Þúfan sem velti hlassinu

Demókratar hrósuðu sigri í auka­kosn­ingum til Öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings sem fram fóru í Georgíu sl. þriðju­dag. Þann sigur þakka þeir ekki síst bar­áttu konu sem kannski fáir kann­ast við.

Stacey Abrams hefur unnið ötullega að því að fjölga kjósendum í minnihlutahópum á kjörskrá í Georgíuríki.
Stacey Abrams hefur unnið ötul­lega að því að fjölga kjós­endum í minni­hluta­hópum á kjör­skrá í Georg­íu­ríki. Mynd: EPA

Auka­kosn­ing­arnar í Georg­íu­ríki síð­ast­lið­inn þriðju­dag, 5. jan­úar, til Öld­unga­deildar þings­ins, voru til­komnar vegna þess að eftir kosn­ing­arnar í nóv­em­ber stóðu flokk­arnir tveir, Repúblikanar og Demókratar,hnífjafnir hvað atkvæða­fjölda varð­aði. Joe Biden marði sigur í rík­inu í for­seta­kosn­ing­unum og það, ásamt jafn­tefl­inu í þing­kosn­ing­unum, þótti marka breyt­ingar. Fram­bjóð­andi Demókrata hafði ekki haft betur í for­seta­kosn­ingum í rík­inu síðan árið 1992 og flokk­ur­inn hafði ekki átt öld­unga­deild­ar­þing­mann frá Georgíu síðan árið 2005 (Zell Miller). Þangað til nú.

En kosn­ing­arnar síð­ast­lið­inn þriðju­dag sner­ust ekki bara um tvo þing­menn, þær sner­ust líka um meiri­hluta í Öld­unga­deild­inni, þar sitja 100 þing­menn. Ef meiri­hluti í deild­inni er andsnú­inn for­set­anum getur hann komið í veg fyrir að for­set­inn komi málum í gegnum þingið. Fyrir auka­kosn­ing­arnar sl. þriðju­dag höfðu Repúblikanar 52 þing­menn í Öld­unga­deild­inni, Demókratar 46. Tveir þing­menn eru óháðir, en þeir hafa þó í flestum, ef ekki öllum, til­vikum fylgt Demókrötum. [adspot]

Nú, eftir kosn­ing­arnar sl. þriðju­dag er staðan þannig að Demókratar hafa 48 þing­menn plús 2 óháða og Repúblikanar 50. Patt­staða myndi kannski ein­hver segja. En þannig er það ekki, atkvæði vara­for­set­ans, sem nú er Kamala Harris, ræður nefni­lega úrslitum í kosn­ingum í deild­inni, ef atkvæði falla jafnt. Þótt meiri­hlut­inn sé afar naumur gerir hann Joe Biden mun hæg­ara um vik að koma málum gegnum deild­ina.

Nýju þing­menn­irnir tveir eru Jon Ossoff og Raphael Warnock. Sá fyrr­nefndi verður 34 ára í febr­úar, fyrr­ver­andi blaða- og kvik­mynda­gerð­ar­maður, hvítur á hör­und. Raphael Warnock er 51, prestur, dökkur á hör­und. Kjör Warnocks hefur vakið sér­staka athygli en hann er fyrsti þeldökki mað­ur­inn sem nær kjöri til Öld­unga­deild­ar­innar fyrir Georg­íu­ríki.

Árangur demókra­ta­flokks­ins í kosn­ing­unum í Georgíu er glöggt dæmi um breyt­ingar í Suð­ur­ríkj­unum þar sem inn­flytj­endum fjölgar ört.

Brian Kemp, kaupin á eyrinni og símtöl frá Trump

Árið 2018 fóru fram rík­is­stjóra­kosn­ingar í Georg­íu­ríki. Fram­bjóð­andi Demókrata var Stacey Abrams, 45 ára lög­fræð­ingur, af afrískum upp­runa. Hún hafði um ára­bil tekið virkan þátt í stjórn­málum í heima­rík­inu og virt fyrir störf sín. Meðal stuðn­ings­manna hennar í kosn­inga­bar­átt­unni voru þeir Barack Obama, fyrr­ver­andi for­seti og Öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Bernie Sanders.

Fram­bjóð­andi Repúblik­ana var Brian Kemp, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra Georgíu, 45 ára, búfræð­ingur að mennt (BS próf). Meðal starfa á könnu inn­an­rík­is­ráð­herr­ans er fram­kvæmd og eft­ir­lit kosn­inga, úrskurða um kosn­inga­rétt og hafa eft­ir­lit með taln­ingu. Í kringum kosn­ing­arnar 2018 urðu miklar deilur, meðal ann­ars þótti óeðli­legt að Brian Kemp sem sjálfur var í kjöri til rík­is­stjóra væri jafn­framt æðsti yfir­maður kosn­ing­anna.

Brian Kemp og starfs­fólk hans, nær allt hvítt á hör­und, neit­aði 53 þús­und borg­urum (80 pró­sent þeirra dökkir á hör­und) um að kom­ast á kjör­skrá og geta greitt atkvæði. Mörg atkvæði „guf­uðu upp“, taln­inga­vélar „bil­uðu“ og fjöldi atkvæða voru úrskurðuð ógild. Brian Kemp sigr­aði í rík­is­stjóra­kosn­ing­unum, hlaut 50,2 pró­sent atkvæða. Kjör­tíma­bili hans lýkur haustið 2022. Samkvæmt könnun Associated Press frétta­veit­unnar, sem gerð var í kjöl­far rík­is­stjóra­kosn­ing­anna árið 2018 hafði Brian Kemp sem inn­an­rík­is­ráð­herra sam­tals hafnað um einni milljón skrán­inga til kjör­skrár, á árunum 2012 - 2018

Hér má geta þess að það var núver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra Brad Raf­fens­berger sem Donald Trump hringdi í og óskaði eftir að hann „fyndi“ 11.780 atkvæði, sem hefðu dugað Trump til sig­urs í Georgíu. Þegar Raf­fens­berger neit­aði hringdi Trump í rík­is­stjór­ann, Brian Kemp og fór þess á leit að hann kall­aði saman rík­is­þing Georgíu í því skyni að ógilda nið­ur­stöður for­seta­kosn­ing­anna í rík­inu, en þar sigr­aði Joe Biden, naum­lega. Brian Kemp hafn­aði beiðni for­set­ans, enda hafði hann ekk­ert vald til að fyr­ir­skipa ógild­ingu kosn­ing­anna.

Stacey Abrams

Konan sem minnst var á í inn­gangi þessa pistils og demókra­ta­flokk­ur­inn á mikið að þakka er Stacey Abrams, sú sem beið lægri hlut í rík­is­stjóra­kosn­ing­unum í Georg­íu­ríki árið 2018. Hún hafði þá um ára­bil unnið að því að fá minni­hluta­hópa, einkum þeldökkt fólk í heima­rík­inu, og víðar, til að þess að fá nafn sitt á kjör­skrá og nýta rétt sinn þegar kemur að kosn­ingum. Hún hefur lagt mikla áherslu á að þeldökkir íbúar Banda­ríkj­anna láti ekki kúga sig.

Stacey Abrams er fædd í Madison Wisconsin árið 1973 en skömmu eftir fæð­ingu hennar flutti fjöl­skyldan til Gulfport Miss­issippi og síðar til Atlanta í Georgíu. Stacey Abrams var góður náms­maður og fékk ung áhuga á stjórn­málum og gekk til liðs við ung­liða­hreyf­ingu demókrata. Á mennta­skóla­ár­unum vann hún á skrif­stofu borg­ar­stjór­ans í Atlanda, Maynard Jackson. Árið 1999 lauk Stacey Abrams dokt­ors­prófi frá Laga­deild Yale háskól­ans. Þess má geta að Laga­deildin við Yale hefur um ára­bil verið metin sú besta á sínu sviði í Banda­ríkj­unum.

Steinrunnin í 10 daga en hófst þá handa

Í blaða­við­tali árið 2019 sagð­ist Stacey Abrams hafa setið sem stein­runnin í 10 daga eftir rík­is­stjóra­kosn­ing­arnar árið 2018. „Ég gerði mér ljóst að hvíti aðall­inn myndi, hér eftir sem hingað til, gera allt til að halda völdum og það myndi hann gera með því að velja hverjir fái að kjósa.“ Stacey Abrams hafði árið 2014 stofnað sam­tökin Fair Fight, til­gang­ur­inn sam­tak­anna var, og er sá, að upp­lýsa borg­ar­ana um rétt sinn til að kjósa og nauð­syn þess að nýta þann rétt.

Starf­semi Fair Fight hefur ekki farið fram hjá „hvíta aðlinum“ í Georgíu og fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2020, og kosn­ing­arnar til þings­ins, fyr­ir­skip­aði Brad Raf­fens­berger inn­an­rík­is­ráð­herra Georgíu sér­staka rann­sókn á stórum hópi fólks, sem hafði skráð sig og hugð­ist kjósa. Hafi til­gangur þeirrar rann­sóknar verið að meina til­teknum hópi fólks að kjósa mistókst sú til­raun. Joe Biden fékk fleiri atkvæði í for­seta­kosn­ing­unum í rík­inu og Demókratar unnu bæði sætin í auka­kosn­ing­unum sl. þriðju­dag. Nýskráðir kjós­endur í nýaf­stöðnum kosn­ingum voru um það bil 800 þús­und, og þar vegur starf­semi Fair Fight, undir stjórn Stacey Abrams, þyngst.

Sjálf hefur hún lagt áherslu á að árangur demókra­ta­flokks­ins í for­seta- og þing­kosn­ing­unum sé afrakstur sam­vinnu margra. „Ég er kannski sam­nefn­ari þessa stóra hóps en þar eiga margir aðrir stóran þátt.“

Íhugar framboð 2022 en vill hvorki gifta sig né grennast og er stolt af húðlitnum

Margt for­ystu­fólk í demókra­ta­flokknum hefur hvatt Stacey Abrams til að bjóða sig fram til rík­is­stjóra Georgíu í kosn­ing­unum 2022. Þótt hún hafi sjálf hvorki sagt af né á í þeim efnum búast margir við að hún láti til skarar skríða og sé í raun þegar byrjuð að und­ir­búa fram­boðið. Í nýlegu blaða­við­tali sagði Stacey Abrams að ef hún færi fram væri gott að vita af því að hús­bændur í Hvíta hús­inu væru sér vin­veittir.

Í löngu við­tali við tíma­ritið Vogue fyrir nokkru sagði hún frá því að ýmsir, nafn­greindi engan, væru dug­legir að gefa sér ráð. „Mörg þeirra hafa reynst mér vel en ég fer ekki eftir þeim öllum. Mér hefur margoft verið sagt að ég þurfi endi­lega að gifta mig og létt­ast. Ég ætti líka að láta lýsa á mér húð­ina. Ég ætla ekki að fylgja þessum ráð­legg­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

demókratar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár