Katrín veltir fyrir sér kúvendingu VG í stjórnarskrármálum

Formaður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins segir að kannski sé skárra að Vinstri græn séu „loks­ins heið­ar­leg“ með afstöðu til nýju stjórn­ar­skrár­innar frekar en að „þykj­ast vilja virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar til að næla sér í atkvæði fyrir kosn­ingar“.

Katrín Oddsdóttir
Katrín Odds­dóttir Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Odds­dóttir for­maður Stjórn­ar­skrár­fé­lags­ins bendir á í færslu á Facebook í dag að stefnu­breyt­ing hafi orðið hjá Vinstri grænum varð­andi nýju stjórn­ar­skrána.

Vísar hún í ályktun lands­fundar VG sem birt var í gær. „En í 30. máls­grein má síðan finna nýja stefnu flokks­ins um stjórn­ar­skránna. Þar segir: „Halda þarf áfram end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Löngu er tíma­bært að ný ákvæði um auð­lindir í þjóð­ar­eign og umhverfis- og nátt­úru­vernd hljóti afgreiðslu Alþingis en einnig þarf að ráð­ast í tíma­bærar breyt­ingar á öðrum köflum. End­ur­skoða þarf mann­rétt­inda­kafla stjórn­ar­skrár­innar meðal ann­ars með hlið­sjón af rétt­inum til mennt­unar, heil­brigðis og lífs­við­ur­væris.”,“ skrifar hún.

Katrín ber saman þessa stefnu við stefnu flokks­ins í sama máli árið 2017 en þá var nýja stjórn­ar­skráin í stefn­unni. „Ljúkum þeirri vinnu sem hófst með þjóð­fund­inum 2010 og klárum nýja stjórn­ar­skrá sem byggir á til­lögum Stjórn­laga­ráðs,” sagði í stefn­unni frá árinu 2017.

Skárra að „þau séu loksins heiðarleg“

Veltir Katrín fyrir sér þess­ari kúvend­ingu. „Eftir þetta kjör­tíma­bil þyrfti það svo sem ekki að koma neinum á óvart að VG vilji ekki nýju stjórn­ar­skrána og kannski er skárra að þau séu loks­ins heið­ar­leg með þetta frekar en þykj­ast vilja virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar til að næla sér í atkvæði fyrir kosn­ingar.“

Katrín seg­ist bera virð­ingu fyrir nöfnu sinni, Katrínu Jak­obs­dóttur for­manni VG. „Í mínum huga er þó ljóst að ef kjós­andi vill leggja áherslu á að Alþingi virði nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar frá 2012 um að leggja nýju stjórn­ar­skrána til grund­vallar sem stjórn­ar­skrá Íslands, ætti hann alls ekki að ráð­stafa sínu atkvæði til VG.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár