Kjartan Magnússon borgarfulltrúi bar tillöguna fram í borgarstjórn.
Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi bar til­lög­una fram í borg­ar­stjórn. Mynd: Skjáskot

Borgarhverfi framtíðarinnar eða loftslagsskógur á Geldinganesi?

Tillögu sjálf­stæð­is­manna í borg­ar­stjórn Reykja­víkur um að skipu­leggja Geld­inga­nes undir íbúa­byggð var hafnað á fundi borg­ar­stjórnar á þriðju­dag. Afar mis­mun­andi sjón­ar­mið komu fram um það hvernig skyldi nýta nesið til fram­tíðar.

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögðu til, á fundi borg­ar­stjórnar á þriðju­dag, að haf­ist yrði handa við skipu­lagn­ingu fram­tíðar íbúða­svæðis í Geld­inga­nesi, með hlið­sjón af skipu­lags­vinnu Sunda­brautar og að stefnt yrði að aðal­skipu­lags­breyt­ingum með þetta í huga. Til­lög­unni var hafnað, í kjöl­far umræðna um hús­næð­is­málin í borg­inni sem meiri­hlut­inn ákvað að tvinna saman við umfjöllun um til­lögu sjálf­stæð­is­manna.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagði í ræðu sinni að það væru fjöl­breytt og stór svæði að koma til upp­bygg­ingar á næstu árum og borgin hefði úr mjög miklu að spila hvað bygg­ing­ar­land varð­aði.

„Ég held að það sé alveg skýrt að þau svæði sem eru áherslu­svæði eru þró­unarásar með­fram Borg­ar­línu, við erum að bæta við Keldna­land­inu og erum auð­vitað að fá inn ný svæði í Voga­byggð, Ártúns­höfða og Skerja­firði, sem öll skipta veru­legu máli, bæði nálægt okkur í tíma og þegar lengur vindur fram,“ sagði borg­ar­stjóri, og fór svo yfir afstöðu meiri­hlut­ans til til­lögu sjálf­stæð­is­manna.

„Í stuttu máli telur meiri­hlut­inn ekki skyn­sam­legt að bæta Geld­inga­nesi þar við, þannig að við leggjum til að sú til­laga verði felld, enda er mjög mikið úr að spila í bygg­ing­ar­landi og á hverjum tíma þarf borgin auð­vitað að huga að því að hafa nægi­legt fram­boð af lóðum og bygg­ing­ar­rétti, en líka ekki of mörg svæði í upp­bygg­ingu í einu því það þarf að tryggja inn­viði, skóla, leik­skóla, íþrótta­mann­virki, vegi, götur og annað slíkt svo hverfin bygg­ist sem fyrst upp í heild og verði líf­væn­leg til íbúðar,“ sagði Dagur.

Mögulega skynsamlegt að skipuleggja Geldinganes undir byggð síðar

Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks og for­maður borg­ar­ráðs, sagði í umræð­unum að for­gangs­raða þyrfti kröftum starfs­fólks borg­ar­innar í að skipu­leggja svæðin sem fyrir liggi að ráð­ast ætti í upp­bygg­ingu á næst og nefndi þar meðal ann­ars Keldna­landið og Keldna­holtið.

„Það er eng­inn að segja að það verði aldrei úthlutað lóðum í Geld­inga­nesi, það getur bara verið mjög skyn­sam­legt þegar Sunda­brautin er komin, en við þurfum að for­gangs­raða verk­efnum,“ sagði Einar.

Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins flutti til­lög­una um Geld­inga­nesið og sagði hann „mjög slæmt ástand“ ríkj­andi í hús­næð­is­málum í Reykja­vík og að það væri varla á færi venju­legs fólks að kaupa sér íbúð.

„Þetta þyrfti ekki að vera svona, Reykja­vík er senni­lega eina höf­uð­borgin í Evrópu sem á nóg land, sem er hægt að breyta í lóðir með til­tölu­lega skömmum fyr­ir­vara. Þetta var gert hérna einu sinni, þegar borg­ar­yf­ir­völd litu á það sem hlut­verk sitt að skaffa fólk­inu til­tölu­lega ódýrar lóðir. [...] Borgin var stundum skömmuð fyrir það að selja lóðir á lágu verði, en þá benti hún bara á það á móti að tekjur borg­ar­innar koma að mestu leyti úr útsvar­inu, svo borgin græddi alltaf á því að fá fólk sem flutti inn í húsin og fór að borga útsvar, og það hefur nú heldur hressi­lega hækkað síðan,“ sagði Kjartan.

Í ræðu sinni sagði hann að póli­tísk for­ysta Reykja­vík­ur­borgar hefði ráð­ist í ýmsar aðgerðir á und­an­förnum árum, stórar og smáar, sem væru til þess fallnar að hækka íbúða­verð. „Auðvitað kemur þetta niður á fólki,“ sagði Kjartan, sem nefndi svo að hjá hans kyn­slóð hefði það verið „mjög algengt“ að fólk „fjár­festi bara í íbúð sum­arið eftir stúd­ent­inn“ eða „þegar fyrstu náms­lánin voru greidd út“. Þetta væri nán­ast óhugs­andi í dag.

Sagði Kjartan að eng­inn væri að tala um að úthluta skyldi lóðum á Geld­inga­nesi á þessu kjör­tíma­bili, en að horfa þyrfti til svæð­is­ins til fram­tíðar og sam­spili íbúða­upp­bygg­ingar við bygg­ingu Sunda­brautar, stærsta umferð­ar­mann­virki lands­ins.

Upp­bygg­ing­ar­þörfin væri svo mikil að „fyrr en varir verður þörf á Geld­inga­nesi“.

Geldinganes myndi fara í samkeppni við Keldnalandið

Alex­andra Briem borg­ar­full­trúi Pírata vék að því í ræðu sinni að Reykja­vík­ur­borg hefði þá stefnu að þétta byggð, til að bæta inn­viða­nýt­ingu, styðja við virka ferða­máta og draga úr kolefn­is­spori. Margir upp­bygg­ing­ar­reitir, þar á meðal þeir sem borgin væri þegar byrjuð að huga að, eins og Voga­byggð, Ártúns­höfði, Kringlu­reitur, Veð­ur­stofu­reitur, Arn­ar­bakki og ýmsir aðrir reitir, væru betur til þess fallnir en Geld­inga­nesið. Auk þess væri búið að opna á meiri byggð á jað­ar­svæðum byggð­ar­innar, til dæmis á Kjal­ar­nesi og í Úlf­arsár­dal.

„Við erum líka að und­ir­búa Keldna­land sem næsta stóra upp­bygg­ing­ar­svæðið, enda er það í sam­ræmi við sam­göngusátt­mál­ann. Þetta er ansi mikið, sér­stak­lega allt svona á sama tíma. Að bæta við Geld­inga­nesi, sem er mjög stórt svæði og mikil til ósnortið svæði, á þessum tíma­punkti væru mis­tök,“ sagði Alex­andra. Hún sagð­ist með­vituð um að til­lagan sner­ist ekki um að ráð­ast í upp­bygg­ingu Geld­inga­nes strax í dag, en að það yrðu þó alltaf mis­tök að fara að setja Geld­inga­nesið inn í vaxt­ar­á­ætl­anir borg­ar­innar til næstu ára, jafn­vel ára­tuga.

Alexandra Briem borgarfulltrúi Pírata.
Alex­andra Briem borg­ar­full­trúi Pírata.

„Við viljum ekki vera að byggja upp Geld­inga­nes á til dæmis sama tíma og Keldna­landið, þá í beinni sam­keppni við Keldna­landið, enda er það eitt af mark­miðum sam­göngusátt­mál­ans að reyna að fá gott verð fyrir það Keldna­land, enda er því ætlað að fjár­magna stóran hluta sam­göngusátt­mál­ans af hálfu rík­is­ins. Því væri það í raun til höf­uðs því verk­efni að setja í gang annað nýtt stórt úthverfi sam­tímis. Ég held að það væru mis­tök,“ sagði Alex­andra.

Kjartan Magn­ús­son sagði í and­svari við ræðu Alexöndru að hann teldi að afar athygl­is­verða rök­semd hjá henni, að ekki mætti spila út fleiri hverfum en Keldna­land­inu því að það þyrfti að „halda uppi verð­inu þar“. „Þetta er mjög athygl­is­verð yfir­lýs­ing gagn­vart ungu fólki í Reykja­vík sem hefur lítið á milli hand­anna en vill samt reisa sér þak yfir höf­uðið,“ sagði borg­ar­full­trú­inn.

Alex­andra sagði einnig í ræðu sinni á að vaxt­ar­mögu­leikar á Vatns­mýr­ar­svæð­inu til fram­tíðar væru miklir, þegar flug­vell­inum hefði verið fund­inn nýr staður. Það yrði von­andi næsti þétt­ing­ar­staður á eftir Keldna­land­inu. Í fram­haldi væri svo hægt að sjá fyrir sér að Kjal­ar­nes og Esju­melar yrðu mik­il­væg svæði þegar Sunda­braut væri komin.

„Ég tel að þessi svæði séu öll nær­tæk­ari vaxt­ar­svæði en Geld­inga­nes. En vissu­lega er ekki hægt að úti­loka upp­bygg­ingu þar í fjar­lægri fram­tíð, eða mið­fram­tíð,“ sagði Alex­andra og nefndi að þarna væri hún ef til vill að hugsa um árin 2050 eða 2060. „Ég skal ekki segja,“ bætti hún við.

Borgin gæti haft „jákvæð áhrif á húsnæðisverð til lækkunar“

Marta Guð­jóns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði að borgin hefði það í hendi sér hversu mörgum lóðum væri úthlutað til bygg­ingar. Hún hefur áður talað fyrir skipu­lagn­ingu Geld­inga­ness undir íbúa­byggð í borg­ar­stjórn og sagði að hægt væri að úthluta lóðum til upp­bygg­ingar þar á hag­kvæmu verði, kostn­að­ar­verði, og „gæti þannig haft jákvæð áhrif á hús­næð­is­verð til lækk­unar“.

„Þetta land í Geld­inga­nesi sem er í eigu borg­ar­innar eru 220 hekt­arar á stærð og sam­svarar öllum því svæði sem nær frá Ána­naustum að Rauð­ar­ár­stíg og frá Sæbraut að Hring­braut. Hvorki meira né minna. Auðvitað á Reykja­vík, stærsta sveit­ar­fé­lagið, að huga að upp­bygg­ingu til fram­tíðar. Hér hafa borg­ar­full­trúar komið upp í hrönnum og sagt að það sé ekki tíma­bært að skipu­leggja Geld­inga­nesið. Við verðum að vinna heima­vinn­una þegar kemur að því að við þurfum að nýta Geld­inga­nesið. Þar væri hægt að byggja 10, 15, 20 þús­und íbúðir og þannig gætum við leyst hús­næð­is­vand­ann sem við höfum staðið frammi fyrir í allt, allt of langan tíma,“ sagði Marta.

Skógræktar- og útivistarsvæði frekar en byggð?

Ýmsar skoð­anir komu fram um Geld­inga­nesið í umræð­unum í borg­ar­stjórn, sem alls stóðu yfir í um þrjár klukku­stundir. Birkir Ingi­bjarts­son full­trúi Sam­fylk­ingar sagði að til­laga sjálf­stæð­is­manna um skipu­lag nýs hverfis þar væri til vitnis um „skort á fram­tíð­ar­sýn, að leggja til upp­bygg­ingu á hrjóstr­ugu nesi í útjaðri borg­ar­innar, en standa á sama tíma gegn upp­bygg­ingu á besta upp­bygg­ing­ar­svæði lands­ins, í Vatns­mýr­inni“.

„Ef við raun­veru­lega ætlum að hugsa stórt og til fram­tíðar væri einmitt ráð að skil­greina Geld­inga­nes sem úti­vist­ar­svæði til fram­tíðar sem ekki yrði und­ir­lagt af byggð. Það væri að mínu mati mun fremur ráð að hefja þar skóg­rækt við einn af lofts­lags­skógum Reykja­víkur. Væri það tákn­ræn aðgerð um að segja að okkur sé alvara um að standa við lofts­lags­mark­mið okkar og að hvernig við högum upp­bygg­ingu borg­ar­innar sé lyk­il­at­riði í því sam­hengi,“ sagði Birkir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár