Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segist hafa horft til hagsmuna varnarlausra barna

Lög­reglu­stjór­inn á Suð­ur­nesjum segir í svari til umboðs­manns Alþingis að nauð­syn­legt hafi verið að bregð­ast við hættu­á­standi með því að banna börnum yngri en 12 ára að ganga upp að gos­s­töðv­unum í Mera­dölum.

Eldgosið í Meradölum á meðan hraunið rann þar enn stríðum straumum. Með ákvörðun sem tekin var 9. ágúst var börnum yngri en 12 ára meinað að ganga upp að gossprungunni.
Eldgosið í Mera­dölum á meðan hraunið rann þar enn stríðum straumum. Með ákvörðun sem tekin var 9. ágúst var börnum yngri en 12 ára meinað að ganga upp að gossprung­unni. Mynd: Almannavarnir

Umboðs­maður Alþingis hefur fengið svör frá lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum, eftir að hafa óskað nán­ari skýr­inga á þeirri ákvörðun lög­reglu­stjóra að banna börnum yngri en 12 ára að ganga upp að gossprung­unni í Mera­dölum. Umboðs­maður seg­ist nú vera að meta „fram­hald máls­ins“, sam­kvæmt því sem segir á vef emb­ætt­is­ins.

Þar er svar lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjumbirt, en í því koma fram svör við þeim spurn­ingum sem umboðs­maður Alþingis lagði fyrir emb­ættið í kjöl­far þess að ákvörðun um að banna börnum yngri en 12 ára að ganga að gos­s­töðv­unum var tekin á fundi þann 9. ágúst. Fram kemur í svari emb­ætt­is­ins að lög­reglu­stjóri geri ráð fyrir því að það sé vilji lög­gjafans að beita væg­ara eða mild­ara úrræði, sem barna­bannið hafi verið, í stað þess að loka svæð­inu alfarið fyrir almenn­ingi.

Auk þess að spyrja út í laga­grund­völl ákvörð­unar lög­reglu­stjór­ans vildi umboðs­maður fá að vita hvaða gögn, upp­lýs­ingar og rök­semdir lágu til grund­vallar því mati að rétt væri að tak­marka aðgengi barna yngri en 12 ára að svæð­inu í Mera­döl­um.

Farið er yfir þessi atriði í svari lög­reglu­stjór­ans, en þar segir að ákvörð­unin hafi verið reist á 23. gr. laga um almanna­varnir, sem heim­ili lög­reglu­stjóra meðal ann­ars að hindra umferð um ákveðin svæði þegar hættu ber að garði.

Lög­reglu­stjóri segir einnig að allt frá upp­hafi goss­ins hafi við­bragðs­að­ilar verið efins um að rétt væri að hleypa for­eldrum með ung börn inn að gos­s­töðv­unum, þar sem um langa og tor­sótta leið væri að ræða, auk þess sem engan veg­inn væri hægt að tryggja loft­gæði nær eld­stöðv­unum og þar með öryggi barna.

Í svar­inu kemur jafn­framt fram að börn hafi minna þol gagn­vart loft­mengun og séu í því til­liti skil­greind sem við­kvæmur hópur sem ekki sé ráð­legt að dvelji lengur en 15 mín­útur á stað þar sem loft­mengun er yfir heilsu­vernd­ar­mörkum. Lög­reglu­stjóri segir að horft hafi verið til sjón­ar­miða land­læknis hvað þetta varðar við ákvörð­un­ina um barna­bannið, þó að það hafi ekki verið sér­stak­lega tekið fram í fyrstu til­kynn­ingu til fjöl­miðla.

Á fyrstu dögum goss­ins segir lög­reglu­stjóri að tíð afskipti við­brags­að­ila af for­eldrum með ung börn hafi verið mikið áhyggju­efni. „Vakti athygli að fjöl­skyldur voru oft engan veg­inn í stakk búnar til að ganga upp að gos­inu. Í flestum til­fellum var um að ræða erlenda ferða­menn. Frétta­flutn­ingur, ljós­myndir, mynd­skeið og frá­sagnir reyndra íslenskra leið­sögu­manna um erf­iðar og lífs­hættu­legar aðstæður barna inn á hættu­svæði vakti athygli lög­reglu­stjóra á ástandi sem þurfti taf­ar­laust að bregð­ast við,“ segir lög­reglu­stjóri.

Í svar­inu segir einnig að lög­reglu­stjóri hafi það vanda­sama starf með höndum að tryggja öryggi almenn­ings í almanna­varnar­á­standi. „Hafi hann heim­ild lögum sam­kvæmt til að vísa á brott eða fjar­lægja fólk í hættu­á­standi þá gerir lög­reglu­stjóri ráð fyrir því að lög­gjaf­ar­vilji standi jafn­framt til þess að hann beiti væg­ara og mild­ara úrræði á hættu­stund með þeim hætti sem gert var með hags­muni barna að leið­ar­ljósi, varn­ar­lausum börnum undir 12 ára aldri, sem geta ekki annað en fylgt ákvörð­unum for­eldra sinna,“ segir í svari lög­reglu­stjóra.

Þar segir einnig að er ald­urs­mörkin voru ákvörðuð hafi verið horft til lík­am­legs og and­legs þroska barna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár