Vantar 1.000 milljarða til að ná æskilegu hlutfalli Benedikts

Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna eru langt undir því sem fjár­mála­ráð­herra telur æski­legt, en sam­kvæmt nýj­ustu tölum ættu sjóð­irnir að fjár­festa erlendis fyrir þús­und millj­arða til að ná því.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hlutfall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna hefur lækkað nokkuð frá byrjun árs, þrátt fyrir losun gjald­eyr­is­hafta. Sjóð­irnir þyrftu að fjár­festa rúm­lega 1.000 millj­arða erlendis, vilji þeir ná því hlut­falli sem fjár­mála­ráð­herra telur vera æski­legt.

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra sagði í við­tali við Kjarnann í júní að hann teldi hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóða af heild­ar­eignum ætti að vera um 50%. Einnig sagði hann að það komi vel til greina að grípa til aðgerða við að þrýsta sjóð­unum í frek­ari erlendar fjár­fest­ingar ef þeir hreyfi sig ekki sjálfir í þá átt.

„Hlutfall þeirra í t.d. inn­lendum hluta­bréfum er orðið óþægi­legt félags­lega. Ég held að það væri heil­brigt að þeir færu meira út og að almenn­ingur færi að huga meira að því að dreifa sinni áhættu með gjald­eyr­is­reikn­ingum,“ segir Benedikt.

Í byrjun árs 2017 var hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna 22,6%. Undir lok maí­mán­aðar hafði það hins vegar lækkað niður í 21,0%, sam­kvæmt nýbirtum tölum Seðla­bank­ans. Vilji líf­eyr­is­sjóð­irnir hækka hlut­fall erlendra eigna upp í 50% þyrftu þeir að færa 1.055 millj­arða úr inn­lendum fjár­fest­ingum út fyrir land­stein­ana.

[links]Rýrnun erlendra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna má að nokkru leyti útskýra með hækkun geng­is­ins, en íslenska krónan hafði styrkst tölu­vert á tíma­bil­inu jan­úar-maí. Þar sem erlendar eignir eru gefnar upp í íslenskum krónum rýrn­uðu þær sam­hliða styrk­ingu krón­unnar.

Samkvæmt árs­reikn­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna voru hlut­föll erlendu eigna þeirra undir lok árs 2016 eins og sjá má á töflu hér að neðan. Hlutfall erlendra fjár­fest­inga þess­ara átta líf­eyr­is­sjóða var oft­ast rúm­lega 20%. Lægst var það hjá Líf­eyr­is­sjóði verk­fræð­inga en hæst hjá Frjálsa líf­eyr­is­sjóðnum.

Líf­eyr­is­sjóðirHlutfall erlendra eigna í árs­lok 2016
Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins17%
Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna26%
Gildi26%
Festa18%
Líf­eyr­is­sjóður verk­fræð­inga14%
Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn23%
Stapi24%
Frjálsi28%
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár