Fjöl­skylda í laut­ar­ferð Í kvik­mynd­inni The Zone of Interest er athygl­inni beint að hvers­degi fjöl­skyldu sem stuðlar að og er vitni að hryll­ingi dag hvernig hryll­ing­ur­inn verður hvers­dags­legur fyrir þeim.

Nasistar og nútíminn á hvíta tjaldinu

Kvik­myndin The Zone of Interest í leik­stjórn Jonathan Glazer tekst á við helförina en á annan hátt en venja er fyrir, hún skoðar hrylling hennar í gegnum hvers­dags­legt líf gerenda hennar, fjöl­skyldu sem bjó beint fyrir utan Auschwitz-útrýmingar­búðirnar. Myndin er ekki um þá fjöl­skyldu þó hún sé svo sannarlega í miðju hennar. Leik­stjórinn hefur sagt að myndin sé ekki gluggi inn í fortíðina heldur viðvörun fyrir nútímann.

Kvik­myndin The Zone of Interest í leik­stjórn Jonathan Glazer byrjar í myrkri og með drunga­fullu tónverki Mica Levi sem varir í nokkrar mínútur þar til hljóðmynd, fugla­söngur tekur við. Myrkrið og tónverkið gefur áhorf­endum til kynna að myndin er alvarleg enda um mann sem stjórnaði frægustu útrýmingar­búðum nasista og fjöl­skyldu hans á því tímabili sem flestir voru myrtir í búðunum. 

Við myrkrinu tekur við mynd eins og úr fjölskyldu­albúmi, fjöl­skylda í lautar­ferð við stöðuvatn að sumri. Fjölskyldu­faðirinn, Rudolf Höss, stendur á sund­fötunum og horfir á börnin sín leika sér með magana fulla af jarðar­berjum og konan hans, Hedwig Höss, gefur ungbarni þeirra eplabita. Því næst er fjöl­skyldan á hreyfingu, á göngu í skógi, á leið heim í bíl, börnin hlæjandi í aftur­sætinu.

Þau keyra eftir vegi og beygja svo inn á annan að því sem nasistar kölluðu Áhuga­svæðið, eða The Interest Zone, svæðið í kringum útrýmingar­búðirnar þar sem …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár