Segir orkuskiptin gjörbreyta valdajafnvægi heimsins

Aukin áhersla á græna orku­gjafa mun leiða til nýrrar teg­undar stjórn­mála þar sem vald stórra ríkja sem reiða sig á fram­leiðslu jarð­efna­elds­neytis mun dvína, segir Ólafur Ragnar Grímsson í við­tali við Financial Times.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum for­seti Íslands og for­maður Alþjóða­ráðs um stjórn­mál orku­skipta, segir að yfir­stand­andi orku­skipti úr jarð­efna­elds­neyti í græna orku­gjafa muni gjör­breyta valda­jafn­vægi á heims­vísu. Olíurík lönd missa valda­stöðu sína í heims­hag­kerf­inu þar sem önnur lönd þurfa ekki að reiða sig á þau til að verða sér úti um orku.

Þetta kemur fram í við­tali Ólafs Ragnars við breska blaðið Financial Times, sem birt­ist fyrr í dag og var liður í umfjöllun þess um áhrif orku­skipt­anna á alþjóða­stjórn­mál.

Samkvæmt umfjöll­un­inni eru skiptar skoð­anir um hvers konar áhrif grænir orku­gjafar muni hafa á vald­jafn­vægi milli ríkja heims­ins, en sumir telja að þeir verði ein­ungis notað sem tól ríkj­andi stór­velda til að halda völdum.

Ólafur Ragnar telur hins vegar að orku­skiptin muni leiða til nýrrar teg­undir stjórn­mála: „Á meðan jarð­efna­elds­neyti fer smátt og smátt út úr orku­kerf­inu...mun gamla stjórn­mála­skip­anin með stór­veldi sem orku­gjafa einnig fara á brott. Smátt og smátt mun vald þess­ara ríkja sem voru mik­il­væg í heimi sem reiðir sig á jarð­efna­elds­neyti, eða stórra fyr­ir­tækja líkt og olíu­fyr­ir­tækja, fjara út.“

Hins vegar segir Ólafur að enn verði stórar valda­blokkir í orku­málum á heims­vísu til þótt grænir orku­gjafar verði ráð­andi, en að þær verði ekki jafn valda­miklar og olíu­veldin eru núna. Þess vegna segir hann að ekki ætti að líta á lönd eins og Kína, sem hefur for­skot á mörg önnur ríki í umhverf­is­vænni orku­fram­leiðslu, sem ógn, þar sem erfitt verður fyrir landið að beita jafn­miklu valdi á önnur ríki og olíu­rík lönd hafa gert á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár