Erlendar eignir lífeyrissjóðanna hafa dregist saman um 27 milljarða

Töluvert dró úr erlendum eignum líf­eyr­is­sjóð­anna í maí­mánuð, sam­hliða mik­illi styrk­ingu krón­unnar.

Erlendar eignir lífeyrissjóðanna hafa minnkað frá afléttingu hafta.
Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna hafa minnkað frá aflétt­ingu hafta. Mynd: Úr safni.

Erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna dróg­ust saman um 27 millj­arða í maí­mánuð, sam­kvæmt nýrri birt­ingu hagtalna á vef Seðla­bank­ans.

Heild­ar­eignir líf­eyr­is­sjóð­anna námu 3.633 millj­arða i lok maí, en það er um 28 millj­arða lægri en í lok apríl. Innlendu eign­irnar hreyfð­ust lítið, eða um 400 millj­ónir. Hins vegar minnk­uðu erlendar eignir sjóð­anna úr 789 millj­arða niður í 761 millj­arð, eða um 27 millj­arða.

[adspot]Á sama tíma­bili styrkt­ist raun­gengi íslensku krón­unnar um 5,6%, en það var mesta mán­að­ar­lega styrk­ing frá því í febr­úar 2009. Hugsast getur að lækkun erlendra eigna sé vegna mik­illar styrk­ingar krón­unnar á und­an­förnum mán­uðum.

Á mynd fyrir neðan sést hvernig erlendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna hafa lækkað frá aflétt­ingu hafta í mars síð­ast­liðnum.

Kjarninn birti nýlega við­tal við Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra, en þar sagði hann að það komi vel til greina að grípa til aðgerða við að þrýsta íslenskum líf­eyr­is­sjóðum í frek­ari erlendar fjár­festar ef þeir hreyfi sig ekki sjálfir í þá átt. Enn fremur sagði hann það vera skyn­sam­legt fyrir þá að fara í meiri fjár­fest­ingar erlendis út frá áhættu­dreif­ing­ar­sjón­ar­miði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár