipti milli Íslands og Kína hafa auk­ist um 20 pró­sent eftir að frí­versl­un­ar­samn­ingur var gerður milli ríkj­anna tveggja. Heild­ar­vöru­við­skiptin námu tæpum 62 millj­örðum króna í fyrra, miðað við 51 millj­arð árið 2014, sagði Guð­laugur Þór. „Það er mik­ils­vert að meta að þetta sneri ekki bara að útflutn­ingi heldur hefur þetta líka skilað sér til neyt­enda í lægra vöru­verði á fatn­aði, skóm, raf­tækjum og ann­ars konar varn­ingi sem fram­leiddur er í Kína og fluttur hingað til lands. Net­verslun við Kína hefur sömu­leiðis auk­ist gíf­ur­lega,“ sagði Guð­laugur Þór.

Utan­rík­is­ráð­herra sagði einnig að á örfáum árum hafi frí­verslun í heim­inum ger­breyst, og það gefi auga­leið að ef útflutn­ings­drifið hag­kerfi eins og það íslenska á að dafna í harðri sam­keppni verðum við að vera einu skrefi á undan öðrum. „Staðan er ein­föld: Við eigum allt undir frjálsum og hindr­un­ar­lausum við­skiptum. Við getum ekki leyft okkur að slaka á kröfum. Stjórn­völd hvers tíma verða ávallt að vera á tánum, í stöð­ugu sam­ráði við útflutn­ings­grein­arnar, vera fram­sýn og virkja þau úrræði sem okkur standa til boða. Þetta á að sjálf­sögðu við um íslenska neyt­endur sem verða varir við hindr­un­ar­leysi í frí­verslun með afnámi tolla, auknu vöru­úr­vali, lægra vöru­verði. Velmegun okkar bygg­ist á aðgengi að erlendum mörk­uðum.“

Þá tal­aði Guð­laugur Þór um nið­ur­fell­ingu tolla og sagði að frá upp­hafi þessa árs hafi toll­frelsi verið komið á 7.700 toll­núm­erum af þeim 8.601 toll­núm­erum sem til eru í íslenskri tolla­skrá, „sem þýðir í raun að 90% toll­frelsi ríki í land­inu.“ Þar til við­bótar sé toll­frelsi á vissum hefð­bundnum land­bún­að­ar­vörum, og varla hægt að tala um toll­múra í sam­hengi við við­skipta­stefnu Íslands. „Það sem eftir stendur eru ein­stakar teg­undir af því sem við köllum hefð­bundnar land­bún­að­ar­vörur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár