Í þá tíð… Ópið endurheimt

Ópið, hið ódauðlega listaverk Edvards Munch, var endur­heimt eftir að því var rænt nokkrum vikum áður. Verkið er eitt hið frægasta og dýrasta í lista­sögunni og var annarri útgáfu af verkinu stolið áratug síðar.

Þjófar kröfðust einnar milljónar dala fyrir að skila Ópinu. Sú áætlun gekk ekki upp og verki fannst um síðir.
Þjófar kröfð­ust einnar millj­ónar dala fyrir að skila Ópinu. Sú áætlun gekk ekki upp og verki fannst um síðir.

Á þessum degi fyrir réttum 23 árum síðan, hinn 7. maí 1994, endur­heimti norska Þjóð­listasafnið Ópið, lista­verkið víðfræga sem Edvard Munch málaði árið 1893, en því hafði verið stolið nokkrum vikum áður.

Bæði ránið, sem var afar bíræfið, og fundurinn vöktu mikla athygli jafnt innan Noregs sem og á alþjóða­vettvangi, enda er Ópið, sem Much málaði að vísu í nokkrum útgáfum á árunum 1893 til 1910, jafnan talið til merkustu lista­verka allra tíma og þess jafnvel getið í sömu andrá og Mónu Lísu sem Leonardo nokkur DaVinci málaði fjórum öldum fyrr.

Munch og Ópið

Edvard Munch fæddist árið 1863 í þorpinu Løten í Heiðmerkur­fylki, en ólst upp í Osló frá blautu barns­beini. Ógæfa reið yfir fjöl­skylduna þegar Laura móðir Edvards lést úr berklum þegar hann var aðeins fimm ára gamall. Enn syrti svo í álinn níu árum síðar þegar Johanne Sofie stóra systir hans fór sömu leið, aðeins fimmtán ára, en hún var honum afar hjartfólgin. Christian faðir hans var efna­lítill læknir og var mikill aldurs­munur á honum og móður Edvards auk þess sem hann var afar trúaður maður, svo lét nærri ofstæki. Þá veiktist Edvard litli sjálfur af berklum á unga aldri en næsta víst þykir að þessi áföll mótuðu líf hans og lífs­viðhorf verulega þegar fram í sótti.

Á unglings­árunum ákvað hann að helga líf sitt málara­listinni og einungis tvítugur að aldri málaði hann sitt fyrsta full­þróaða verk, Morgunn, sem sýnir hálf­klædda unga konu sem situr á rúmbrík og horfir út um glugga.

Munch prófaði sig áfram með ýmis konar stefnur og tækni og var óhræddur við að fara sínar eigin leiðir. Hann öðlaðist frægð fyrir verk sín, en átti lengi erfitt vegna drykkju og glímu við andlega vanlíðan. Hann var alla tíð einstæðingur og var mikið út af fyrir sig á heimili sínu í Osló síðustu tvo áratugi ævi sinnar, en hann lést árið 1944, rúmlega áttræður að aldri og skildi eftir sig þúsundir verka.

Hann skilur eftir sig mörg merkileg verk, til dæmis Veika barnið – sem er vísun í dauða Johanne Sofie – og fjölmargar sjálfs­myndir, sumar óvægnar, en hans verður alla tíð fyrst og fremst minnst fyrir Ópið.

Ópið sem bergmálar enn í dag

Ópið, meistara­verk Munchs, er til í fjórum útgáfum. Tvær þeirra er að finna á Munch-safninu í Osló, ein í Þjóð­lista­safninu og ein er í einkaeign. Myndin sýnir mann sem stendur á brú og æpir stóreygur, en í baksýn eru tveir menn á brúnni, fjörður og blóð­rauður himinn.

Ófáar lærðar greinar hafa verið skrifaðar um Ópið, hvað það sé sem maðurinn óttast svo mjög, hvers vegna himininn sé rauður og þar fram eftir götunum. Í dagbókar­færslu lýsti lista­maðurinn sjálfur tilurð Ópsins hins vegar á þann veg að hann hafi verið á gangi með tveimur vinum sínum síðla kvölds. Þegar sólin hneig til viðar fann hann ákveðna depurð svífa á sig og himinn roðnaði á örskots­stund.

„Ég nam staðar, hallaði mér að handriðinu, dauð­þreyttur, horfði yfir logandi himininn sem var sem blóð og sverð yfir blás­vörtum firðinum og borginni. Vinir mínir gengu áfram. Ég stóð þar og skalf af ótta og fann stórt og endalaust óp berast í gegnum náttúruna.“

Á öðrum stað í dagbókum sínum segir Munch: „Mér fannst ég heyra óp. Ég málaði þá mynd – málaði skýin sem þau væru úr blóði. Litirnir æptu. Þetta varð að verkinu Ópið.“

„Takk fyrir lélega öryggisgæslu“

Ópið er, sem áður sagði, til í fjórum útgáfum, en Much var gjarn á að gera tilraunir með margs konar aðferðir á sömu verk. Ein útgáfan, sú eina sem er í einkaeigu, seldist á uppboði fyrir 120 milljónir dala árið 2012 og er eitt dýrasta listaverk sem selt hefur verið. Útgáfan sem liggur að baki þessari grein er frá 1893 og er máluð á pappa.

Hinn 12. febrúar 1994 var stolt stund í sögu þjóðar þegar Noregur stökk fram í sviðs­ljósið á alþjóða­vettvangi þegar Vetrar­ólympíu­leikarnir voru settir í Lillehammer. Í tilefni af Ólympíu­leikunum var sett upp sýning á helstu menningar­gersemum Noregs og Ópið var fært af annarri hæð niður á jarðhæð þar sem öryggis­gæsla var mun slakari.

Það var svo klukkan hálf sjö um morguninn að tveir menn hlupu upp að safninu, reistu stiga upp að veg þess, brutu glugga til að komast inn, klipptu myndina niður af veggnum með vírklippum og ruku á dyr. Allt í allt tók verknaðurinn aðeins um 50 sekúndur, en ræningjarnir skildu meira að segja eftir orðsendingu á póstkorti þar sem stóð „Takk for dårlig sikring“, eða „Takk fyrir lélega öryggis­gæslu“.

Allt kapp var lagt á að leysa málið sem var hin mesta hneysa, og gengu margar kenningar í fyrstu, meðal annars lýstu samtök sem börðust gegn fóstur­eyðingum ábyrgðinni á hendur sér, en það þótti ótrúlegt, en meðal annars var getum leitt að því að skipuleggjendur Ólympíu­leikanna hefðu sviðsett ránið til að beina athygli heims­byggðarinnar að leikunum, þar sem það þótti óhugsandi að nokkur gæti selt verkið.

Ræningjar gengu í gildru en sluppu vel

Safninu barst innan tíðar krafa um lausnar­gjald. Fyrir eina milljón Bandaríkja­dala yrði myndinni skilað á sinn stað. Ekki var gengið að kröfunum, en norska lögreglan fór þegar að leggja á ráðin með bresku lögreglunni, Scotland Yard, að leggja gildru fyrir ræningjana. Breskir útsendarar komu sér í samband við þrjótana og sögðust vilja kaupa verkið á um þriðjung upphæðarinnar sem þeir kröfðust fyrst.

Áætlunin gekk upp og hinn 7. maí var meistara­verkið komið á sinn réttmæta stað, svo til óskemmt, og fjórir menn voru hand­teknir. Höfuð­paurinn í hópi ræningjanna var Pål Enger, sem hafði, merkilegt nok, hlotið dóm nokkrum árum áður fyrir að ræna öðru verki eftir Munch, Vampír­unni.

Mennirnir hlutu þunga dóma. Enger fékk þyngsta dóminn, rúmlega sex ára fangelsi, en svo fór þó að dómar þriggja þeirra voru ógiltir vegna formgalla á rannsókn þar sem bresku lögreglu­mennirnir höfðu komið til landsins á fölsuðum skilríkjum.

Það er að segja af Enger að hann virtist hafa lent á fótunum eftir að hann losnaði út, þar sem hann haslaði sér völl sem málari og listaverka­sali og keypti meðal annars verk eftir Munch, með löglegum hætti. Síðustu ár hefur hann hins vegar verið flæktur í annað þjófnaðarmál sem ekki hefur verið til lykta leitt að fullu. Hann var upphaf­lega dæmdur fyrir að stela fimmtán verkum eftir Hariton Pushwagner, Vebjørn Sand og Camilla Grythe, en hann sver og sárt við leggur að hafa bara stolið fimm þeirra.

Líka rænt áratug síðar

Öðru eintaki af Ópinu var rænt árið 2004, en það var úr Munch-safninu og er málað á pappa árið 1910. Tveir vopnaðir menn óðu inn í safnið um hábjartan dag og stungu af með Ópið og Madonna, annað af helstu verkum Munchs. Á næstu mánuðum voru allnokkrir menn hand­teknir, grunaðir um aðild að ráninu, en verkin fundust ekki strax þrátt fyrir að fimm menn fengju dóma vegna ránsins í upphafi ársins 2006. Óttast var að ræningjarnir hefðu eytt verkunum af ótta við að nást, en svo gerðist það í ágúst það sama ár að verkin fundust, nokkuð skemmd en þó í betra ástandi en margir óttuðust. Þau fóru aftur í sýningu eftir viðgerð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár