Tveir stærstu sjóðirnir sem eiga í HB Granda ekki búnir að ákveða sig

LSR og Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, sem eru stærstu hlut­hafar HB Granda að Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur frá­töldu, hafa ekki ákveðið hvort þeir sam­þykki kaup félags­ins á eignum frá stærsta eig­and­anum á hlut­hafa­fundi á morgun.

HB Grandi er eina sjávarútvegsfyrirtæki landsins sem er skráð á markað.
HB Grandi er eina sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins sem er skráð á markað. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hvorki Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) né Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, sem eru báðir á meðal stærstu eig­enda HB Granda, hafa tekið ákvörðun um hvort að þeir muni greiða atkvæði með þvi að félagið kaupi allt hlutafé í sölu­­fé­lögum í Jap­an, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi, af Útgerð­­ar­­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­­arða króna. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er stærsti hlut­hafi HB Granda og for­stjóri HB Granda, Guð­mundur Krist­jáns­son, er stærsti hlut­hafi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur.

[links]Gildi líf­eyr­is­sjóður, sem er einnig stór hlut­hafi í HB Granda, til­kynnti í gær að sjóð­ur­inn muni greiða atkvæði gegn kaup­unum á hlut­hafa­fundi sem fram fer á fimmtu­dag. Í til­kynn­ingu vegna þess kom meðal ann­ars fram að við­skipti við tengda aðila yrðu að vera hafin yfir allan vafa. Þær fyr­ir­ætl­anir sem fyrir liggi séu ekki trú­verð­ugar og sjóð­ur­inn telji að ekki hafi verið sýnt fram á að aðrar leiðir séu ekki færar til þess að ná fram sömu mark­mið­um, mög­u­­lega með minni til­­­kostn­að­i.

Davíð Rúd­ólfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar og stað­geng­ill for­stjóra Gildis líf­eyr­is­sjóðs, sagði í sam­tali við Kjarnann í gær að „um­fangs­mikil og ítrekuð við­skipti stærsta hlut­hafa HB Granda við félagið eru óheppi­leg að okkar mati. Slíkt er for­dæma­laust á inn­lendum hluta­bréfa­mark­að­i.“

[adspot]Fjórir líf­eyr­is­sjóð­ir: Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), Gildi og líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Birta eiga sam­tals 40,11 pró­sent hlut í HB Granda.

A og B-deild LSR eru sam­an­lagt stærsti eig­and­inn í líf­eyr­is­sjóða­hópnum með alls 15,15 pró­sent eign­ar­hlut. A-deildin á 11,37 pró­sent hlut en B-deildin 3,78 pró­sent. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um afstöðu sjóðs­ins til kaupanna á sölu­fé­lög­unum kom fram að málið væri enn í skoðun.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna á 12,53 pró­sent hlut í HB Granda. Í svari frá sjóðnum vegna fyr­ir­spurnar um afstöðu hans til máls­ins sagði að hann væri að afla upp­lýs­inga, meðal ann­ars með fyr­ir­spurnum til HB Granda, Þá hafi starfs­menn sjóðs­ins átt fund með full­trúum félags­ins. „Endanleg ákvörðun verður tekin að fengnum öllum þeim upp­lýs­ingum sem unnt er að afla. Við áskiljum okkur jafn­framt rétt til að kveða ekki upp úr um málið fyrr en til atkvæða­greiðslu kemur.“

Ætlað kaup­verð á sölu­fé­lög­unum er, líkt og áður sagði, 4,4 millj­arðar króna og lagt hefur verið til að kaup­verðið verði greitt með 7,3 pró­­sent aukn­ingu á hlutafé HB Granda. Verði kaupin sam­­þykkt mun hlutur Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­víkur í HB Granda hækka úr 35,01 pró­sent í 42,31 pró­­sent í HB Granda. Við það verður eign­ar­hlutur Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur stærri en sam­eig­in­legur eign­ar­hluti líf­eyr­is­sjóð­anna fjög­urra sem eiga stóran hlut í HB Granda.

Fyrir hlut­hafa­fund­inum á morgun liggur einnig fyrir breyt­ing­ar­til­laga um að breyta nafni HB Granda í Brim, sem er það nafn sem Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur bar árum saman og Guð­mundur Krist­jáns­son er oft­ast kenndur við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár