16 ára gugusar gefur út fyrstu plötu

Safnað er fyrir útgáfu plöt­unnar Listen To This Twice á Karolina fund.

Guðlaug Sóley Hösk­ulds­dóttir, eða gugusar, er 16 ára tón­list­ar­kona sem er að gefa út sína fyrstu plötu. Hún sér sjálf um að semja tón­list­ina og taka hana upp. Árni Grétar, Futuregrap­her, sér um að mixa og mastera plöt­una.

gugusar hefur nú þegar gefið út 3 lög sem hægt er að finna á spotify og hafa þau fengið frá­bær við­brögð.

Lagið I´m not supp­osed to say this er meðal ann­ars á vin­sæld­ar­lista rásar 2. Í fyrra tók gugusar þátt í mús­íktil­raunum og var valin raf­heili til­raun­anna en hún er upp­renn­andi lista­maður sem á mikið inni.

[adspot]Spenn­andi hlutir eru framundan hjá henni en mun hún meðal ann­ars spila í fyrsta skipti á Iceland Airwaves í haust.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég hef alltaf haft tón­list­ina í mér og fyrsta lagið sem ég samdi var klass­ískt píanó verk svo það má segja að tón­listin hafi þró­ast mikið síðan þá. Eftir að ég byrj­aði að semja raf­tón­list þá komu lögin hvert á fætur öðru og þá fannst mér til­valið að gefa út heila plötu.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Lögin mynd­ast oft­ast hjá mér á gítar eða píanó og ég færi þau síðan yfir í töv­una þar sem þau halda áfram að þró­ast þangað til ég er ánægð. Mér þykir mik­il­vægt að fylgja hjart­anu og reyni ég að gera hluti sem eru öðru­vísi eins og til dæmis að láta lengd lag­anna ekki endi­lega fylgja hefð­bundnum stöðlum.

Platan Listen To This Twice er fysta plata gugusar og mun hún koma út í heild sinni 29. febr­úar og eftir það kemur hún einnig á vínyl. Hægt er að taka þátt í útgáf­unni með því að styrkja verk­efnið á Karolina­fund en þar er hægt að kaupa vínyl plötu í for­sölu eða miða á útgáfu­tón­leik­ana.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár