Næsta mál: Nígería í Volgograd

Eftir fræk­inn „sigur“ á Argent­ínu þar sem íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu gerði jafn­tefli við lið Argent­ínu í gær í ótrú­legum fyrsta leik liðs­ins á þessu stærsta sviði knatt­spyrn­unnar í heimi er komið að því að ein­beita sér að næsta verk­efni.

Eftir fræk­inn „sigur“ á Argent­ínu þar sem íslenska karla­lands­liðið í knatt­spyrnu gerði jafn­tefli við lið Argent­ínu í gær í ótrú­legum fyrsta leik liðs­ins á þessu stærsta sviði knatt­spyrn­unnar í heimi er komið að því að ein­beita sér að næsta verk­efni.

[links]Liðið mætir lands­liði Nígeríu í borg­inin Vol­gograd næst­kom­andi föstu­dag. Verk­efnið, þrátt fyrir að lið Nígeríu sé í tölu­vert lægra styrk­leika­flokki en hið argent­ínska, er ekki auð­velt og mun ekki síður krefj­ast kænsku og skipu­lags en það sem fram fór í gær með hinum glæsta árangri.

[adspot]Nígeríska liðið

Lið Nígeríu er í 48. sæti á styrk­leika­lista FIFA á meðan hið íslenska er í því 22. Til sam­an­burðar er lið Argent­ínu í því 5. og lið Króata í 20. sæti.

Níger­íska liðið laut í lægra haldi fyrir því króat­íska í gær, 2-0, í nokkuð jöfnum leik, þrátt fyrir að að honum loknum hafi sigur Króata verið nokkuð sann­fær­andi. Bæði lið sóttu ágæt­lega, en sér­fræð­ingar Fótbolta.net telja í leik­grein­ingu sinni að dag­skipun Króata hafi verið að la´ta reyna á hinn 19 ára gamla Francis Uzoho í marki Nígeríu.

Fyrra markið var sjálfs­mark á 32. mín­útu eftir skalla frá Mandzukic í leik­mann­inn Oghenekaro Etebo og þaðan rataði bolt­inn í markið. Seinna markið kom úr víta­spyrnu sem fyr­ir­lið­inn Luka Modric nýtti með öruggum hætti. Vítið var dæmt eftir horn­spyrnu á 70. mínutu en William Troost-Ekong braut á Mandzukic með því að bók­staf­lega halda utan um hann og halda honum þannig niðri. Troost-Ekong fékk að launum dæmt á sig vítið sem og gult spjald.

Níger­íu­menn reyndu hvað þeir gátu að minnka mun­inn það sem eftir lifði leik sem tókst ekki. Króatar sitja því á toppi rið­ils­ins eftir fyrstu umferð­ina en Níger­íu­menn eru stiga­lausir í því neðsta.

Tækifæri Íslend­inga virð­ast liggja í föstum leikatriðum, sem Níger­íu­menn áttu í erf­ið­leikum með í gær, enda hafa styrk­leikar íslenska liðs­ins sann­ar­lega legið þar und­an­farin miss­eri.

Telja má lík­legt að Níger­íu­menn mæti nokkuð ákveðið til leiks, enda mik­il­vægt fyrir þá að fá eitt­hvað út úr leiknum gegn Íslandi, ann­ars verða þeir úr leik.

Fótbolti.net greinir frá því að Níger­íu­menn hafi prófað að spila með þriggja manna vörn í aðdrag­anda HM og Rohr segir mögu­leika á að hann stilli upp í slíkt kerfi gegn Íslandi á föstu­dag­inn. „Hver leikur er mis­mun­andi. Við vitum að við getum spilað með þrjá mið­verði en þetta var ekki góður dagur til þess í dag," sagði Rohr eftir leik­inn gegn Króatíu í gær.

Nígería

Nígería er fjöl­menn­asta land Afríku, þar sem búa tæp­lega 180 millj­ónir manna.

Nígería er sjö­unda fjöl­menn­asta land heims. Olíu­lindir við ósa Níger hafa fært land­inu mikil auð­æfi. Nígería er tólfti stærsti elds­neyt­is­fram­leið­andi heims og aðili að Samtökum olíu­fram­leiðslu­ríkja frá 1971. Olíu­af­urðir mynda um 40% af útflutn­ingi lands­ins. Alþjóða­bank­inn skil­greinir Nígeríu sem nývaxt­ar­land og býst við því að landið taki við af Suður-Afríku sem stærsta hag­kerfi álf­unnar. Nígería er í Afr­íku­sam­band­inu sem og Breska sam­veld­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hm2018

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár