Babb í bátnum

Nú er Bragi Páll Sigurðarsson, ásamt áhöfn, rétt að komast út úr Miðjarðar­hafinu á siglingu sinni frá Sikiley til Íslands. Skútan Valkyrja virtist vera í eigu mafíósa áður en Bragi fékk hana í hendurnar sem leiddi til mikilla trafala og tafa. Hefði allt farið eftir áætlun ætti Valkyrja að koma í höfn í Írlandi seinna í dag en skútan þúsund mílum á eftir áætlun.

Brattir í upphafi ferðar
Brattir í upp­hafi ferðar Bragi Páll Sig­ur­ar­son sá við­skipta­tæki­færi í að kaupa sér skútu fyrir ferða­menn og keypti því skútu af manni nokkrum frá Sikiley. Bragi smal­aði ólík­leg­ustu mönnum saman til að sigla skút­unni frá Sikiley til Íslands. Með í för voru Almar Atlason í kass­anum og Frank Arthur Blöndahl Cassata. Á mynd­ina vantar Sigurð Pál Jónsson, pabbi Braga og alþing­is­mann, sem einnig er með í för. Mynd: Úr einkasafni

Bragi Páll Sigurðarson sá viðskipta­tækifæri í að kaupa sér skútu fyrir ferðamenn og keypti því skútu af manni nokkrum frá Sikiley. Bragi smalaði ólíklegustu mönnum saman til að sigla skútunni frá Sikiley til Íslands. Tveir hafa aldrei komið nálægt sjó eða siglingum, en í för eru þeir Almar Atlason í kassanum, Frank Arthur Blöndahl Cassata og Sigurður Páll Jónsson, pabbi Braga og alþingis­maður. 

Siglingin er hálfnuð og skútan, sem samkvæmt áætlun hefði átt að vera að sigla í höfn á Írlandi um þessar mundir, er rétt svo komin út úr Miðjarðar­hafinu og þar með þúsund mílum á eftir áætlun. Sigurður Páll er farin til Íslands að sinna þing­störfum og áhöfnin upplifir stemninguna með mismun­andi hætti. 

Almar S. Atlason

Blaða­maður: Hvernig hefur þú það?

Almar: Ég hef það ágætt.

Blaða­maður: Getur þú lýst fyrir mér ferða­laginu?

Almar: Ferða­lagið er búið að einkennast af miklum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár