Vill girða fyrir stuðning til fyrirtækja sem setja upp skattahagræðisfléttur

Nefnd­ar­maður í efna­hags- og við­skipa­nefnd segir ekki girt fyrir að fyr­ir­tæki sem setji upp skatta­hag­ræð­is­fléttur fái stuðn­ing úr rík­is­sjóði, þrátt fyrir að meiri­hluti nefnd­ar­innar reyni að „slá ryki í augu“ þings og þjóðar um annað.

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingar.
Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Oddný G. Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í efna­hags- og við­skipta­nefnd segir að ekki sé girt fyrir að fyr­ir­tæki sem setji upp fléttur til að greiða lægri skatta á Íslandi njóti stuðn­ings úr rík­is­sjóði vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Hún segir meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar mistúlka tekju­skattslögin með því að segja nægi­legt að gera kröfu um að þeir sem njóti stuðn­ings rík­is­ins hafi „fulla og ótak­mark­aða skatt­skyldu“ á Íslandi og leggur til að frek­ari kröfur verði gerðar til þess að koma í veg fyrir að fé úr rík­is­sjóði renni til fyr­ir­tækja sem hafa stundað skatta­snið­göngu.

„Allir sem afla sér tekna hér á landi eru með fulla og ótak­mark­aða skatt­skyldu hér. Ekkert fyr­ir­tæki er þar und­an­skilið. En það úti­lokar ekki skatt­und­an­skot eða skatta­snið­göngu með aðstoð aflands­svæða,“ segir Oddný, í nefnd­ar­á­liti sínu vegna laga­frum­varps um stuðn­ing til minni rekstr­ar­að­ila vegna heims­far­ald­urs­ins.

Oddný segir engin ný skil­yrði séu sett fyrir stuðn­ingi úr rík­is­sjóði í breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta nefnd­ar­innar og bætir við að það sem meiri­hlut­inn hafi sett fram sé „ein­göngu til að slá ryki í augu þing­manna og almenn­ings.“

Fyrrverandi ríkisskattstjóri sömu skoðunar

Í nefnd­ar­á­liti sínu vísar Oddný til umfjöll­unar Indriða H. Þor­láks­sonar, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóra, sem rit­aði pistil um málið á vef­síðu sína á dög­unum og sagði þar í inn­gangi að kunn­átta í tekju­skattslögum virt­ist ekki hátt skrifuð á Alþingi nú til dags.

„Skatt­und­an­skot og skatta­snið­ganga með aðstoð aflands­svæða felst í því að skatt­að­ili með „fulla og ótak­mark­aða skatt­skyldu“ hér á landi flytur tekjur sem hér er aflað til félags utan skatta­lög­sögu Íslands, oft­ast skúffu­fyr­ir­tækis á lág­skatta­svæði. „Full og ótak­mörkuð skatt­skylda“ kemur ekki í veg fyrir það. Hún er þvert á móti nauð­syn­leg for­senda því ann­ars er ekki um neinar tekjur að ræða. Þessar ráð­staf­anir sem slíkar eru yfir­leitt ekki ólög­legar en þær kunna að fela í sér að með þeim sé verið að snið­ganga skatta­lögin, að láta líta svo út að tekjur íslenska rekst­ar­ar­að­il­ans séu tekjur ein­hvers ann­ars,“ rit­aði Indriði í grein sinni.

Oddný leggur til að lögin sem kveða á um stuðn­ings­lán og lok­un­ar­styrki við lítil fyr­ir­tæki, gildi ekki um ein­stak­linga eða lög­að­ila sem hafi með höndum „eign­ar­hald eða stjórnun í hvers kyns félagi, sjóði eða stofnun sem telst heim­il­is­föst í lág­skatta­ríki“ í skiln­ingi tekju­skatts­laga, „né um lög­að­ila í beinu eða óbeinu eign­ar­haldi eða undir stjórn hvers kyns félags, sjóðs eða stofn­unar sem telst heim­il­is­föst í lág­skatta­ríki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár