Verður Straumsvíkurverið selt?

Álverið í Straums­vík er til sölu, en sölu­ferlið verður þó langt og strangt. En hvaða mögu­leikar eru í boði?

Þær fréttir ber­ast að Rio Tinto vilji selja álver sitt í Straums­vík. Ásamt tveimur öðrum álverum. Hér verður athygl­inni beint að stöðu áliðn­að­ar­ins í dag og því hver gæti séð tæki­færi í því að eign­ast Straums­vík­ur­verið.

Mikilvægasti viðskiptavinur Landsvirkjunar

Þó svo álverið í Straums­vík sé nú minnsta álverið á Íslandi er Straums­vík­ur­verið geysi­lega mik­il­vægur við­skipta­vinur fyrir Lands­virkjun. Álverið notar um fjórð­ung af allri þeirri raf­orku sem Lands­virkjun fram­leiðir en skilar Lands­virkjun um þriðj­ungi af öllum sölu­tekjum fyr­ir­tæk­is­ins. Þar með má segja að álverið í Straums­vík sé mik­il­væg­asti við­skipta­vinur Lands­virkj­unar.

Núgild­andi raf­orku­samn­ingur álvers­ins og Lands­virkj­unar gildir til 2036, en end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði um raf­orku­verðið verður virkt 2024. Straums­vík­ur­verið er nú að greiða lang­hæsta orku­verðið af öllum álver­unum hér, enda með nýjasta samn­ing­inn (nýr samn­ingur Lands­virkj­unar og Norð­ur­áls verður ekki virkur fyrr en 2019). Raf­orku­verðið sem Straums­vík­ur­verið greiðir er samt ekk­ert mjög hátt í alþjóð­legu sam­hengi.

Ekki er vitað hvort móð­ur­fyr­ir­tækið Rio Tinto ber ábyrgð á því að staðið sé við raf­orku­samn­ing álvers­ins á gild­is­tíma samn­ings­ins. Sá sem þetta skrifar álítur lík­legt að slík móð­ur­fé­lags­á­byrgð sé fyrir hendi, en ef svo er ekki gæti gjald­þrot álvers­ins orðið mikið áfall fyrir Lands­virkjun. Slíkt gjald­þrot er vel að merkja ekki yfir­vof­andi; álverð yrði að verða mjög lágt tals­vert lengi til að slík hætta myndi skap­ast.

Offramboð og óvissa

Með mik­illi aukn­ingu á álf­ram­leiðslu í Kína (sbr. grafið hér í lok grein­ar­innar) hefur mynd­ast offram­boð af áli og vest­ræni áliðn­að­ur­inn haft vax­andi áhyggjur af álút­flutn­ingi frá Kína (og fengið stuðn­ing frá Trump Banda­ríkja­for­seta). Und­an­farin miss­eri hefur álverð engu að síður farið hækk­andi. Það bendir til þess að farið sé að draga úr því mikla offram­boði sem var fyrir fáeinum árum. Staðan er þó við­kvæm vegna veru­legra álbirgða í Kína, offjár­fest­ingar þar í álverum og sífelldrar hættu á offram­boði.

Kín­verski áliðn­að­ur­inn hefur ekki aðeins vaxið mjög hratt á örskömmum tíma, heldur starfa álbræðsl­urnar þar í afar sér­kenni­legu umhverfi sem er mjög háð mið­stýrðri ákvarð­ana­töku kín­verskra stjórn­valda hverju sinni. Fyrir vikið er í reynd ómögu­legt að sjá fyrir verð­þróun á áli. Jafnvel þó svo álfyr­ir­tækjum á Vest­ur­löndum hafi mörgum gengið vel und­an­farið að skera niður kostnað og ná að aðlaga sig að breyttu rekstr­ar­um­hverfi, er offram­boð frá Kína sífellt yfir­vof­andi.

Þessi staða hefur gert það að verkum að und­an­farið hafa sum álfyr­ir­tæki á Vest­ur­löndum stefnt að því að losna við álver og draga þannig úr áhættu sinni. Þetta á senni­lega hvað helst við um BHP Billiton (South32) og Rio Tinto, en þessa stefnu má líka greina hjá Alcoa. Á allra síð­ustu mán­uðum virð­ist þó sem bjart­sýni í vest­ræna áliðn­að­inum hafi heldur auk­ist og því kemur ákvörðun Rio Tinto núna svo­lítið á óvart.

Eignast Glencore Straumsvíkurverið?

Þó svo þró­unin á álmark­aði sé óviss um þessar mundir, einkum vegna áhrifa Kína, er staðan núna þó vafa­lítið tals­vert betri en var fyrir u.þ.b. tveimur árum. Þess vegna er vissu­lega mögu­legt að kaup­andi finn­ist að Straums­vík­ur­ver­inu. Þar er þó varla um auð­ugan garð að gresja, enda erfitt að ná við­un­andi arði út úr rekstri álvers­ins nema að það sé í eigu stór­fyr­ir­tækis sem ræður yfir allri virð­is­keðju áliðn­að­ar­ins. Fyrir vikið virð­ist lík­leg­ast að kaup­andi álvers­ins yrði eitt­hvert af stóru álfyr­ir­tækj­unum, en hvort það yrði t.a.m. norska Hydro eða rúss­neska Rusal skal ekk­ert full­yrt um.

Einnig er vert að hafa í huga að und­an­farið hafa birst fréttir um mögu­leg kaup hrá­vöruris­ans Glencore og álfyr­ir­tæk­is­ins Century Aluminum á álverum Rio Tinto í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. Kannski er Rio Tinto áhuga­samt um að þar fylgi enn eitt álverið með í kaup­unum, þ.e. álver þeirra í Straums­vík á Íslandi. Þar með yrði Century stærsti álf­ram­leið­andi á Íslandi, í sam­starfi við aðal­eig­anda sinn; gull­myll­una Glencore. En allt eru þetta vanga­veltur.

Tækifæri fyrir Kína?

Í dag eru ein­ungis tvö vest­ræn álfyr­ir­tæki í hópi fimm stærstu álfyr­ir­tækja í heimi; í þessum ljúfa hópi eru rúss­neska Rusal og ástr­alska/breska Rio Tinto ásamt kín­versku álris­unum Chalco, Hongqiao og Xinfa. Þetta er gjör­breyt­ing frá því sem var fyrir ein­ungis um ára­tug, þegar kín­verski áliðn­að­ur­inn var langt að baki vest­rænu álfyr­ir­tækj­unum. Loks ber að hafa í huga að Persaflóa­ríkin hafa verið mjög vax­andi álf­ram­leið­andi.

Alkunna er að kín­versku álfyr­ir­tækin eiga mjög náið sam­starf við bæði kín­versk stjórn­völd og kín­verska risa­banka (sem oft eru rík­is­bankar). Kín­versku fyr­ir­tækin hafa verið órög við að tryggja kín­verska hags­muni með marg­vís­legum stra­tegískum kaupum í áliðn­aði utan Kína. Nú síð­ast var það einmitt Chalco sem ásamt kín­verskum orku­fyr­ir­tækjum til­kynnti um við­skipti upp á tugi millj­arða banda­ríkja­dala í Gíneu í vest­an­verðri Afríku. Þar eru kín­versku fyr­ir­tækin m.a. að taka yfir báxít­verk­efni sem ástr­alska BHP Billiton þótti ekki nógu arð­bært. Hver veit nema það verði einmitt kín­verskt álfyr­ir­tæki sem sjái tæki­færi í Straums­vík?

Óbreytt eignarhald mögulegt

Sá sem þetta skrifar er þó ekki að spá því að kín­verskt fyr­ir­tæki eign­ist álverið í Straums­vík. Það er reyndar svo að ef álverð helst áfram nálægt því sem nú er, er fátt því til fyr­ir­stöðu að ágætt verði fyrir Rio Tinto að eiga Straums­vík­ur­verið áfram. Þ.a. nið­ur­staðan gæti orðið sú að engin breyt­ing verði á eign­ar­hald­inu.

En allt minnir þetta okkur á það hversu mik­il­vægt er að stór­iðju­fyr­ir­tæki á Íslandi séu með öfl­ugan eig­anda, sem getur ábyrgst risa­vaxin raf­orku­kaupin til langs tíma. Því miður er nýlega til kom­inn kís­il­iðn­aður hér ekki með neitt slíkt að baki sér. Sem kann að vera áhyggju­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár