Nýju tækin og tólin sem Apple mun kynna á morgun

iPhone 11 er á leið­inni. Það er Apple Watch 5 líka. Og lík­lega alls kyns sjón­varps­græjur til að virka með sjón­varps­þjón­ust­unni Apple TV+ sem fer í sölu í haust. Allt þetta, og miklu meira til, verður kynnt á árlegum sept­em­ber-við­burði Apple á morgun.

Búist er við því að iPhone 11 verði svona.
Búist er við því að iPhone 11 verði svona. Mynd: Aðsend

Á morgun, þriðju­dag, heldur Apple sinn árlega sept­em­ber-við­burð þar sem nýir símar og önnur snjall­tæki verða kynnt. Við­burð­ur­inn fer fram í Steve Jobs Theater og hefst kl. 17. Hægt verður að fylgj­ast með við­burð­inum í straumi á apple.com og helstu tækni­blogg verða einnig með beina texta­lýs­ingu.

Nýir símar

iPhone 11 (eða mögu­lega 11R, Fer eftir orðrómi) mun leysa iPhone XR af hólmi. Sá sími var vin­sælastur af þeim símum sem Apple kynnti fyrir ári og því mik­il­vægt að arf­tak­inn sé vel heppn­aður. Hugsunin með iPhone 11 nafn­inu er þá að þetta sé iPhone-inn, sá sími sem hentar flestum og flestir kaupa. Hönnun verður sú sama og á XR og skjár­inn 6.1 tommur eins og for­ver­inn.

[links]XR er með eina mynda­vél á bak­hlið­inni en þær verða tvær í nýja sím­anum, eins og í X / XS útgáf­unum. Nýja mynda­véla­kerfið mun bjóða upp á aðdrátt eins og í XS og XS Max. Annað sem er lík­legt er öfl­ugri örgjörvi, meira minni og nýir litir.

Arftakar iPhone XS / XS Max eru iPhone 11 Pro og 11 Pro Max, ef eitt­hvað er að marka orðið á tækni­göt­unni. Eins og með iPhone 11 þá helst hönn­unin nán­ast óbreytt fyrir utan mun stærri mynda­véla bungu sem er nú með þremur mynda­vélum. Skiptar skoð­anir eru um það hvað fæst með nýja mynda­vél­inni, mögu­lega betri aðdráttur, bætt Portrait Mode eða meiri gæði við léleg birtu­skil­yrði. Þá er talið að upp­lausnin verði aukin. Face ID verður end­ur­bætt og mun virka þegar sím­inn er á hlið eins og í iPad Pro.

Apple Watch 5

Síðustu ár hefur Apple notað sept­em­ber-við­burð­inn til að kynna upp­færð snjallúr og er því lík­legt að Apple Watch 5 verði kynnt. Síðasta úr var end­ur­hannað frá grunni og því er nær öruggt að Apple Watch 5 verður hóg­vær upp­færsla með áherslu á inn­volsið. Meira minni, öfl­ugri örgjörvi og betri raf­hlöðu­end­ing.

[adspot]Orðrómur er um að Apple ætli að bæta við svefn­mæl­ingum en óvíst er hvort það verði hug­bún­að­ar­upp­færsla eða nýir nemar. Talið er að tvær nýjar efn­is­teg­undir verði í boði, umfram ál og ryð­frítt stál, ker­amik og titanium málmur. Þau úr verða að öllum lík­indum tals­vert dýr­ari en grunn ál-útgáfan. Ólíklegt er að þessar útgáfur verði í boði á Íslandi því hingað til hefur dýr­ari týpan, sú úr ryð­fríu stáli ein­göngu verið í boði með inn­byggði 4G og þær útgáfur eru ekki seldar á Íslandi.

Apple TV og þjónustur

Apple TV var síð­ast upp­fært fyrir tveimur árum. Apple kynnti svo sjón­varps­þjón­ust­una Apple TV+ í mars á þessu ári og er áætlað að hún fari í sölu í haust. Það er því lík­legt að nýjar sjón­varps­græjur verði kynntar sam­hliða því að TV+ fari í loftið.

Stóra spurn­ingin er í raun hvort Apple noti sept­em­ber-við­burð­inn til að kynna Apple TV eða kynni það í októ­ber á sér­við­burði. Sama gildir um Apple Arcade leikja­þjón­ust­una. Leikir úr þjón­ust­unni virka á öllum iOS tækjum og því gæti við­burð­ur­inn á morgun hentað vel til að setja þjón­ust­una í loftið.

Apple Tag

Síðustu mán­uði hafa fund­ist vís­bend­ingar í kóða frá Apple um að fyr­ir­tækið ætli sér að kynna nýtt þráð­laust stað­setn­ing­ar­tæki, sam­bæri­legt við Tile sem hægt er að festa á hluti eins og hjól, töskur, lykla­kippur o.s.frv. Slík tæki virka þannig að þitt tæki talar við tæki ann­arra yfir bluetooth og þau senda upp­lýs­ingar um stað­setn­ingu týnda tæk­is­ins yfir netið.

Það hefur hamlað útbreiðslu slíkra tækja að ef það eru engin önnur tæki í nágrenn­inu þá finnur þú ekki þitt tæki. Í ljósi vin­sælda iPhone og ann­arra Apple tækja þá ætti þeirra Tag net að vera mun þétt­ara og útbreidd­ara en hjá sam­keppn­is­að­ilum. Ekkert er þó vitað hvort og hvenær Apple mun kynna sitt Tag.

Allt hitt

Aðrar vörur sem orðrómur er um að séu á leið­inni í sölu eru upp­færð grunn­týpa af iPad sem fær stærri skjá, 10.2 tommur í stað 9.7 tomma. Einnig er gert ráð fyrir því að kynnt verði end­ur­hönnuð Macbook Pro tölva með 16 tommu skjá og nýju lykla­borði. Að lokum er er talið að Apple HomePod fái aðeins meiri TLC, fái ann­að­hvort við­bótar vörur á borð við HomePod mini eða verði jafn­vel end­ur­hann­aður.

Þó er lík­leg­ast að Apple noti sviðið á morgun ein­göngu fyrir iPhone og Apple Watch og stýri­kerfið iOS13 og allar þessar „annað“ vörur fái sér kynn­ingu í októ­ber. Kjarninn mun fylgj­ast vel með við­burð­inum á morgun og færa fréttir af því mark­verð­asta. Tækni­varpið á föstu­dag­inn fer svo vel yfir við­burð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tæknivarpið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár