Pfizer boðið upp í bóluefnadans: Kári og Þórólfur saman til næsta fundar um málið

Vonast er til þess að lyfj­aris­inn Pfizer sjái hag sinn í því að gera Ísland að eins­konar rann­sókn­ar­mið­stöð fyrir sam­þykkt bólu­efni sitt og BioNTech. Kári Stef­áns­son og Þórólfur Guðnason munu fara saman á næsta fund með Pfizer um málið, segir Kári.

Þreif­ingar hafa síð­ustu daga verið í gangi á milli bæði Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis og Kára Stef­áns­sonar for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar ann­ars vegar og lyfj­aris­ans Pfizer hins vegar, um að fá hingað til lands meira magn bólu­efna frá fyr­ir­tæk­inu undir því yfir­skini að gera hér rann­sókn.

Rann­sóknin fælist í því að bólu­setja stóran hluta lands­manna hratt og örugg­lega og leyfa Pfizer að fylgj­ast með því hvernig hjarð­ó­næmi myndi nást hjá Íslend­ingum. Bólu­efnið sem Pfizer og BioNTech þró­uðu er það eina sem er komið með skil­yrt mark­aðs­leyfi hér á landi.

Umræðan um þessi mál hefur á köflum verið rugl­andi og virð­ist sem sótt­varna­lækn­ir­inn og for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar hafi verið, sitt í hvoru lagi, að setja sig í sam­band við Pfizer vegna þess­ara mála.

Á for­síðu Morg­un­blaðs­ins á aðfanga­dag sagði frá því að Kári Stef­áns­son hefði verið í sam­bandi við Pfizer um að fá hingað til lands 400.000 skammta, eða nægi­legt magn bólu­efnis til þess að bólu­setja um 60 pró­sent lands­manna. Um væri að ræða verk­efni sem full­trúar Pfizer væru spenntir fyrir.

Sóttvarnalæknir sagði ekki rétt að hugmyndin hefði komið frá Kára

Sótt­varna­læknir sendi frá sér til­kynn­ingu í kjöl­far þess­arar fréttar og ann­arra svip­aðra, þar sem sagði frá því að „hug­myndin að því að Ísland gæti orðið rann­sókn­ar­setur fyrir fasa IV rann­sókn þar sem að stærsti hluti þjóð­ar­innar yrði bólu­settur á stuttum tíma“ hefði verið „viðruð í tölvu­pósti sótt­varna­læknis til full­trúa Pfizer“ þann 15. des­em­ber.

„Innihald pósts­ins hefur síðan verið til skoð­unar innan fyr­ir­tæk­is­ins og verið leitað eftir frek­ari upp­lýs­ingum hjá sótt­varna­lækni. Það er því ekki rétt sem haft var eftir Kára Stef­áns­syni m.a. í Morg­un­blað­inu í dag að hug­myndin að þessu rann­sókn­ar­fyr­ir­komu­lagi hefði komið frá for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Kári Stef­áns­son hefur á hinn bóg­inn verið ötull með sam­skiptum sínum við for­svars­menn Pfizer við að ljá mál­inu braut­ar­gengi,“ sagði í til­kynn­ingu sótt­varna­læknis, en einnig sagði að ójóst væri hvort af þess­ari rann­sókn yrði. Svara frá Pfizer yrði beðið.

„Ekki í neinu stríði“ og fara saman til fundar við Pfizer

Í dag segir Kári Stef­áns­son frá því á Facebook að hann og og Þórólfur Guðnason séu „ekki í neinu stríði“ og segir það hafa verið mis­tök hjá sér að hafa ekki haft Þórólf með þegar hann setti sig í sam­band við Pfizer.

Hann seg­ist hafa sér það „til varnar“ að því sam­bandi sem hann hefur náð við Pfizer hafi verið komið á í gegnum sam­starfs­menn hans í Banda­ríkj­unum. „[É]g hafði litla stjórn á ferð­inni,“ skrifar Kári.

„[N]æsta fund með Pfizer tökum við Þórólfur saman og ef hann gengur vel dreg ég mig í hlé og skil þetta alfarið í hönd­unum á honum enda hæfir það hans hlut­verki í íslensku heil­brigð­is­kerfi. Þórólfur hefur stýrt okkur ótrú­lega vel og ljúf­mann­lega í gegnum tíu mán­aða far­aldur og er manna best til þess fall­inn að beita bólu­setn­ingum til þess að koma okkur end­an­lega út úr honum,“ skrifar Kári í færslu sinni í dag.

Á sama tíma hefur Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir rætt við fjöl­miðla um mögu­leik­ann á þess­ari rann­sókn og segir við RÚV að hug­myndin sem verið að reyna að heilla Pfizer með sé að „setja þetta upp eins og nokk­urs konar fasa fjögur rann­sókn þar sem hægt er að fylgj­ast mjög vel með hvað ger­ist með far­ald­ur­inn, með veiruna, þegar við náum að bólu­setja stóran hluta af þjóð­inni.“

Einstakar aðstæður á Íslandi

Haft er eftir Þórólfi að hann eigi von á því að sam­tal­inu við Pfizer verði fram­haldið í byrjun næsta árs og að Ísland bjóði upp á mjög góðar og ein­stakar aðstæður fyrir rann­sóknir af þessu tagi.

„Við erum að fylgj­ast með nýjum sýk­ingum. Við erum að rað­greina allar veirur sem að grein­ast. Við erum að fylgj­ast með auka­verk­unum, fylgj­ast með sjúk­dómnum og við erum að fylgj­ast með landa­mær­unum. Þannig að við höfum alla burði og það eru fáir sem hafa svona mikla burði til þess að geta fylgst með þessu á svona vís­inda­lega og staðl­aðan máta hvað ger­ist með veiruna í fram­hald­inu,“ sagði Þórólfur við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár