Læknar og barnaverndaryfirvöld tóku þátt í mansali á börnum

Arny Hinriksson segir hollenska ættleiðinga­miðlun og samverka­menn í Sri Lanka hafa verið barna­mangara. Með samkrulli við þarlenda lækna og barna­verndar­yfirvöld hafi þau komist upp með glæpi og grætt „milljónir á milljónir ofan á sölu á börnum“. Arny hefur aðstoðað um þrjátíu Íslendinga sem grunur leikur á að hafi verið fórnar­lömb mansals í Sri Lanka á níunda áratug síðustu aldar.

Skömm í Sri Lanka
Skömm í Sri Lanka Arny Hin­riks­son segir að enn ríki skömm meðal íbúa í Sri Lanka vegna máls­ins. Myndin er úr þætti SRF um ætt­leið­ingar í Sri Lanka. Mynd: SRF

Arny, eða Aury eins og Íslendingarnir sem hún er að aðstoða kalla hana, hefur um þrjátíu ára skeið hjálpað fólki sem var ættleitt frá Sri Lanka á áttunda og níunda áratug síðustu aldar en komst að því að ættleiðinga­skjöl þeirra reyndust fölsuð. Talið er að 11 þúsund börn hafi verið ættleidd frá Sri Lanka á þessu tímabili, flest fluttu með foreldrum sínum til Evrópu en einnig Banda­ríkjanna, Kanada og Ástralíu. Arny hefur fengið hjálpar­beiðnir frá fólki í Bretlandi, Hollandi, Þýska­landi, Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Ástralíu og svo eru það Íslendingarnir.

„Glæp­irnir voru vissu­lega framdir í Sri Lanka en hvernig stóð á því að yfir­völd á Íslandi voru ekki með eft­ir­lit með þessum ætt­leið­ingum“
Arny Hin­riks­son

„Ég set Íslendingana í forgang því á Íslandi á ég líka rætur því ég bjó þar sjálf um árabil, var gift íslenskum manni og …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár