Gagnrýnir skarpa hækkun sveiflujöfnunaraukans

Dósent í fjár­málum við Háskóla Íslands segir mikla hækkun á eig­in­fjár­kröfum fjár­mála­fyr­ir­tækja ekki vera í sam­ræmi við eigið áhættu­mat Seðla­bank­ans og úr takti við helstu sam­an­burð­ar­lönd.

Húsnæði Seðlabanka Íslands
Húsnæði Seðla­banka Íslands Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nýleg ákvörðun fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar Seðla­bank­ans um að hækka svo­kall­aðan sveiflu­jöfn­un­ar­auka um tvö pró­sentu­stig er ekki í sam­ræmi við eigið mat hans á upp­bygg­ingu sveiflu­tengdrar kerf­is­á­hættu. Auk þess sem hún er mjög úr takti við ákvarð­anir í helstu sam­an­burð­ar­ríkjum Íslands. Þetta skrifar Jón Þór Sturlu­son, dós­ent í fjár­málum við við­skipta­deild HÍ, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Hámark á greiðslubyrði skref í rétta átt

Jón Þór, sem sat í for­vera fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar bank­ans á árunum 2013-2019, fer einnig yfir nýlega ákvörðun nefnd­ar­innar um að virkja nýtt stjórn­tæki um hámark greiðslu­byrðar fast­eigna­lána. Að hans mati var sú ákvörðun var­færið skref í rétta átt, þar sem hún vinnur gegn hætt­unni á röskun í starf­semi fjár­mála­kerf­is­ins ef veru­leg og hröð leið­rétt­ing verður á fast­eigna­verði.

Þó segir Jón að hámark á greiðslu­byrði sé ekki galla­laust verk­færi, en full ástæða hefði verið til a skoða aðra val­kosti, líkt og að greina end­ur­bætur á greiðslu­mati bank­anna eða að setja reglur um hámark láns­fjár­hæðar sem hlut­fall tekjum í stað greiðslu­byrðar.

Brattari hækkun en í samanburðarlöndum

Hin ákvörðun nefnd­ar­innar um að hækka eig­in­fjár­kröfur fjár­mála­fyr­ir­tækja tölu­vert með svoköll­uðum sveiflu­jöfn­un­ar­auka er hins vegar verr rök­studd að mati Jóns Þórs.

Samkvæmt honum er eðli­legt að sveiflu­jöfn­un­ar­auk­inn sé hækk­aður á ný þegar óvissa um stöðu fjár­mála­kerf­is­ins fari minnk­andi. „Það sem vekur hins vegar athygli er hversu stór boðuð hækkun er, bæði með hlið­sjón af grein­ingu á sveiflu­tengdri kerf­is­á­hættu og í alþjóð­legum sam­an­burði,“ segir hann í grein sinni.

Hann bætir einnig við að við­líka hækkun, úr 0 pró­sentum upp í tvö pró­sent, eigi sér ekki for­dæmi í sam­an­burð­ar­löndum Íslands, en þar hafa nýlegar hækk­anir verið mun hóf­sam­ari heldur en hér­lendis.

„Vissu­lega eru sýnilegir veik­leikar á fast­eigna­mark­aði sem hluti aðgerð­anna bein­ist að. Flest bendir þó til þess að Seðla­bank­inn láti einskis ófreist­aðs í við­leitni sinni á að hafa hemil á hækkun fast­eigna­verðs í þeim til­gangi að draga úr verð­bólgu í land­inu,“ segir Jón Þór í grein­inni sinni. „Getur verið að pen­inga­stefnan hafi fengið stjórn­tæki fjár­mála­stöðu­leika að láni, að minnsta kosti um stund­ar­sakir?“ bætir hann við.

Hægt er að lesa grein Jóns Þórs í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár