Keyptu nítján nýjar skóflur

Kostn­aður við skóflustungu nýs með­ferð­ar­kjarna Land­spít­al­ans nam tæpri hálfri milljón.

100 þúsund kall fyrir skóflur
100 þús­und kall fyrir skóflur Skófl­urnar sem keyptar voru fyrir skóflustung­una kost­uðu rétt um 100 þús­und krónur. Mynd: Þorkell Þorkelsson

Kostn­að­ur­inn við skóflustungu að nýjum með­ferð­ar­kjarna Land­spít­al­ans við Hring­braut nam tæpri hálfri milljón króna. Nítján nýjar skóflur sem keyptar voru vegna athafn­ar­innar kost­uðu tæpar hund­rað þús­und krónur.

Þetta kemur fram í svari Gunnars Svav­ars­sonar, fram­kvæmda­stjóra NLSH, við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Átján hags­muna­að­ilar tóku skóflustungu við athöfn­ina, þar á meðal ráð­herrar, aðilar úr háskóla­sam­fé­lag­inu og for­ystu­fólk fag­fé­laga heil­brigð­is­starfs­fólks. Hver skófla kost­aði 4.635 kr. án virð­is­auka­skatts og geyma hags­muna­að­il­arnir hver sína skóflu, að sögn Gunnars.

Kostn­aður við svið, hljóð­kerfi og örygg­is­gæslu nam alls 297.500 kr. Þá hlaut skóla­hljóm­sveit Kópavogs styrk í ferða- og tón­list­ar­sjóð sem nemur 100 þús­und krónum, en 40 börn komu að athöfn­inni.

Með­ferð­ar­kjarn­inn verður stærsta bygg­ingin í Land­spít­ala­þorp­inu og gegnir lyk­il­hlut­verki í starf­semi Land­spít­al­ans sem bráða- og háskóla­sjúkra­húss. Bygg­ingin verður tekin í notkun árið 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár