Mynd: Pexels

Parísarsáttmálinn – tímamótasamningur en tíminn á þrotum

Kjarninn fer yfir Par­ís­ar­sátt­mál­ann, kosti hans og galla, hvernig staðan er í dag og hvernig staðan gæti orðið ef ekki er gripið til rót­tækra aðgerða.

Lofts­lags­breyt­ingar eru óum­deil­an­lega flókn­asta og alvar­leg­asta umhverf­is­mál sem alþjóða­sam­fé­lagið stendur frammi fyrir. Þetta hefur verið vitað í ára­tugi en árið 1992 var ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna um umhverfi og þróun haldin í Rio de Janeiro, einnig þekkt sem Ríófund­ur­inn. Þar var Ramma­samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (UNFCCC) sam­þykktur af 155 ríkjum og Evr­ópu­sam­band­inu. Í kjöl­farið var fyrsta aðild­ar­ríkja­þing lofts­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna (Conference of Parties, eða COP) haldið árið 1995. Síðan þá hafa árlegar ráð­stefnur verið haldnar þar sem hátt í 200 ríki eiga í við­ræðum og taka ákvarð­anir varð­andi aðgerðir í lofts­lags­málum.

Þrátt fyrir ára­tugi af samn­inga­við­ræðum hafa þessar ráð­stefnur skilað tak­mörk­uðum árangri. Ríki sem taka þátt í ráð­stefn­unum eru ólík af stærð, stjórn­ar­fari og eru mis­næm fyrir afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga. Þegar ákvarð­anir eru teknar þarf að vera sam­staða á milli þess­ara ólíku ríkja. Því miður vill nið­ur­staðan oft verða sú að lægsti sam­nefn­ar­inn ræður för.

Milli­ríkja­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) hefur það hlut­verk að taka saman vís­inda­legar, tækni­legar, félags- og efna­hags­legar upp­lýs­ingar um lofts­lags­breyt­ingar af manna­völdum. IPCC hefur bent á að nauð­syn­legt sé að halda hlýnun jarðar undir 1,5°C ann­ars muni það hafa skelfi­legar afleið­ingar fyrir jarð­ar­búa, líf­ríki og vist­kerfi á jörð­inni.

Í París árið 2015 komu ríki heims sér loks­ins saman um nauð­syn­leg lofts­lags­mark­mið og skrif­uðu undir hinn umtal­aða Par­ís­ar­sátt­mála. Þá komust ríki heims að þeirri sam­eig­in­legu nið­ur­stöðu að til að stemma stigu við lofts­lags­breyt­ingar þyrftu allir að leggj­ast á eitt til að halda hnatt­rænni hlýnun and­rúms­lofts­ins vel undir 2°C að með­al­tali miðað við með­al­hita­stig við upp­haf iðn­væð­ing­ar­innar og reyna með fremsta megni að halda hlýn­unni undir 1,5°C fyrir árið 2100.

Hvernig virkar Parísarsáttmálinn?

Meg­in­mark­mið sátt­mál­ans er að halda hlýnun jarðar vel undir 2°C, en auk þess er lögð áhersla á að styrkja stöðu þró­un­ar­ríkja til að aðlag­ast lofts­lags­breyt­ingum og ná hápunkti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eins fljótt og hægt er. Mark­miðið er að alþjóð­legu kolefn­is­hlut­leysi verði náð um miðja þessa öld, þ.e. að draga úr losun eins mikið og hægt er og bæta upp fyrir eft­ir­stand­andi losun með kolefn­is­bind­ingu.

Í stuttu máli virkar Par­ís­ar­sátt­mál­inn svona: Til að ná settum mark­miðum sátt­mál­ans setja aðild­ar­ríki sér sjálf­stæð mark­mið um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loff­teg­unda, svo­nefnd lands­á­kvörðuð fram­lög eða lands­mark­mið (Nationally Det­ermined Contributions eða NDCs). Þá leggur hvert ríki fram drög að því hversu mikið þau ætla að draga úr losun til árs­ins 2030. Á fimm ára fresti þurfa ríki síðan að skila inn nýjum og metn­að­ar­fyllri mark­miðum. Til dæmis skil­aði Evr­ópu­sam­bandið inn mark­miði árið 2015 um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um 40% fyrir árið 2030. Í árs­lok 2020 skil­aði Evr­ópu­sam­bandið síðan inn nýju, metn­að­ar­fyllra mark­miði um 55% sam­drátt í losun.

Par­ís­ar­sátt­mál­inn tekur þannig til­lit til ein­stakrar stöðu hvers ríkis hvað varðar t.d. efna­hag, end­ur­nýj­an­lega orku, umhverf­is­þætti o.s.frv. Þannig geta aðild­ar­ríki aðlagað lands­fram­lögin að sinni stöðu og hvernig þau telja að þau geti lagt sitt að mörkum.

Þrátt fyrir skýr mark­mið Par­ís­ar­sátt­mál­ans eru ýmis flækju­stig sem honum fylgja. Mikill munur er á fram­lögum ríkja, fram­lögin eru frjáls og einnig er aðild­ar­ríkjum frjálst að nálg­ast lausn­ina eins og þeim hentar. Flest lands­fram­lög taka fram ákveðið los­un­ar­mark­mið og tíma­setn­ingu til að ná settu mark­miði. Þannig er í raun ekk­ert sam­eig­in­legt við­mið­un­arár sem ríki nota til að ná los­un­ar­mark­mið­unum. Til dæmis hefur Evr­ópu­sam­bandið sett sér mark­mið um að draga úr losun um 55% fyrir árið 2030 miðað við árið 1990, Japan ætlar að draga úr losun um 26% fyrir 2030 miðað við 2013 og Kína ætlar að ná hápunkti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda árið 2030.

Þar að auki felur sátt­mál­inn ekki í sér laga­lega skuld­bind­ingu. Það eru því í raun engar afleið­ingar eða refsi­á­kvæði fyrir lönd sem ná ekki að stand­ast lands­mark­miðin sín. Í sátt­mál­anum er hins vegar að finna ákvæði um skyldu ríkja til að halda los­un­ar­bók­hald og veita upp­lýs­ingar um stefnu, aðgerðir og árangur.

Loftslagsréttlæti í París

Í lofts­lags­við­ræðum snýst einn helsti ágrein­ing­ur­inn um hvernig á að „deila byrð­inni“ (e. burden shar­ing). Lofts­lags­breyt­ingar eiga sér að stærstum hluta stað vegna meng­andi lífs­stíls hnatt­ræna Norð­urs­ins (e. global North), þ.e. rík­ari, „þró­aðri“ landa. Þessi ríki bera ábyrgð á lung­anum af sögu­legri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, sem og 92% af umfram­losun gróð­ur­hús­lof­t­eg­unda, eða losun umfram það sem talið er örugg mörk (e. safe boundaries). Því telja ríki í hinu hnatt­ræna Suðri (e. global South), þ.e. fátæk­ari „þró­un­ar­ríki“, að rík­ari lönd í Norðri beri ábyrgð á því að draga hlut­falls­lega meira úr losun. Ríki í Norðri hafa hins vegar bent á að iðn­væð­ing og fólks­fjölgun í Suðri bendi til þess að bráðum verði þessi ríki megin los­un­ar­að­il­arnir og því þurfa þau einnig að axla ábyrgð.

Þegar kom að því að setja hlýn­un­ar­mark­mið í París voru Evr­ópu­sam­bandið og önnur vest­ræn ríki sam­mála um tveggja gráðu mark­miðið. Við gerð Par­ís­ar­samn­ings­ins var hins vegar meiri­hluti ríkja, eða 106 ríki, sem kröfð­ust þess að markið yrði sett á 1,5°C. Eyríki og Afr­íku­lönd hafa kraf­ist þess í ára­tugi að halda þurfi hlýnun undir 1,5°C til að koma í veg fyrir verstu afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga - sem ógna til­vist þeirra meira en ann­ara ríkja. Þetta leiddi á end­anum til þess að mark­miðið var sett á 2°C og að „reyna með fremsta megni að halda hlýnun undir 1,5°C“.

Landsframlög ekki í samræmi við markmið Parísarsáttmálans

Eins og áður sagði er meg­in­mark­mið Par­ís­ar­ar­sam­komu­lags­ins að halda hlýnun jarðar undir að minnsta kosti 2°C, það er því lyk­il­at­riði að lands­fram­lög ríkja séu í sam­ræmi við það. Þetta er hins vegar ekki raunin. Rann­sóknir hafa sýnt fram á að ef öll ríki myndu ná að stand­ast mark­miðin sín þá mun hlýnun jarðar samt ekki hald­ast undir 2°C heldur að öllum lík­indum leiða til 2.7-3.1 gráðu hlýn­unar. Með öðrum orðum, lands­fram­lög ríkja eru langt frá því að vera nógu metn­að­ar­full til að stand­ast mark­mið um að halda hlýnun jarðar innan 1,5°C eða 2°C.

Til dæmis hefur The Climate Action Tracker sagt að 55% los­un­ar­mark­mið Evr­ópu­sam­bands­ins, Noregs og Íslands sé ekki nógu metn­að­ar­fullt til að vera sam­ræm­an­legt við mark­mið Par­ís­ar­sátt­mál­ans. Ofan á það bæt­ist að flest ríki heims virð­ast vera fjarri því að ná mark­miðum sem þau hafa sjálf sett sér. Miðað við núver­andi losun munu lík­urnar á því að halda hita­stigi and­rúms­lofts­ins undir 1,5°C gráðu renna okkur úr greipum eftir rúm­lega fimm ár.

Vert er að minna á að mik­il­vægt er að halda jörð­inni undir 1,5°C til að koma í veg fyrir verstu afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga. Árið 2020 var með­al­hita­stig jarðar 1,2°C hærra en fyrir iðn­bylt­ingu og sam­kvæmt nýút­gef­inni skýrslu IPCC mun hlýnun upp á hvern tíunda úr gráðu til við­bótar skipti máli. Afleið­ingar hlýn­unar eru nú þegar sjá­an­legar með hita­bylgjum, skriðu­föllum, gríð­ar­legum skóg­ar­eldum sem geisað hafa m.a. í Norður-Ameríku, Evrópu, Ástralíu og Brasilíu á und­an­förnum árum, útrým­ingu dýra­teg­unda, hopi jökla, hækk­unar sjáv­ar­máls, þurrkum, útrým­ingu kór­al­rifs, lofts­lags­flótta­fólki, þiðnun sífreris o.s.frv. Þessar afleið­ingar mann­legra athafna, eða í raun athafna ákveð­ins hluta mann­kyns, munu ein­ungis versna með hækk­andi hita­stigi.

Hvað gerist við þriggja gráðu hlýnun?

Eins og áður kom fram stefnir heim­ur­inn nú í allt að þriggja gráðu hlýnun á innan við 80 árum. En hvernig myndi jörðin líta út við tveggja til þriggja gráðu hlýnun? Mik­il­vægt er að hafa í huga að um að ræða með­al­hlýnun. Einhvers staðar í heim­inum mun hlýna um meira en þrjár gráður og annar staðar minna. Til dæmis er Norð­ur­heim­skautið að hlýna rúm­lega tvisvar sinnum hraðar heldur en aðrir staðir á jörð­inni og þétt­býlar borgir munu hitna hlut­falls­lega meira heldur en dreif­býli.

Líklegt er að þriggja gráðu hlýnun muni leiða til for­dæma­lausar hita­bylgja og ríki í suður Evrópu líkt og Ítalía, Spánn og Grikk­land verða skil­greind sem eyði­merkur. Talið er að allt að 150.000 Evr­ópu­búar geti dáið ár hvert sökum hita. Norð­ur­heim­skautið mun verða algjör­lega íslaust yfir sum­ar­mán­uð­ina fyrir árið 2050 og talið er að bráðnun jökla Græn­lands sé nú þegar komið að svo köll­uðum vendi­punkti, þ.e. óaft­ur­kræfra breyt­inga.

Líkt og með önnur lofts­lagstengd vanda­mál leiðir bráðnun jökla af sér snjó­bolta­á­hrif. Það er að segja, því meira sem jörðin hitnar, því meira bráðna jökl­arnir og því minni er end­ur­speglun sól­ar­geisla frá jöklunum og því meiri hitnar jörðin. Bráðnun jökla leiðir einnig til hækk­andi sjáv­ar­máls en miðað við 3 gráðu hlýnun er gert ráð fyrir því að sjáv­ar­mál mun hækka um einn til tvo metra. Það þýðir að borgir á við Amster­dam, New York og Jakarta eiga í hættu á óvið­ráð­an­legum flóðum. Stór hluti regn­skóga verður horf­inn, upp­skeru­brestur og áhrifin sem lofts­lags­breyt­ingar munu hafa á land­búnað mun leiða til enn meiri hung­ursneyðar, far­sótta og veirum líkt og kór­ónu­veirunni mun fjölga. Með öðrum orðum, ef hita­stigið á jörð­inni hækkar um þrjár gráður mun stór hluti jarð­ar­innar ein­fald­lega vera ólíf­væn­legur.

Það er óyggj­andi stað­reynd að hita­stig jarðar mun hækka svo um munar og að lofts­lagstengdar ham­farir verða tíð­ari og alvar­legri. Þetta þýðir hins vegar ekki að öll von sé úti. Samkvæmt nýj­ustu skýrslu IPCC er mögu­leiki á að snúa þess­ari þróun við. Takist að stöðva losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda mun hnatt­ræn hlýnun tíma­bundið fara yfir 1,5°C á þess­ari öld en byrja síðan að lækka aftur. Með rót­tækum aðgerðum til að draga úr losun er þannig hægt að stöðva hækkun hita­stigs á jörð­inni og koma í veg fyrir verstu afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga.

Helstu heimildir:

https://climateactiontracker.org/

https://himinnoghaf.is/

https://wedocs.unep.org/bitstream/handle/20.500.11822/34438/EGR20ESE.pdf

https://unfccc.int/resource/docs/2015/cop21/eng/10a01.pdf

https://www.ipcc.ch/report/ar6/wg1/downloads/report/IPCC_AR6_WGI_SPM.pdf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár