Forsætisráðuneytið semur nýjar siðareglur fyrir ráðherra

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur brugð­ist við ábend­ingum umboðs­manns Alþingis í kjöl­far Leka­máls­ins. Unnið er að nýjum siða­reglum og búið er að upp­færa reglur um sam­skipti og erind­is­bréf fyrir aðstoð­ar­menn.

For­sæt­is­ráðu­neytið vinnur nú að því að setja nýjar siða­reglur fyrir ráð­herra, í sam­ráði við öll ráðu­neytin. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við bréfi umboðs­manns Alþingis, sem óskaði eftir við­brögðum við bréfi sem hann sendi til Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í kjöl­far leka­máls­ins. Sig­mundur Davíð sagði á þingi í jan­úar í fyrra að for­sæt­is­ráðu­neytið myndi skoða allar athuga­semdir umboðs­manns Alþingis.

Sig­mund­ur Da­víð und­ir­rit­aði aldrei ­siða­reglur fyrir hönd rík­is­stjórnar sinnar. Á meðan siða­reglur hafa ekki verið und­ir­rit­aðar hafa regl­urnar sem rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur setti og rík­is­stjórn Sig­mundar Davíð sagð­ist líta til ekki stjórn­sýslu­leg­t ­gildi. Umboðs­maður Alþing­is, sem á að gæta þess sam­kvæmt lög­um að stjórn­sýslan fari fram í sam­ræmi við siða­regl­urn­ar, get­ur því ekki látið í ljós álit sitt á því hvort brotið hafi verið gegn siða­regl­um. „Það er afstaða mín að umboðs­maður Alþingis geti ekki byggt á því að siða­reglur fyrir ráð­herra nr. 360/2011 gildi um störf ráð­herra í núver­andi rík­is­stjórn nema til komi form­leg­t ­sam­þykki rík­is­stjórn­ar­innar á þeim regl­u­m,“ skrif­aði Tryggvi G­unn­ars­son, umboðs­maður Alþing­is, í bréfi til Sig­mundar Dav­íðs ­fyrir rúmu ári síð­an. Umboðs­maður geti því ekki haft eft­ir­lit með því að stjórn­sýsla starfi í sam­ræmi við siða­reglur nema reglur hafi verið settar með réttum og form­legum hætti. Orða­lagið í lög­unum sé ekki skýrt og það sé ekki ljóst hvort siða­reglur fyrri rík­is­stjórnar gild­i. 

Tryggvi benti á skort á stað­fest­ingu í Leka­mál­inu

Þeg­ar sá þáttur leka­máls­ins sem snéri að Hönnu Birn­u Krist­jáns­dótt­ur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, stóð sem hæst ­skrif­uð­ust Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþing­is, og Sig­mund­ur Da­víð á. Tryggvi sendi Sig­mundi Davíð bréf þar sem hann bent­i á að siða­reglur síð­ustu rík­is­stjórnar hafi aðeins átt að ­gilda út starfs­tíma henn­ar, og ekki verði séð að rík­is­stjórn­ ­Sig­mundar hefði sam­þykkt nýjar siða­reglur eftir að hún tók við völd­um. Tryggvi óskaði eftir því að Sig­mundur Davíð upp­lýsti hann um það hvort búið væri að sam­þykkja regl­ur, og óskaði eft­ir af­riti ef svo væri. Ef ekki væri búið að sam­þykkja siða­regl­ur var óskað eftir afstöðu Sig­mundar til þess hvort siða­regl­ur ­síð­ustu rík­is­stjórnar giltu áfram í hans rík­is­stjórn.

Sig­mundur Dav­íð svar­aði bréf­inu skömmu síðar og sagði að rík­is­stjórnin hefð­i litið svo á að siða­regl­urnar frá árinu 2011 ættu við um störf ráð­herra. Þeir hafi fengið kynn­ingu á regl­unum í upp­hafi ­starfs­tíma rík­is­stjórn­ar­inn­ar, og þær hafi verið hluti af hand­bók sem þeir fengu all­ir. Sig­mundur Davíð sagði líka að siða­regl­ur ráð­herra og hugs­an­legar breyt­ingar á þeim hafi komið til umræð­u í rík­is­stjórn, og ekki væri ólík­legt að ráð­ist yrði í breyt­ingar þannig að þær yrðu skýrðar og ein­fald­að­ar. Það hefur ekki verið gert. Hins vegar var greint frá því í des­em­ber 2014 að rík­is­stjórnin hygð­ist auka vægi og eft­ir­fylgni með siða­reglum innan Stjórn­ar­ráðs­ins, meðal ann­ars í sam­ráði við umboðs­mann Alþingis og Rík­is­end­ur­skoð­un. Í því skyni voru lagðar til breyt­ingar á lögum um Stjórn­ar­ráð­ið.

Þeg­ar ­um­boðs­maður Alþingis hafði lokið athugun sinni á Leka­mál­in­u sendi hann for­sæt­is­ráð­herra bréf með ábend­ingum, meðal ann­ar­s um sam­þykkt siða­reglna.

„Þeg­ar það kemur í hlut umboðs­manns Alþingis að leggja mat á hvort til­teknar reglur sem hann á að hafa eft­ir­lit með hafi gilt um ­at­hafnir stjórn­valds þarf að huga að því hvort þær hafi ver­ið ­settar með réttum hætti […] Ég til hins vegar vafa leika á því hvort þær hafi verið settar með réttum hætt­i,“ skrif­að­i ­Tryggvi meðal ann­ars. Hann teldi sig því ekki hafa for­sendur til­ að leggja til grund­vallar að siða­regl­urnar hafi verið í gildi um ­sam­skipti Hönnu Birnu við Stefán Eiríks­son þáver­and­i lög­reglu­stjóra. Þar sem siða­reglur hafa ekki enn ver­ið ­stað­festar með form­legum hætti er því vænt­an­lega það sama ­uppi á ten­ingnum þegar kemur að máli Sig­mundar Dav­íðs og eig­in­konu hans.

Tryggvi ­sagði orða­lagið ekki skýrt í lög­unum um Stjórn­ar­ráðið og benti á að „eft­ir­lit umboðs­manns með því að stjórn­sýsla ­starfi í sam­ræmi við siða­reglur getur ekki komið til nema slík­ar ­reglur hafi verið settar með réttum og form­legum hætt­i.“

Einnig settar reglur um skráningu samskipta og aðstoðarmenn ráðherra

Umboðs­maður Alþingis tók líka fram í bréfi sínu við lok Leka­máls­ins að hann teldi að huga þyrfti betur að fram­kvæmd reglna um skrán­ingu form­legra sam­skipta í stjórn­ar­ráð­inu. Reglur þar um hafa verið stað­festar og birtar nú og seg­ist for­sæt­is­ráðu­neytið ætla að efna til fræðslu­funda í ráðu­neytum til að tryggja að rétta inn­leið­ingu þeirra.

Þá ræddi umboðs­maður Alþingis einnig um laga­lega stöðu aðstoð­ar­manna ráð­herra, meðal ann­ars um heim­ildir þeirra til að koma fram gagn­vart for­stöðu­mönnum stofn­ana sem heyra undir ráðu­neytið eða leita upp­lýs­inga hjá þeim. Gísli Freyr Val­dórs­son, sem var aðstoð­ar­maður þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, leit­aði slíkra upp­lýs­ingar hjá Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur, þáver­andi lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum og núver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og hún sagð­ist hafa litið svo á að það væri gert fyrir hönd ráðu­neyt­is­ins. Gísli Freyr var síðar dæmdur í Leka­mál­inu.

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur tekið ábend­ingar umboðs­manns til greina og end­ur­skoðað leið­bein­andi erind­is­bréf fyrir aðstoð­ar­menn. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár