Umboðsmaður Alþingis vill fá skýringar frá lögreglustjóra á barnabanninu við eldgosið

Umboðs­maður Alþingis hefur sent bréf á lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­nesjum með ósk um útskýr­ingar á umdeildu banni við umferð barna yngri en 12 ára upp að gos­s­töðv­unum í Mera­dölum. Lög­reglu­stjóri hefur sagt ákvörð­un­ina reista á ákvæðum almanna­varn­ar­laga.

Eldgosið í Meradölum er mikið sjónarspil, en nú bannað börnum yngri en 12 ára.
Eldgosið í Mera­dölum er mikið sjón­ar­spil, en nú bannað börnum yngri en 12 ára. Mynd: Almannavarnir

Umboðs­maður Alþingis hefur sent bréf til Úlfars Lúð­víks­sonar, lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, þar sem þess er meðal ann­ars óskað að lög­reglu­stjór­inn skýri á hvaða laga­grund­velli sú ákvörðun að banna börnum yngri en 12 ára að ganga upp að eld­gos­inu í Mera­dölum sé reist.

Bréfið, sem sent var í gær, er birt á vef umboðs­manns í dag, en til­kynnt var um barna­bannið við gos­s­töðv­arnar fyrr í vik­unni.

Úlfar lög­reglu­stjóri hefur í sam­tölum við fjöl­miðla sagt að sú ákvörðun að banna börnum undir 12 ára að fara að gos­inu hafi verið reist á heim­ild í lögum um almanna­varnir, nánar til­tekið 23. grein almanna­varna­laga, eins og haft var eftir honum á vef RÚV.

Einnig hélt Úlfar því til haga, í við­tali við RÚV, að þrátt fyrir að ekki væru refsi­á­kvæði í almanna­varna­lög­unum gæti lög­regla beitt ein­stak­linga sektum sem ekki færu eftir fyr­ir­mælum lög­reglu.

„Ég tel mig hafa haft heim­ild til þess að gera það sem ég gerði, ákvörðun lög­reglu­stjóra stendur,“ sagði Úlfar við RÚV í gær.

Ákvörð­unin hefur verið umdeild og sumir for­eldrar barna undir 12 ára aldri gagn­rýnt bannið – og telja að það eigi að vera í höndum for­eldra að meta hvort börn undir 12 ára eigi erindi upp að gos­inu eða ekki.

Allmörg dæmi eru þó um að fólk, sér í lagi erlendir ferða­menn, hafi verið með börn á ferð við gos­s­töðv­arnar sem ekki hafa neitt í krefj­andi göngu að gera, jafn­vel við erf­iðar veð­ur­að­stæður.

Auk þess að spyrja út í laga­grund­völl ákvörð­unar lög­reglu­stjór­ans vill umboðs­maður fá að vita hvaða gögn, upp­lýs­ingar og rök­semdir lágu til grund­vallar því mati að rétt væri að tak­marka aðgengi barna yngri en 12 ára að svæð­inu í Mera­dölum.

Þá vill umboðs­maður fá að vita hvort og hvenær ákvörð­unin tók gildi og hvort henni hafi verið mark­aður sér­stakur gild­is­tími og einnig með hvaða hætti lög­reglu­stjór­inn hafi kynnt almenn­ingi ákvörðun sína eða hvort hann hygg­ist gera slíkt.

Umboðs­maður óskar þess að svar ber­ist frá lög­reglu­stjóra eigi síður en 17. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár