Norsk Hydro gerir tilboð í álverið í Straumsvík

Risa­fyr­ir­tæki sem er að mestu leyti í eigu norska rík­is­ins og norska olíu­sjóðs­ins hefur gert til­boð í álverið í Straums­vík og eign­ar­hluti í tveimur öðrum álverum Rio Tinto. Tilboðið í heild er upp á tæpa 35 millj­arða króna.

Norska fyr­ir­tækið Norsk Hydro ASA hefur gert skuld­bind­andi til­boð um að kaupa álverið í Straums­vík af núver­andi eig­anda þess, Rio Tinto. Í frétta­til­kynn­ingu á heima­síðu Norsk Hydro segir að í til­boð­inu felist að kaupa allt hlutafé í íslenska álver­inu, 53 pró­sent hlut í hol­lenskri verk­smiðju Rio Tinto og helm­ings hlut í sænskri verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins. Tilboðið í allan pakk­ann hljóðar upp á 345 millj­ónir dali, eða 34,7 millj­arða króna.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Svein Richard Brandtzæg, for­stjóri Norsk Hydro, að til­boðið end­ur­spegli mikla trú fyr­ir­tæk­is­ins á álf­ram­leiðslu. Eft­ir­spurn eftir því sé að vaxa meira en eftir nokkrum öðrum málmum á heims­vísu.

Norsk Hydro er eitt stærsta álfyr­ir­tæki í heimi. Norska ríkið á 43,8 pró­sent hlut í því og norski olíu­sjóð­ur­inn á auk þess 6,5 pró­sent hlut. Hjá fyr­ir­tæk­inu starfa um 13 þús­und manns. Hluta­bréf Norsk Hydro eru skráð í kaup­höll­inni í Osló.

Rannveig Rist, for­stjóri álvers­ins í Straums­vík, greindi starfs­mönnum sínum frá því á fundi í sept­em­ber í fyrra að Rio Tinto, eig­andi þess, væri að end­ur­skoða eign­ar­hald sitt á álver­inu. Afkoma álvers­ins hefur verið slök und­an­farin ár og umtals­vert tap hefur verið á rekstr­inum.

Ketill Sig­ur­jóns­son, orku­sér­fræð­ingur, fjall­aði ítar­lega um mögu­lega sölu álvers­ins í grein á Kjarn­anum í kjöl­farið. Þar sagði hann að þó svo að álverið í Straums­vík sé nú minnsta álverið á Íslandi sé Straums­vík­ur­verið geysi­lega mik­il­vægur við­skipta­vinur fyrir Lands­virkjun. Álverið notar um fjórð­ung af allri þeirri raf­orku sem Lands­virkjun fram­leiðir en skilar Lands­virkjun um þriðj­ungi af öllum sölu­tekjum fyr­ir­tæk­is­ins. Þar með megi segja að álverið í Straums­vík sé mik­il­væg­asti við­skipta­vinur Lands­virkj­un­ar.

Núgild­andi raf­orku­samn­ingur álvers­ins og Lands­virkj­unar gildir til 2036, en end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði um raf­orku­verðið verður virkt 2024. Straums­vík­ur­verið er nú að greiða lang­hæsta orku­verðið af öllum álver­unum hér, enda með nýjasta samn­ing­inn (nýr samn­ingur Lands­virkj­unar og Norð­ur­áls verður ekki virkur fyrr en 2019). Raf­orku­verðið sem Straums­vík­ur­verið greiðir er samt ekk­ert mjög hátt í alþjóð­legu sam­hengi, að sögn Ketils.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár